Hoppa yfir valmynd
7. maí 2020 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 123/2020 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 7. maí 2020 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 123/2020

í stjórnsýslumáli nr. KNU19110020

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 12. nóvember 2019 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 25. október 2019, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.

Þess er krafist að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnislegrar meðferðar hér á landi, í fyrsta lagi með vísan til sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og í öðru lagi með vísan til 3. mgr. 36. gr., sbr. 2. mgr. 42. gr. laganna.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 26. ágúst 2019. Þar sem kærandi hafði fengið útgefna vegabréfsáritun til Tékklands var þann 4. september 2019 beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda í Tékklandi, sbr. 2. eða 3. mgr. 12. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá tékkneskum yfirvöldum, dags. 22. október 2019, samþykktu þau viðtöku kæranda á grundvelli 2. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 25. október 2019 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 29. október 2019 og kærði kærandi ákvörðunina þann 12. nóvember 2019 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 21. nóvember 2019 ásamt fylgigögnum. Þá bárust viðbótargögn þann 25. febrúar og 30. apríl 2020.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kom fram að tékknesk stjórnvöld bæru ábyrgð á meðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Umsóknin yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Tékklands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá var það mat Útlendingastofnunar að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því þannig að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Tékklands.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að hann hafi í viðtölum hjá Útlendingastofnun m.a. greint frá því að hann hafi flúið heimaríki sitt vegna stríðsátaka. Kærandi hafi gert samkomulag við smyglara og borgað honum til þess að komast frá heimaríki sínu. Smyglarinn hafi útvegað honum vegabréfsáritun til Tékklands og tekið af sér loforð þess efnis að hann myndi ekki sækja um alþjóðlega vernd þar í landi. Kærandi hafi dvalið í fjóra daga í Tékklandi og svo haldið til Íslands. Kærandi hafi mótmælt endursendingu til Tékklands sökum þess að hann hræðist smyglarann en hann hafi tengsl við stjórnvöld í Tékklandi. Kærandi greindi frá því að honum liði illa vegna aðstæðna sinna og að óvissa um framtíð hans ylli sér þreytu, kvíða og áhyggjum. Þá sé kærandi dapur en hann hafi upplifað tiltekna atburði í heimaríki sem hafi haft áhrif á líkamlega og andlega heilsu hans og dreymi hann illa á hverri nóttu vegna þess. Þá hafi vinur kæranda, sem hafi komið með honum til Íslands, hringt í smyglarann eftir að þeir hafi komið til Íslands og þar hafi smyglarinn haft í hótunum við hann og kæranda.

Hvað varðar aðstæður og réttindi umsækjenda um alþjóðlega vernd í Tékklandi vísar kærandi til greinargerðar sinnar til Útlendingastofnunar þar sem þeim hafi verið gerð ítarleg skil, m.a. m.t.t. viðhorfa tékkneskra stjórnvalda í málefnum útlendinga, aðstæðna í varðhaldi og beitingu þess gagnvart umsækjendum um alþjóðlega vernd og fordómum þar í landi.

Í greinargerð kæranda eru gerðar athugasemdir við hina kærðu ákvörðun Útlendingastofnunar. Kærandi gerir í fyrsta lagi athugasemd við trúverðugleikamat Útlendingastofnunar. Gerir kærandi athugasemd við þá staðhæfingu Útlendingastofnunar að ekkert bendi til þess að umsókn kæranda muni hljóta ósanngjarna málsmeðferð í Tékklandi og að honum muni standa til boða nauðsynleg grunnþjónusta verði honum gert að snúa aftur til Tékklands. Í greinargerð sinni til Útlendingastofnunar hafi kærandi vísað til fjölda heimilda sem bendi til hins gagnstæða. Vísar kærandi m.a. í þeim efnum til stefnu tékkneskra stjórnvalda í málefnum útlendinga en þau hafi t.a.m. neitað að taka við þeim kvóta af flóttafólki og umsækjendum um alþjóðlega vernd sem Evrópusambandið hafi lagt til að aðildarríki þess taki við. Þá hafi háttsettir embættismenn talað fyrir þeirri stefnu að koma í veg fyrir streymi flóttafólks til landsins. Þá séu fáar umsóknir um alþjóðlega vernd samþykktar í Tékklandi og telji kærandi því að hann muni eiga á hættu að verða áframsendur til heimaríkis verði hann sendur aftur til Tékklands. Kærandi mótmælir einnig staðhæfingu Útlendingastofnunar um að ekkert gefi sérstaklega til kynna að hann muni eiga á hættu að vera hnepptur í varðhald við komuna til Tékklands. Tékknesk stjórnvöld hafi verið gagnrýnd fyrir að notast við varðhald fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd í ríkum mæli. Mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna (e. UN High Commissioner for Human Rights) auk nefndar Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum (e. Committee Against Torture) hafi m.a. lýst áhyggjum sínum af vaxandi beitingu tékkneskra stjórnvalda á þessu úrræði. Kærandi telji því verulegar líkur á því að hann verði hnepptur í varðhald verði hann endursendur til Tékklands.

Þá gerir kærandi athugasemd við það mat Útlendingastofnunar að íbúar landsins geti fengið vernd gegn ofbeldisbrotum og glæpum með aðstoð lögreglu eða annarra yfirvalda. Kærandi vísar í því sambandi til heimilda um að útlendingaandúð þar í landi hafi aukist mikið með auknu streymi umsækjenda um alþjóðlega vernd til landsins. Auk þess bendi heimildir til þess að flóttafólk og innflytjendur sæti illri meðferð í Tékklandi, s.s. líkamlegu ofbeldi, ógnunum, hótunum og skemmdarverkum í garð umsækjenda um alþjóðlega vernd. Kærandi gerir athugasemd við að stofnunin hafi litið fram hjá þeirri málsástæðu að æðstu ráðamenn í Tékklandi hafi að undanförnu unnið að því að koma í veg fyrir streymi flóttamanna til landsins. Þá gerir kærandi athugasemd við að Útlendingastofnun vísi til tæplega þriggja ára gamalla tölvupóstsamskipta við tékknesk yfirvöld, enda sé ljóst að réttindi og staða umsækjenda um alþjóðlega vernd hafi tekið miklum breytingum. Telji kærandi að Útlendingastofnun hafi ekki fylgt hinni lögbundnu rannsóknarskyldu sem á henni hvíli með því að gefa þessari málsástæðu ekki gaum.

Í öðru lagi gerir kærandi athugasemd við mat Útlendingastofnunar á viðkvæmri stöðu kæranda. Vísar kærandi til þess að ekki hafi verið fjallað um frásögn hans af því ofbeldi sem hann mátti sæta í heimaríki. Vísar kærandi til þess að íslenskum stjórnvöldum beri að leggja heildstætt mat á einstaklingsbundnar aðstæður hans og þær afleiðingar sem endursending hafi í för með sér fyrir hann, líkamlegar og andlegar, auk þess að meta hvort hann sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Áréttar kærandi í því sambandi rannsóknarskyldu stjórnvalda, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Í þriðja lagi gerir kærandi athugasemd við beitingu og lagastoð reglugerðar nr. 276/2018, um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017. Vísar kærandi m.a. til þess að þau viðmið sem séu sett fram í 32. gr. a reglugerðarinnar séu nefnd í dæmaskyni og því sé ekki um tæmandi talningu að ræða á þeim þáttum sem taka beri tillit til við mat á því hvort sérstakar ástæður eigi við. Útlendingastofnun hafi því borið að framkvæma heildarmat á einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda og þeim aðstæðum sem kærandi muni standa frammi fyrir í Tékklandi komi til endursendingar. Telji kærandi að aðstæður hans séu það einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið, auk þess sem hann muni eiga erfitt uppdráttar í Tékklandi vegna alvarlegrar mismununar og fordóma þar í landi.

Krafa kæranda er í fyrsta lagi reist á því að ótækt sé að beita heimild c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og að taka skuli mál hans til efnislegrar meðferðar í ljósi sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í þeim efnum fjallar kærandi almennt um og gerir grein fyrir inntaki og túlkun á ákvæðinu, m.a. með hliðsjón af lögskýringargögnum og fyrri úrskurðum kærunefndar útlendingamála. Kærandi telur að frásögn hans bendi til þess að hann sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu með vísan til 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Til grundvallar þeirri fullyrðingu áréttar kærandi frásögn hans af eigin líðan og þeim sviplegu atburðum sem hann hafi orðið fyrir, s.s. stríðsátökum, ofbeldi og þeirri óvissu sem kærandi hafi alla tíð búið við. Þá hafi kærandi greint frá því að andleg heilsa hans sé ekki góð og að hann hafi áhyggjur af endursendingu til Tékklands vegna ótta við tiltekinn smyglara sem hafi tengsl við stjórnvöld þar í landi. Að mati kæranda muni staða hans vera mun verri en staða almennings í Tékklandi í ljósi kerfislægrar mismununar, beitingu varðhalds gagnvart umsækjendum um alþjóðlega vernd og stefnu stjórnvalda. Um mat á því hvenær einstaklingur teljist eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vísar kærandi til tiltekinna úrskurða kærunefndar frá október 2017. Í ljósi þessa séu sérstakar ástæður fyrir hendi og því beri íslenskum stjórnvöldum að taka umsókn kæranda til efnislegrar meðferðar.

Krafa kæranda er í öðru lagi reist á því að ótækt sé að beita heimild c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þar sem að taka skuli mál hans til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, sbr. 42. gr. sömu laga, þar sem kveðið sé á um grundvallarreglu þjóðaréttar um non-refoulement. Vísar kærandi til aðstæðna í Tékklandi, viðhorfs tékkneskra stjórnvalda í garð flóttafólks og þess að stjórnvöld samþykki fáar umsóknir um alþjóðlega vernd. Telur kærandi að endursending hans til Tékklands myndi fela í sér brot á 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga og því beri að fara fram á einstaklingsbundna tryggingu fyrir því að kærandi verði ekki sendur áfram til heimaríkis en að öðrum kosti að taka mál hans til efnislegrar meðferðar hér á landi. 

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef krefja má annað ríki, sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli samninga sem Ísland hefur gert um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram hér á landi eða í einhverju samningsríkjanna, um að taka við umsækjanda. Í samræmi við samning ráðs Evrópusambandsins og Íslands og Noregs um þátttöku hinna síðarnefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna samþykkti Ísland áðurnefnda Dyflinnarreglugerð, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 1/2014.

Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Ábyrgð Tékklands á umsókn kæranda er byggð á 2. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar þar sem kærandi hafði fengið útgefna vegabréfsáritun til Tékklands. Samkvæmt framansögðu er heimilt að krefja tékknesk stjórnvöld um að taka við kæranda, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður í Tékklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd í Tékklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2019 Country Reports on Human Rights Practices – Czech Republic (United States Department of State, 11. mars 2020);
  • Amnesty International Report 2017/18 – Czech Republic (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
  • Annual Report 2018 – Refugee Facilities Administration of the Ministry of the Interior (af vefsíðu http://suz.cz/en, ódagsett);
  • Annual Report on the Situation of Asylum in the European Union 2018 (European Asylum Support Office, 24. júní 2019);
  • Concluding observations on the fourth periodic report of Czechia (United Nations Human Rights Committee, 6. desember 2019);
  • Concluding observations on the sixth periodic report of Czechia (United Nations Committee against Torture, 6. júní 2018);
  • Czech Republic: Health System Review. Health Systems in Transition (European Observatory on Health Systems and Policies, 2015);
  • CJEU: Actions brought against Poland, Hungary and the Czech Republic for failing to fulfill relocation obligations (European Council on Refugees and Exiles, 30. mars 2018);
  • ECRI Report on the Czech Republic (European Commission against Racism and Intolerance, 13. október 2015);
  • EDAL Country Overview – Czech Republic (European Database of Asylum Law, 21. febrúar 2014);
  • Facility for Detention of Foreigners Bělá-Jezová – Evaluation of Systematic Visit (Public Defender of Rights - Ombudsman, 9. september 2015);
  • Freedom in the World 2019 – Czech Republic (Freedom House, 4. febrúar 2019);
  • Immigration Detention in the Czech Republic (Global Detention Project, 19. desember 2018);
  • Report of the Working Group on the Universal Periodic Review – Czechia (United Nations Human Rights Council, 9. ágúst 2017);
  • Upplýsingar af vefsíðu hjálparsamtakanna Organization for Aid to Refugees (http://www.opu.cz/en/, sótt 3. febrúar 2020) og
  • Upplýsingar af vefsíðu tékkneska innanríkisráðuneytisins (www.mvcr.cz, sótt 14. febrúar 2020) og vefsíðu umboðsmannsins (http://www.ochrance.cz/en/, sótt 3. febrúar 2020).

Í framangreindum gögnum kemur fram að meðferð umsókna um alþjóðlega vernd er í höndum sérstakrar deildar innan innanríkisráðuneytis Tékklands (e. Department of Asylum and Migration Policy of the Czech Ministry of Interior). Samkvæmt tékkneskum lögum skal almennt afgreiða umsóknir innan sex mánaða frá því að umsókn er lögð fram. Umsækjendur um alþjóðlega vernd geta kært niðurstöðu ráðuneytisins til héraðsdómstóla. Ákvörðun héraðsdómstóls er svo hægt að áfrýja til æðsta stjórnsýsludómstóls landsins (e. Supreme Administrative Court).

Umsækjendur um alþjóðlega vernd í Tékklandi skulu mæta í móttökumiðstöð innan sólarhrings frá því að þeir óskuðu eftir alþjóðlegri vernd. Þar er umsóknin formlega skráð og er þeim skylt að veita atbeina sinn til að upplýsa auðkenni sitt, t.d. með því að afhenda skilríki sín og með töku fingrafara. Þar fara umsækjendur enn fremur í læknisskoðun. Innanríkisráðuneytið getur ákveðið að umsækjandi skuli vera vistaður í slíkri miðstöð í allt að 120 daga og er hægt að kæra slíka ákvörðun til dómstóla. Að öllu jöfnu fá umsækjendur þó úthlutað gistirými í miðstöð fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd (e. accommodation center). Umsækjendur fara í að minnsta kosti eitt viðtal vegna umsóknar þeirra um alþjóðlega vernd áður en ákvörðun er tekin í máli þeirra og njóta þeir endurgjaldslausrar túlkaþjónustu við málsmeðferðina. Umsækjendur eiga ekki rétt á endurgjaldslausri lögfræðiaðstoð í tengslum við umsókn sína en frjáls félagasamtök, t.d. Organization for Aid to Refugees (OPU), bjóða upp á slíka aðstoð eftir því sem við verður komið. Umsækjendur um alþjóðlega vernd í Tékklandi njóta heilbrigðistryggingar og eiga rétt á grunnheilbrigðisþjónustu.

Árið 2015 voru gerðar breytingar á tékknesku útlendingalöggjöfinni í því skyni að fullgilda móttökutilskipun Evrópusambandsins (EU Reception Conditions Directive, 2013/33/EU) og er þar nú mælt fyrir um nokkur almenn skilyrði fyrir því að heimilt sé að setja umsækjendur um alþjóðlega vernd í varðhald. Slíkt er m.a. heimilt í þeim tilvikum þegar það er talið nauðsynlegt til að staðfesta auðkenni viðkomandi einstaklings, vegna allsherjarreglu og almannaöryggis, eða ef hætta er talin á að einstaklingur muni koma sér undan framkvæmd ákvörðunar vegna umsóknar hans um alþjóðlega vernd. Tékknesku útlendingalögin kveða á um að ekki megi setja umsækjendur í lengra varðhald en sem nemur 120 dögum. Umsækjendur geta þá borið lögmæti varðhalds undir dómstóla. Framangreindar heimildir bera með sér að óhófleg beiting varðhalds gagnvart umsækjendum um alþjóðlega vernd hafi verið gagnrýnd af alþjóðlegum stofnunum, m.a. hafi nefnd Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu (e. United Nations Committee against Torture) hvatt tékknesk stjórnvöld til að hætta að beita þessu úrræði. Auk þess er varðhaldsföngum almennt gert að greiða fyrir varðhaldsvist sína, u.þ.b. átta til níu evrur á dag. Tékknesku félagasamtökin Organization for Aid to Refugees og umboðsmaður borgara í Tékklandi (e. Public Defender of Rights, Ombudsman) hafa bent á að með auknum fjölda umsækjenda um alþjóðlega vernd hafi aðstæður í varðhaldi versnað á síðustu árum. Að mati eftirlitsaðila hafa aðstæður í varðhaldi þó almennt talist viðunandi, en tékkneski umboðsmaðurinn hefur m.a. eftirlit með aðstæðum í varðhaldsmiðstöðvum. Þá kemur fram í skýrslu Global Detention Project að umsækjendur um alþjóðlega vernd sem sæta varðhaldi eigi rétt á brýnustu nauðsynjum, þ. á m. grunnheilbrigðisþjónustu. Hins vegar geri tungumálaerfiðleikar sumum erfitt fyrir að fá viðeigandi þjónustu, einkum í Bělá-Jezová varðhaldsmiðstöðinni.

Framangreind gögn gefa til kynna að fordómar og andúð í garð flóttafólks og umsækjenda um alþjóðlega vernd hafi aukist á undanförnum árum í Tékklandi. Þá hafa stjórnmálamenn tjáð sig með niðrandi hætti um flóttafólk og umsækjendur um alþjóðlega vernd. Tékknesk stjórnvöld hafa jafnframt gagnrýnt samstarf Evrópusambandsins um tilfærslu flóttamanna milli ríkja (e. relocation) sem miði að því að draga úr álagi á önnur ríki, s.s. Ítalíu og Grikkland, vegna aukins fjölda umsækjenda um alþjóðlega vernd síðustu ára. Hafa tékknesk stjórnvöld tekið við fáu flóttafólki í tengslum við það samstarf. Á undanförnum árum hafa tékknesk yfirvöld þó gripið til ýmissa aðgerða til að berjast gegn kynþáttahatri og fordómum, t.d. með því að veita útlendingum aðstoð við aðlögun að tékknesku samfélagi og aðgerðaráætlunum. Hatursorðræða er refsiverð samkvæmt tékkneskum lögum og við ákvörðun refsinga skv. hegningarlögum landsins er m.a. litið til þess hvort brot byggist á kynþáttahatri. Þá geta almennir borgarar jafnt sem umsækjendur um alþjóðlega vernd leitað til lögreglu ef þörf er á. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins um mannréttindamál í Tékklandi heyra löggæsluyfirvöld undir innanríkisráðuneyti landsins.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi [...] ára gamall karlmaður. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi m.a. frá því að hann hafi orðið fyrir ofbeldi í heimaríki sínu sem hafi haft áhrif á hann og að hann hefði verk í kjálka eftir það. Þá greindi hann frá því að líkamleg og andleg heilsa hans væri góð en hann væri dapur og kvíðinn vegna aðstæðna sinna. Í framlögðum heilsufarsgögnum kemur fram að kærandi sé almennt heilbrigður. Þá má sjá af gögnunum að kærandi hafi notið þjónustu bæði lækna og sálfræðinga á göngudeild sóttvarna. Í samskiptaseðli Göngudeildar sóttvarna, dags. 18. febrúar 2020, kemur fram að kærandi sé skráður með greininguna kvíðaröskun og að hann glími við svefnvandamál og hafi fengið lyf við því. Sambærilegar upplýsingar koma fram í gögnum sem kærunefnd bárust þann 30. apríl sl.

Með vísan til fyrrgreindrar málsmeðferðar og þeirra ganga sem liggja fyrir í málinu telur kærunefnd að málið sé nægjanlega upplýst með tilliti til heilsufars.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Krafa kæranda er m.a. reist á því að sérstakar ástæður séu fyrir hendi í máli hans, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Af framangreindum skýrslum um aðstæður í Tékklandi verður ráðið að umsækjendur um alþjóðlega vernd og flóttafólk þar í landi glími við ýmis vandamál, t.d. hafi hatursorðræða og fordómar gagnvart þessum hópum vaxið ásmegin á undanförnum árum. Það er þó mat kærunefndar að þau viðmið sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga eigi ekki við í málinu. Það er mat kærunefndar að framangreindar landaupplýsingar beri ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að hann geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þótt framangreindar skýrslur um aðstæður og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd í Tékklandi beri með sér að varðhaldi sé beitt í talsvert ríkum mæli þá lítur kærunefnd til þess að Tékkland hefur fullgilt og tekið upp í landslög móttökutilskipun Evrópusambandsins nr. 2013/33/EU og tékknesk lög veita kæranda úrræði til þess að bera lögmæti varðhalds undir stjórnvöld og dómstóla, fari svo að hann verði færður í varðhald við komu til landsins. Þá bera framangreindar skýrslur enn fremur með sér að aðstæður í varðhaldi og í móttökumiðstöðvum séu almennt viðunandi. Kærandi kveðst enn fremur óttast tiltekinn smyglara sem hafi tengsl við stjórnvöld í Tékklandi. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér bera með sér að tékknesk stjórnvöld hafi yfir að ráða fullnægjandi úrræðum til að bregðast við afbrotum og að kærandi geti leitað ásjár þarlendra löggæsluyfirvalda eða annarra þar til bærra stjórnvalda óttist hann um öryggi sitt í Tékklandi.

Þá er það mat kærunefndar að gögn málsins bendi ekki til þess að heilsufar kæranda sé með þeim hætti að hann teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi í skilningi 2. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga eða að aðstæður hans að því leyti séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið, sbr. 3. mgr. ákvæðisins. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd verður ráðið að þeir eigi rétt á nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu þar í landi.

Við mat á því hvort sérstakar ástæður mæli með því að umsókn kæranda hljóti efnismeðferð hér á landi hefur kærunefnd litið til þeirra aðstæðna sem nú eru uppi vegna Covid-19 faraldursins. Fjölmörg ríki hafa gripið til umfangsmikilla aðgerða til þess að sporna gegn útbreiðslu veirunnar. Felast aðgerðirnar m.a. í ferðatakmörkunum og ferðabönnum. Í því sambandi hafa mörg aðildarríki Dyflinnarsamstarfsins lokað tímabundið fyrir endursendingar einstaklinga á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar og liggur ekki fyrir hvenær endursendingar muni hefjast að nýju. Á þetta við um Ísland og ríkir því ákveðin óvissa hér á landi um það hvenær framkvæmd á endursendingum hefjist að nýju. Yfirvöld í Tékklandi hafa jafnframt gripið til aðgerða til þess að sporna gegn útbreiðslu veirunnar, t.a.m. með ferðabanni til og frá landinu. Þá þurfa umsækjendur um alþjóðlega vernd að fara í sóttkví í 14 daga eftir komu til landsins. Heimildir beri þó með sér að viðtökuríkið sé byrjað að draga úr þeim aðgerðum sem gripið hafi verið til í því skyni að takmarka áhrif faraldursins. Kærunefnd hefur ekki forsendur til annars en að líta svo á að þær takmarkanir sem við líði eru vegna Covid-19 faraldursins séu tímabundnar.

Af skýrslum er ljóst að viðtökuríkið býr við sterka innviði. Að mati kærunefndar er ekkert sem bendir til þess að það tímabundna ástand sem nú ríki komi til með að hafa teljandi áhrif á getu eða vilja viðtökuríkisins til að taka á móti og afgreiða mál kæranda þar í landi þegar takmörkunum verður aflétt og veita honum nauðsynlegan stuðning og viðeigandi aðbúnað á meðan mál hans er þar til meðferðar.

Í því sambandi er rétt að árétta að Dyflinnarreglugerðin gerir ráð fyrir því að samstarfsríkin hafi almennt sex mánuði frá því að lokaákvörðun var tekin um kæru umsækjanda um alþjóðlega vernd til að flytja umsækjanda til viðtökuríkis, sbr. 1. mgr. 29. gr. reglugerðarinnar. Kærunefnd hefur ekki forsendur til að álykta að endursendingar til viðtökuríkisins verði ekki hafnar áður en umræddur frestur rennur út.

Þá lítur kærunefnd einnig til þess að skv. 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga er Útlendingastofnun heimilt að fresta flutningi á umsækjanda ef það telst nauðsynlegt vegna sérstakra aðstæðna hans eða ómögulegt er að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.

Er það mat kærunefndar að tímabundnar takmarkanir á endursendingum til Tékklands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar geti ekki, eins og hér stendur á, leitt til þess að sérstakar ástæður mæli með því að umsókn kæranda verði tekin til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í því sambandi hefur kærunefnd sérstaklega litið til þess að viðtökuríkið hefur sterka innviði og þess frests sem aðildarríki Dyflinnarsamstarfsins hafa til að endursenda umsækjendur til viðtökuríkis og fjallað var um hér að framan.

Það er jafnframt mat kærunefndar að málsástæður kæranda að öðru leyti verði ekki taldar til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Vegna tilvísunar í greinargerð kæranda til úrskurða kærunefndar í málum nr. 550/2017 og nr. 552/2017 frá 10. október 2017, og úrskurða nr. 583/2017 og nr. 586/2017 frá 24. október 2017, tekur kærunefnd fram að ekki sé hægt að jafna stöðu kæranda í þessu máli við stöðu kærenda í framangreindum úrskurðum enda ekki um að ræða sömu viðtökuríki.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda og á grundvelli heildarmats á áhrifum Covid-19 faraldursins á aðstæður hans er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 18. september 2019 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 26. ágúst 2019.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun aðildarríkis um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið byggt á því að sú meðferð sem einstaklingur á von á við brottvísun eða frávísun verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til að ákvörðunin verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars. Við mat á umræddu alvarleikastigi hefur dómstóllinn jafnframt litið til annarra þátta, t.d. hvort einstaklingurinn er í viðkvæmri stöðu, sbr. t.d. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Khlaifia o.fl. gegn Ítalíu (nr. 16483/12) frá 15. desember 2016. Í því sambandi hefur dómstóllinn lagt ákveðna áherslu á að umsækjendur um alþjóðlega vernd tilheyri jaðarsettum og viðkvæmum þjóðfélagshóp sem þurfi sérstaka vernd, sbr. t.d. dóm í máli Tarakhel gegn Sviss (nr. 29217/12) frá 4. nóvember 2012. Þrátt fyrir það verði 3. gr. mannréttindasáttmálans ekki túlkuð á þann hátt að í greininni felist skylda aðildarríkja til að sjá umsækjendum um alþjóðlega vernd fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum, sbr. dóm í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011.

Með vísan til umfjöllunar um aðstæður og móttökuskilyrði umsækjenda um alþjóðlega vernd í Tékklandi er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Þau gögn sem kærunefnd hefur undir höndum benda ekki til annars en að við málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd sé litið til einstaklingsbundinna aðstæðna umsækjanda í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar viðtökuríkisins og tilskipanir Evrópusambandsins. Þá benda öll gögn til þess að kærandi hafi raunhæf úrræði í Tékklandi, bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. jafnframt 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem tryggja að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Athugasemdir kæranda við hina kærðu ákvörðun

Svo sem að framan hefur komið gerir kærandi ýmsar athugasemdir við hina kærðu ákvörðun, m.a. við mat Útlendingastofnunar á aðstæðum í viðtökuríki og viðkvæmri stöðu hans og við beitingu reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með áorðnum breytingum.

Eins og að framan greinir hefur kærunefnd lagt einstaklingsbundið mat á umsókn kæranda og komist að niðurstöðu um að synja honum um efnismeðferð með vísan til ákvæða laga um útlendinga eins og þau hafa verið útfærð í reglugerð um útlendinga. Er niðurstaða í málinu byggð á túlkun kærunefndar á framangreindum ákvæðum og sjónarmiðum sem nefndin telur málefnaleg.

Vegna athugasemda kæranda í greinargerð um beitingu ákvæða 32. gr. a reglugerðar um útlendinga tekur kærunefnd sérstaklega fram að hún telji ljóst að það leiði bæði af orðalaginu „viðmið“ og tilvísun í reglugerðinni um að þau séu í „dæmaskyni“ að ekki sé um að ræða tæmandi upptalningu á þeim sjónarmiðum sem komið geta til greina við mat á því hvort sérstakar ástæður eru fyrir hendi í máli. Kærunefnd áréttar í þessu samhengi að við meðferð mála hjá kærunefnd er ávallt horft til einstaklingsbundinna aðstæðna einstaklingsins við mat á því hvort sérstakar ástæður mæli með því að mál verði tekið til efnismeðferðar, í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, þ.m.t. heilsufars hans og annarra þátta sem benda til viðkvæmrar stöðu einstaklingsins. Kærunefnd leggur því áherslu á að heildarmat sé lagt á atvik í hverju máli fyrir sig á grundvelli einstaklingsbundinna aðstæðna einstaklingsins og aðstæðna í viðtökuríki.

Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun að öðru leyti og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við hana. Hefur kærunefnd skoðað alla þætti málsins og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun.

Frávísun

Kærandi kom hingað til lands þann 24. ágúst 2019 og sótti um alþjóðlega vernd þann 26. ágúst 2019. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærandi skal fluttur til Tékklands innan tilskilins frests nema ákveðið verði að fresta réttaráhrifum úrskurðar þessa að kröfu kæranda, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Í máli þessu hafa tékknesk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda kæranda til Tékklands með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er því staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd á grundvelli lokamálsliðar 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin, m.a. ef afleiðingar Covid-19 faraldursins muni vara lengur og vera alvarlegri en gera má ráð fyrir nú.

Athygli kæranda er einnig vakin á því að Útlendingastofnun getur frestað framkvæmd ákvörðunar með vísan til 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga vegna sérstakra aðstæðna útlendings eða vegna þess að ómögulegt sé að framkvæma ákvörðun að svo stöddu. 

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Hjörtur Bragi Sverrisson

 

Árni Helgason                                                               Þorbjörg Inga Jónsdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum