Hoppa yfir valmynd
25. febrúar 2021 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál 472/2020-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 472/2020

Fimmtudaginn 25. febrúar 2021

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 29. september 2020, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála afgreiðslu Vinnumálastofnunar vagna umsóknar hennar um atvinnuleysisbætur.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 7. janúar 2019 og var umsókn hennar samþykkt. Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 29. september 2020 þar sem fram kom ástæða fyrir atvinnuleysi hennar.

Með bréfi, dags. 4. nóvember 2020, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar vegna kærunnar. Með bréfi, dags. 11. desember 2020, barst greinargerð Vinnumálastofnunar þar sem fram kom að kærandi hafi hafnað atvinnutilboði í júlí 2020. Í kjölfarið hafi kærandi lagt fram læknisvottorð og stofnunin þá komist að þeirri niðurstöðu að kærandi þyrfti ekki að sæta viðurlögum vegna höfnunar á atvinnu. Af kæru væri hvorki unnt að greina hvaða ákvörðun stofnunarinnar sætti kæru til nefndarinnar né hvaða niðurstöðu kærandi sæktist eftir. Því teldi Vinnumálastofnun þörf á að kærandi gerði ítarlegri grein fyrir málatilbúnaði sínum áður en stofnunin gæti veitt fullnægjandi umsögn í málinu. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 15. desember 2020, var greinargerð Vinnumálastofnunar send kæranda til kynningar. Með erindi úrskurðarnefndar, dags. 14. janúar 2020, var óskað eftir upplýsingum um hvað kærandi væri ósátt við. Sú beiðni var ítrekuð með erindi úrskurðarnefndar 2. febrúar 2021. Svar barst ekki.

II.  Niðurstaða

Í kæru til úrskurðarnefndar greinir kærandi frá ástæðu fyrir atvinnuleysi sínu. Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndarinnar var vísað til þess að af kæru væri hvorki unnt að greina hvaða ákvörðun sætti kæru til nefndarinnar né hvaða niðurstöðu kærandi sæktist eftir. Úrskurðarnefndin óskaði í kjölfarið eftir upplýsingum frá kæranda um hver ágreiningur málsins væri. Svar barst ekki.

Úrskurðarnefnd velferðarmála kveður upp úrskurði um ágreiningsefni sem kunna að rísa á grundvelli laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar, sbr. 11. gr. laganna. Af gögnum málsins verður ekki ráðið að ágreiningur sé til staðar á milli kæranda og Vinnumálastofnunar. Þar sem enginn ágreiningur er til staðar í máli þessu er kæru vísað frá úrskurðarnefndinni.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum