Hoppa yfir valmynd
2. júlí 2013 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Greiðsluafkoma ríkissjóðs janúar-maí 2013

 

Greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir fyrstu fimm mánuði ársins 2013 liggur nú fyrir. Staða handbærs fjár frá rekstri batnaði miðað við sama tímabil 2012 og var neikvætt um 13,4 ma.kr. en var neikvætt um 15,1 ma.kr. 2012.

Tekjur hækkuðu um 7,1 ma.kr. milli ára og gjöld um 11,2 ma.kr. Viðskiptahreyfingar höfðu jákvæð áhrif á handbært fé um 2,3 ma.kr. á móti neikvæðum áhrifum 2012 um 3,5 ma.kr. Þessi útkoma er betri en áætlað var þar sem gert var ráð fyrir að handbært fé yrði neikvætt um 19,9 ma.kr. sem skýrist að mestu með því að dreifing útgjalda innan ársins reyndist önnur en gert hafði verið ráð fyrir.

Greiðsluafkoma ríkissjóðs janúar - maí 2013

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum