Hoppa yfir valmynd
1. október 2020 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 333/2020 - Úrskurður

 

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 333/2020

Fimmtudaginn 1. október 2020

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 1. júlí 2020, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 15. júní 2020, um að hafna beiðni hans um greiðslu atvinnuleysisbóta frá 1. mars 2020.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 19. mars 2020. Með ákvörðun, dags. 15. júní 2020, var kæranda tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt frá umsóknardegi og bótaréttur metinn 100%. Beiðni kæranda um að umsókn tæki gildi 1. mars 2020 var hafnað með vísan til 1. mgr. 29. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 1. júlí 2020. Með bréfi, dags. 8. júlí 2020, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 8. september 2020. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 10. september 2020, var greinargerð Vinnumálastofnunar send kæranda til kynningar. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru kemur fram að kærandi hafi ekki sótt um atvinnuleysisbætur sama dag og uppsagnarfresti úr fyrri vinnu hans lauk þar sem hann hafi átt að byrja að vinna hjá nýjum vinnuveitanda tveimur vikum síðar. Það hafi því ekki tekið því að sækja um bætur í tvær vikur. Hann hafi hins vegar ekki fengið starfið og því hafi hann sótt um bætur frá þeim tíma er uppsagnarfresti lauk. Kærandi gerir athugasemd við vinnubrögð og seinagang Vinnumálastofnunar í máli hans og telur að hin kærða ákvörðun sé afar ósanngjörn.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar er vísað til 1. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem fram komi að launamönnum og sjálfstætt starfandi einstaklingum sé heimilt að sækja um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar þegar þeir verði atvinnulausir. Þá segi í 1. mgr. 29. gr. laganna að sá sem teljist tryggður samkvæmt lögunum geti átt rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samfellt í þrjú ár frá þeim degi er Vinnumálastofnun hafi tekið við umsókn hans um atvinnuleysisbætur nema annað leiði af lögunum. Í athugasemdum við 29. gr. í frumvarpi því er varð að lögum nr. 54/2006 komi fram að miðað sé við að tímabil sem atvinnuleysisbætur séu greiddar hefjist þegar Vinnumálastofnun móttaki umsókn um atvinnuleysisbætur.

Vinnumálastofnun bendir á að það sé grundvallarskilyrði fyrir því að eiga rétt á greiðslu atvinnuleysistrygginga að hinn tryggði sæki um slíkt til stofnunarinnar. Stofnunin telji sér ekki heimilt að greiða atvinnuleysisbætur lengra aftur en frá dagsetningu umsóknar atvinnuleitanda um atvinnuleysisbætur. Ljóst sé af gögnum málsins að kærandi hafi sótt um greiðslur atvinnuleysistrygginga þann 19. mars 2020, en stofnunin hafi ekki getað vitað að hann væri án atvinnu fyrr en á þeim tíma. Kærandi eigi því ekki rétt á greiðslum atvinnuleysisbóta fyrir þann tíma, sbr. 1. mgr. 9. gr. og 1. mgr. 29. gr. laga nr. 54/2006.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að hafna beiðni kæranda um greiðslu atvinnuleysisbóta afturvirkt frá 1. mars 2020.

Í 9. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar er fjallað um umsókn um atvinnuleysisbætur og er 1. mgr. lagagreinarinnar svohljóðandi:

Launamönnum og sjálfstætt starfandi einstaklingum er heimilt að sækja um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar þegar þeir verða atvinnulausir. Umsóknin skal vera skrifleg á þar til gerðum eyðublöðum og henni skal meðal annars fylgja vottorð fyrrverandi vinnuveitanda, staðfesting um stöðvun rekstrar og önnur nauðsynleg gögn að mati Vinnumálastofnunar. Í umsókn skulu koma fram allar þær upplýsingar er varða vinnufærni umsækjanda og þær rökstuddar fullnægjandi gögnum.

Í 1. mgr. 29. gr. laga nr. 54/2006 kemur fram að sá sem teljist tryggður samkvæmt lögunum geti átt rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samfellt í þrjú ár frá þeim degi er Vinnumálastofnun hafi tekið við umsókn hans um atvinnuleysisbætur nema annað leiði af lögunum. Í athugasemdum við 29. gr. frumvarps þess sem varð að lögum um atvinnuleysistryggingar kemur fram að miðað sé við að það tímabil sem atvinnuleysisbætur séu greiddar hefjist þegar Vinnumálastofnun móttaki umsókn um atvinnuleysisbætur.

Ljóst er að kærandi sótti um atvinnuleysisbætur með umsókn, dags. 19. mars 2020. Kærandi á því ekki rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrir þann tíma, sbr. 1. mgr. 9. gr. og 1. mgr. 29. gr. laga nr. 54/2006, þrátt fyrir að hafa verið atvinnulaus frá 1. mars 2020. Ákvæði 1. mgr. 9. gr. og 1. mgr. 29. gr. laganna eru fortakslaus að þessu leyti. Hin kærða ákvörðun er því staðfest.

Hvað varðar athugasemd kæranda um vinnubrögð og seinagang Vinnumálastofnunar þá liggur fyrir að það liðu tæplega þrír mánuðir frá því að kærandi lagði inn umsókn um atvinnuleysisbætur og þar til ákvörðun var tekin í máli hans. Í lögum nr. 54/2006 er ekki að finna sérstakan tímafrest sem Vinnumálastofnun hefur til að afgreiða umsóknir. Ber því að líta til 9. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 en þar kemur fram sú meginregla að ákvarðanir í málum innan stjórnsýslunnar skuli teknar eins fljótt og auðið er. Af ákvæðinu leiðir að aldrei má vera um ónauðsynlegan drátt á afgreiðslu máls að ræða. Hvað getur talist eðlilegur afgreiðslutími verður að meta í hverju tilviki fyrir sig. Vegna Covid-19 faraldursins jókst atvinnuleysi til muna og þar með álagið á Vinnumálastofnun. Því tók lengri tíma en vanalega að afgreiða umsóknir. Úrskurðarnefndin telur ljóst að þær aðstæður skýri þá töf sem varð á afgreiðslu umsóknar kæranda. Að því virtu er ekki ástæða til að gera athugasemd við málsmeðferð Vinnumálastofnunar í máli kæranda.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 15. júní 2020, um að hafna beiðni A um greiðslu atvinnuleysisbóta frá 1. mars 2020, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum