Hoppa yfir valmynd
29. maí 2020 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Árni Helgason formaður nefndar um málefni útlendinga

Árni Helgason, lögmaður - mynd

Árni Helgason, lögmaður tekur við formennsku í þingmannanefnd um málefni útlendinga og innflytjenda. Hann tekur við formennskunni af Hildi Sverrisdóttur, aðstoðarmanni Þórdísar Kolbrúnar R. Gylfadóttur, atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra.

Árni Helgason er með meistarapróf í lögfræði frá Háskóla Íslands og rekur lögmannsstofuna JÁS lögmenn. Hann starfaði einnig í kærunefnd útlendingamála frá 2016-2020.

Nefndinni var komið á fót í haust og mun hún vera sam­eig­in­legur vett­vangur þing­manna og full­trúa ráð­herra og ráðu­neyta fyrir upp­lýs­inga­öflun og upp­lýs­inga­skipti um málaflokkinn og til að vera til sam­ráðs um fram­kvæmd útlend­inga­laga og eftir atvikum end­ur­skoðun laga og reglu­gerða á mál­efna­svið­inu með mann­úð­ar­sjón­ar­mið og skil­virka þjón­ustu til grund­vall­ar.

Þá verða einnig þær breytingar á nefndinni að Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar, tekur sæti í nefndinni og tekur við af Stefaníu Sigurðardóttur, framkvæmdastjóra þingflokks Viðreisnar.  Lára Björg Björnsdóttir, ráðgjafi ríkisstjórnar í jafnréttismálum einnig, tilnefnd af forsætisráðuneytinu. Tekur hún við af Höllu Gunnarsdóttur sem látið hefur af störfum í forsætisráðuneytinu.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum