Hoppa yfir valmynd
5. september 2018 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 366/2018 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 5. september 2018 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 366/2018

í stjórnsýslumáli nr. KNU18070031

 

Kæra [….]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 17. júlí 2018 kærði […], fd. […], ríkisborgari Albaníu (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 11. júlí 2018, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga.

Kærandi krefst þess aðallega að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að kæranda verði veitt viðbótarvernd með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til vara krefst kærandi þess að honum verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, dags. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Til þrautavara krefst kærandi þess að ákvörðun Útlendingastofnunar, hvað varðar brottvísun og endurkomubann, verði felld úr gildi, sbr. 2. mgr. 98. gr. og 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi þann 8. júlí 2018. Kærandi kom í viðtöl hjá Útlendingastofnun 10. og 11. júlí 2018 ásamt talsmanni sínum. Með ákvörðun, dags. 11. júlí 2018, synjaði Útlendingastofnun kæranda um alþjóðlega vernd ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Kæranda var jafnframt brottvísað frá landinu og ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Að ósk kæranda var veittur frekari rökstuðningur fyrir ákvörðun Útlendingastofnunar með bréfi stofnunarinnar, dags. 12. júlí 2018. Var sú ákvörðun kærð til kærunefndar útlendingamála þann 17. júlí 2018. Kærunefnd barst greinargerð kæranda þann 2. ágúst 2018.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi byggi umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hann óttist meðlimi tiltekinnar fjölskyldu í heimaríki sem hafi sýnt honum banatilræði í tvígang og ekki sé von á aðstoð eða vernd yfirvalda sökum tengsla nefndrar fjölskyldu við lögregluna.

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar í máli kæranda var sú að kærandi sé ekki flóttamaður og honum skuli synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi skv. ákvæðum 37. og 40. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 74. gr. laga um útlendinga. Þá taldi stofnunin að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stæði endursendingu til heimaríkis ekki í vegi.

Kæranda var vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Útlendingastofnun tilkynnti kæranda jafnframt að kæra frestaði réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga. Kæranda var brottvísað frá landinu með vísan til 2. tölul. b-liðar 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga, sbr. b-liðar 2. mgr. 104. gr. laganna. Var kæranda ákveðið endurkomubann hingað til lands í tvö ár, sbr. 101. gr. sömu laga.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að hann hafi greint frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að hann sé fæddur í Berat í Albaníu og hafi flúið heimaríki sitt af öryggisástæðum. Kærandi hafi orðið fyrir ofbeldi þar í landi og hafi í tvígang orðið fyrir skotárás. Kærandi hafi farið á sjúkrahús í kjölfarið og kært árásina til lögreglu en gerendurnir hafi tengsl innan lögreglunnar svo hún hafi ekkert aðhafst. Mál kæranda vegna framangreindrar árásar hafi verið á leið fyrir dómstóla í heimaríki þegar hann hafi yfirgefið landið og hafi hann verið boðaður í vitnaleiðslur. Kærandi viti ekki hvort réttarhöldin hafi átt sér stað og sé fullviss um að aðilunum verði ekki gerð refsing. Kærandi óttist að verða sendur aftur til heimaríkis þar sem hann muni verða fyrir ofbeldi. Í kjölfar framangreindra árása hafi verið ráðist á ættingja mannanna sem hafi beitt hann ofbeldi og kenni mennirnir kæranda um þá árás og séu að leita hefnda.

Kærandi fjallar í greinargerð almennt um aðstæður í Albaníu. Þar kemur fram að kærandi telji ríkið eitt það fátækasta í Evrópu og að spilling sé útbreidd á öllum stigum stjórnkerfisins. Kærandi vísar til skýrslna sem hann telur styðja mál sitt.

Kærandi krefst þess aðallega að honum verði veitt vernd á grundvelli 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga þar sem hann eigi á hættu að sæta ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð í heimaríki. Kærandi rekur sögu ákvæðisins í greinargerð sinni og vísar til lögskýringargagna máli sínu til stuðnings og þá sérstaklega varðandi þau viðmið sem beri að hafa í huga við matið á hvort einstaklingur eigi rétt á vernd samkvæmt ákvæðinu. Meðal annars skuli líta til þess hvort hægt sé, með sanngjörnum hætti, að ætlast til þess að umsækjandi leiti verndar stjórnvalda í viðkomandi ríki auk þess sem sú staðreynd að einstaklingur hafi þegar orðið fyrir ofsóknum eða alvarlegum skaða sé alvarleg vísbending um raunverulega hættu á því að verða fyrir alvarlegum skaða. Kærandi hafi nú þegar orðið fyrir ofsóknum og hótunum af hálfu einstaklinga með tengsl innan lögreglunnar í heimaríki. Í ljósi þess sé ekki með sanngjörnum hætti hægt að ætlast til þess að kærandi leiti verndar stjórnvalda. Þá sé almennt ástand í Albaníu ekki gott og spilling nái til allra stiga þjóðfélagsins. Þannig sé kærandi í raunverulegri hættu á að verða fyrir alvarlegum skaða verði hann sendur aftur til heimaríkis.

Kærandi gerir athugasemdir við hina kærðu ákvörðun en í nánari rökstuðningi Útlendingastofnunnar komi fram að það sé mat Útlendingastofnunar að kærandi hafi gefið óljósar skýringar á því hvers vegna hann geti ekki fengið aðstoð lögreglu í heimaríki. Þá telji stofnunin að fullyrðingar kæranda um vangetu lögregluyfirvalda til að veita honum viðeigandi aðstoð fái ekki stoð í gögnum um Albaníu. Í viðtali hjá stofnuninni hafi kærandi hins vegar greint með skýrum hætti frá því að lögreglan gæti ekki veitt honum aðstoð vegna tengsla mannanna, sem hafi ráðist á hann, við lögregluna auk þess sem hann hafi kvartað undan spillingu lögreglunnar til yfirvalda en engin svör fengið. Þá fái frásögn hans um lögreglu í heimaríki, þvert á fullyrðingar Útlendingastofnunar, stoð í heimildum um ástandið í heimaríki hans þar sem komi m.a. fram að spilling sé viðvarandi vandamál, löggæslu ekki alltaf beitt af jafnrétti og dómskerfið starfi ekki alltaf með sjálfstæðum og áhrifaríkum hætti.

Kærandi krefst þess til vara að honum verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Heimilt sé samkvæmt ákvæðinu að veita útlendingi sem staddur sé hér á landi og geti sýnt fram á ríka þörf á vernd dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, t.a.m. vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða vegna erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki. Kærandi óttist endurtekið ofbeldi af hálfu ákveðinna einstaklinga í heimaríki. Þá sé ljóst af frásögn kæranda og landaupplýsingum að lögreglu skorti vilja og getu til að veita kæranda vernd. Með hliðsjón af framangreindu sé ljóst að kærandi uppfylli skilyrði 1. mgr. 74. gr. útlendinga.

Til þrautavara krefst kærandi þess að ákvörðun Útlendingastofnunar varðandi brottvísun og endurkomubann verði felld úr gildi. Kærandi byggir framangreinda kröfu sína á því að óheimilt hafi verið að veita honum ekki frest til að yfirgefa landið og vísar til úrskurðar kærunefndar nr. 596/2017 máli sínu til stuðnings. Þá telur kærandi að Útlendingastofnun hafi verið óheimilt að ákvarða honum brottvísun á grundvelli 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Að lokum telur kærandi að brottvísun og endurkomubann samræmist ekki meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Kærandi gerir athugasemd við rannsókn Útlendingastofnunar í máli hans og telur að stofnunin hafi brotið gegn 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga við meðferð málsins. Í greinargerð er áréttað að framangreindar rannsóknarreglur séu í fullu gildi í málum einstaklinga frá öruggum ríkjum. Ákvörðun í máli kæranda hafi verið birt honum daginn eftir að viðtal við hann hafi farið fram en hann hafi fengið sólarhring til að leggja fram gögn máli sínu til stuðnings. Fulltrúi stofnunarinnar hafi greint kæranda frá því sama dag og viðtalið fór fram að gögnin hefðu ekki þýðingu í máli hans og að hann myndi að öllu óbreyttu fá neikvæða niðurstöðu þrátt fyrir framlagningu þeirra. Ekki verði betur séð en að allur texti ákvörðunarinnar hafi verið ritaður áður en viðtal við kæranda hafi farið fram. Þá vekur kærandi athygli á ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 10. apríl 2017 í máli nr. 2016-06968, þar sem um hafi verið að ræða persónubundnar ofsóknir einkaaðila en talið hafi verið að viðkomandi fengi ekki vernd yfirvalda vegna ofsóknanna. Niðurstaða málsins hafi verið sú að aðili var talinn uppfylla skilyrði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga og hafi honum verið veitt vernd með vísan til 1. mgr. 40. gr. laganna. Í ljósi málshraða Útlendingastofnunar á umsókn kæranda og þeirra málsatvika sem hann haldi fram verði ekki séð að Útlendingastofnun hafi sinnt rannsóknarskyldu sinni þegar umsókn hans hafi verið metin bersýnilega tilhæfulaus. Hraði umsóknarinnar geti ekki talist málefnalegur og standist enga skoðun. Styðji framangreint við kröfu kæranda um að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi hvað varðar brottvísun og endurkomubann.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi framvísað albönsku vegabréfi. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi sé albanskur ríkisborgari.

Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Albaníu m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • Country Reports on Human Rights Practices for 2017 – Albania (U.S. Department of State, 20. apríl 2018);
  • Albania 2017/2018 (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
  • Freedom in the World 2018 – Albania (Freedom House, 28. maí 2018);
  • EASO Country of Origin Information Report – Albania, (European Asylum Support Office, nóvember 2016);
  • Report to the Albanian Government on the visit to Albania carried out by the European Committee for the Prevention of Torture and Inhuman or Degrading Treatment or Punishment (CPT) (Council of Europe, 24. maí 2018);
  • The World Factbook. Europe: Albania (Central Intelligence Agency, 19. júní 2018);
  • Albania 2018 Report (European Commission, 17. apríl 2018).

Albanía er lýðræðisríki með um þrjár milljónir íbúa. Ríkið gerðist aðili að Evrópuráðinu árið 1995 og fullgilti mannréttindasáttmála Evrópu árið 1996. Albanía gerðist aðili að sáttmála Sameinuðu þjóðanna gegn spillingu árið 2006, flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna 18. ágúst 1992, alþjóðasamningi um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi 4. október 1991 og samningi Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu þann 11. maí 1994. Albanía sótti um aðild að Evrópusambandinu árið 2009 og fékk stöðu sem umsóknarríki í júní 2014. Albanía er á lista Útlendingastofnunar yfir örugg upprunaríki. Í ljósi þess má ætla að grundvallarmannréttindi séu almennt talin virt af yfirvöldum í landinu.

Í framangreindum gögnum kemur fram að yfirvöld í Albaníu hafi undanfarin ár unnið að því að uppræta spillingu í löggæslunni og dómsvaldinu. Jafnframt kemur fram að albönsk stjórnvöld hafi tekið mikilvæg skref til að auka vernd borgara sinna og að Albaníu hafi miðað áfram í málefnum er snerti réttarkerfið og frelsi og öryggi borgara landsins. Þá hafi laun lögreglumanna verið hækkuð og mikil endurnýjun hafi átt sér stað í lögregluliði landsins auk þess sem yfirvöld sæki lögreglumenn til saka vegna brota í starfi. Stjórnvöld hafi einnig gripið til tæknilegra aðgerða til þess að stemma stigu við afbrotum í starfi á borð við að láta lögreglumenn bera myndavélar og gera greiðslur umferðasekta rafrænar. Fram kemur að sett hafi verið á fót þjónusta sem heyri undir albanska innanríkisráðuneytið sem geri borgurunum kleift að senda inn kvartanir vegna spillingarmála í eigin persónu eða símleiðis. Einnig sé starfrækt vefgátt á vegum yfirvalda þar sem borgarar geti tilkynnt misferli opinberra starfsmanna. Í skýrslu framkvæmdarstjórnar Evrópusambandsins fyrir árið 2017 kemur fram að mikill árangur hafi náðst í baráttunni gegn spillingu og hafi m.a. embætti sérstaks saksóknara verið sett á fót. Þá hafi sakfellingar embættismanna í starfi fjölgað til muna á milli ára. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2017 hafi kvörtunarþjónustu innanríkisráðuneytisins borist fjöldi kvartana varðandi spillingu innan lögreglu og hafi um 43 tilvik varðandi brot í starfi verið skráð og hafi verið lagt til að um 57 lögreglumenn skyldu sæta agaviðurlögum. Árið 2017 hafi albanski umboðsmaðurinn (avokati i popullit) einnig tekið til meðferðar kvartanir vegna brota lögreglumanna í starfi og þá aðallega vegna vandamála tengdum handtökum og varðhaldi.

Ákvæði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. útlendingalaga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a.   ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c.   aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök skv. b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki, verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kæranda haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2011). Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Kærandi ber fyrir sig að hafa orðið fyrir árás í heimaríki af hálfu nokkurra manna vegna landadeilna sem hann hafi tilkynnt til yfirvalda. Kærandi hafi tilkynnt einn gerendanna til lögreglu en hún hafi ekkert aðhafst. Maðurinn sem hann hafi tilkynnt til lögreglu hafi síðan lent í átökum og óttist kærandi að maðurinn telji það hafa verið hefndaraðgerð af hálfu kæranda. Í kjölfarið hafi verið skotið á kæranda í tvígang sem hann telji hafa verið líflátstilraunir. Lögreglan hafi engar sannanir í málinu varðandi skotárásirnar og hafi kærandi verið boðaður sem vitni í dómsmáli í heimaríki vegna árásanna. Kærandi telji að árásamaðurinn muni ekki fá dóm þar sem hann hafi tengsl við lögregluna í heimabæ þeirra. Kærandi hafi tilkynnt um spillingu innan lögreglunnar til æðri stjórnvalda í Albaníu en hafi ekki fengið svar við erindi sínu. Þá sé embætti saksóknara með mál í vinnslu vegna skotárásanna sem kærandi hafi orðið fyrir og verði málið tekið fyrir á næstu misserum en kærandi hafi enga trú á að gerandanum verði gerð refsing. Kærandi hefur lagt fram gögn, m.a. kvörtunarbréf vegna aðgerðarleysis lögreglu sem faðir kæranda ritaði yfirvöldum fyrir hans hönd, læknisfræðileg gögn vegna afleiðinga árásanna og boðun til vitnaleiðslu fyrir dómi.

Kærandi hefur ekki borið fyrir sig að hafa orðið fyrir eða óttast ofsóknir af hálfu stjórnvalda í heimaríki. Þá bendir ekkert til þess að kærandi eigi á hættu slíkar ofsóknir. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sé er það mat hennar að þeir sem telji að á réttindum sínum sé brotið geti notið viðeigandi verndar yfirvalda í heimaríki kæranda. Til staðar sé kerfi sem þeir geti leitað til sem telji sig hafa verið beitta órétti af lögreglu. Hægt sé m.a. að leita til stofnunar sem heyri undir innanríkisráðuneyti landsins sem og embættis umboðsmanns í ríkinu. Af þeim gögnum sem kærunefndin hefur tekið til skoðunar má ráða að þessi úrræði séu almennt raunhæf og árangursrík. Þótt frásögn kæranda af aðgerðaleysi svæðisbundinna stjórnvalda gagnvart honum yrði lögð til grundvallar við úrlausn málsins er það mat kærunefndar að kærandi geti leitað til miðlægra stjórnvalda telji hann brotið á réttindum sínum. Þá er það mat kærunefndar að framlögð gögn kæranda, þar sem fram kemur að mál hans hafi verið rannsakað af lögreglu og gefin hafi verið út ákæra á hendur þeim aðila sem hafi beitt kæranda ofbeldi og málið sé til meðferðar hjá dómstólum, styðji enn frekar við ofangreint. Kærunefnd telur því að ekki hafi verið sýnt fram á að stjórnvöld í heimaríki kæranda geti ekki eða vilji ekki veita kæranda vernd gegn athöfnun sem kunna að fela í sér ofsóknir m.a. með því að ákæra og refsa fyrir slíkar athafnir.

Með vísan til ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki með rökstuddum hætti leitt líkur að því að hann hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. og 4. mgr. 38. gr. laganna og uppfylli því ekki skilyrði ákvæðisins fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi

Ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. útlendingalaga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga ber að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um heimaríki kæranda telur kærunefndin að aðstæður hans þar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laganna. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi uppfylli heldur ekki skilyrði 2. mgr. 37. gr. útlendingalaga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.

Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 6. mgr. 37. gr. laga um útlendinga skal stjórnvald sem kemst að því að ákvæði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna eigi ekki við um útlending að eigin frumkvæði taka til skoðunar hvort veita eigi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 74. gr. sömu laga. Þrátt fyrir að orðalag 1. mgr. 74. gr. kveði ekki með skýrum hætti á um veitingu dvalarleyfis má skilja af athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga nr. 80/2016, fyrirsögn greinarinnar og af 6. mgr. 37. gr. laganna að það hafi þó verið ætlunin með ákvæðinu. Kærunefnd telur því rétt að túlka ákvæðið sem heimild til veitingar dvalarleyfis þegar skilyrði þess eru uppfyllt.

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga má líta til mannúðarsjónarmiða ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Kærandi hefur greint frá því að hann óttist ofbeldi af hálfu ákveðinna einstaklinga í heimaríki. Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi einnig til alvarlegra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu eða þá aðstöðu að yfirvöld veiti ekki þegnum sínum vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Með vísan til umfjöllunar um aðstæður í heimaríki telur kærunefnd að aðstæður kæranda séu ekki slíkar að unnt sé að veita kæranda dvalarleyfi á þeim grundvelli.

Fjallað hefur verið um aðstæður kæranda í heimaríki en hann kvaðst jafnframt í viðtali við Útlendingastofnun vera við góða líkamlega og andlega heilsu. Þá kvaðst kærandi ekki tilheyra minnihlutahópi eða vera virkur í stjórnmálum í heimaríki. Þegar upplýsingar um heimaríki kæranda og gögn málsins eru virt í heild er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að hann teljist hafa ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kæranda í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Bann við endursendingu skv. 42. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda telur kærunefnd að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til ekki eiga við í máli kæranda. Kærunefnd telur því að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.

Athugasemdir kæranda við málsmeðferð Útlendingastofnunar.

Líkt og áður segir gerir kærandi athugasemd við rannsókn Útlendingastofnunar með vísan til rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 2. mgr. 23. laga um útlendinga. Kærandi bendir á að ákvörðun í máli kæranda hafi verið birt honum degi eftir að viðtal við hann fór fram hjá stofnuninni. Þá hafi kæranda verið veittur sólarhringsfrestur til að leggja fram gögn en hafi verið tilkynnt að þau hefðu ekki þýðingu í málinu og myndi hann að öllu óbreyttu fá neikvæða niðurstöðu í mál sitt. Einnig telur kærandi að ákvörðun hans hafi verið rituð áður en viðtal við hann fór fram. Þá telji kærandi í ljósi málshraða afgreiðslu umsóknar hans um alþjóðlega vernd að Útlendingastofnun hafi ekki sinnt rannsóknarskyldu sinni. Þá bendir kærandi á að framangreindar rannsóknarreglur séu í fullu gildi í málum einstaklinga sem komi frá öruggum ríkjum.

Samkvæmt 10. gr. stjórnsýslulaga skal stjórnvald sjá til þess að mál sé nægilega upplýst áður en ákvörðun er tekin í því og afla í því skyni nauðsynlegra upplýsinga. Þá kemur fram í 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga að Útlendingastofnun skuli afla nauðsynlegra og aðgengilegra upplýsinga.

Að mati kærunefndar hefur ekkert komið fram í málinu sem bendir til þess að skort hafi á að nauðsynlegar og aðgengilegar upplýsingar lægju fyrir um ástandið í heimaríki kæranda, við ákvörðunartöku hjá Útlendingastofnun. Í því sambandi er tekið fram að kærunefnd hefur yfirfarið þau gögn sem aflað var við rekstur málsins, svo og skýrslur opinberra stofnana, og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun varðandi umsókn kæranda um alþjóðlega vernd. Það er því mat kærunefndar að málsmeðferð Útlendingastofnunar í máli kæranda hafi verið í samræmi við 10. gr. stjórnsýslulaga. Kærandi vísar jafnframt máli sínu til stuðnings til fyrri ákvörðunar Útlendingastofnunar frá 10. apríl 2017 í máli nr. 2016-06968 þar sem einstaklingur hafi fengið vernd, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendingalaga þar sem yfirvöld hafi ekki getað veitt honum vernd vegna ofsókna einkaaðila. Forsendur og rökstuðningur ákvarðana Útlendingastofnunar eru ekki bindandi fyrir kærunefnd.

Frávísun, brottvísun og endurkomubann

Með vísan til atvika málsins tekur kærunefnd undir forsendur Útlendingastofnunar varðandi frávísun kæranda á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. til hliðsjónar 2. málsl. 3. mgr. 42. gr. reglugerðar nr. 540/2017.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda brottvísað og ákvarðað endurkomubann, sbr. b-lið 2. tölul. 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga. Ástæða þess er að Útlendingastofnun mat umsókn kæranda bersýnilega tilhæfulausa í skilningi b-liðar 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga en ákvæðið veitir stjórnvöldum heimild til að fella niður frest sem að jafnaði er veittur útlendingi til að yfirgefa landið sjálfviljugur í kjölfar ákvörðunar um að yfirgefa landið í þeim tilvikum þegar umsókn útlendings um dvalarleyfi eða alþjóðlega vernd telst bersýnilega tilhæfulaus eða hann hefur vísvitandi gefið misvísandi eða rangar upplýsingar við umsókn.

Lög um útlendinga skilgreina ekki hvað felist í orðalaginu „bersýnilega tilhæfulaus“ í skilningi b-liðar 2. mgr. 104. gr. laganna. Við túlkun ákvæðisins telur kærunefnd að líta verði til þess að orðið tilhæfulaus lýsir einhverju sem byggir ekki á staðreyndum eða á ekki við rök að styðjast. Þá leiðir af orðalagi ákvæðisins að tilhæfuleysi umsóknar þarf að vera bersýnilegt, þ.e. blasa við stjórnvaldi við skoðun málsins. Með vísan til orðalags ákvæðisins og til samræmis við ákvæði tilskipunar 2008/115/EB um brottvísun útlendinga í ólögmætri dvöl telur kærunefnd að umsókn um dvalarleyfi eða alþjóðlega vernd sé bersýnilega tilhæfulaus í skilningi b-liðar 2. mgr. 104. gr. laganna ef eftirfarandi tilvik eiga einkum við þegar:

a) ljóst er, við fyrstu sýn, að málsástæður umsækjanda varða ekki þá þætti sem 1. og 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga taka til,

b) ljóst er, við fyrstu sýn, að málsástæður umsækjanda séu ekki þess eðlis eða nái ekki því alvarleikastigi að þær gætu leitt til þeirrar niðurstöðu að heimilt væri að veita umsækjenda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, og

c) frekara mat og gagnaöflun, þar með talið viðtal við umsækjanda, hafi ekki breytt ofangreindu upphaflegu mati.

Kærandi byggir umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hann hafi orðið fyrir árásum í heimaríki og að lögreglan í heimabæ hans hafi ekkert aðhafst vegna tengsla við gerandann. Þá sé mál kæranda í meðferð hjá dómstólum ríkisins. Kærandi lagði fram gögn varðandi líkamsárás sem hann varð fyrir, kvörtunarbréf til yfirvalda og boðun í vitnaleiðslur. Kærandi lagði ekki fram né vísaði til trúverðugra gagna sem gætu gefið til kynna að sú vernd stjórnvalda sem honum standi til boða sé lakari en almennt gerist í heimaríki hans. Það er mat kærunefndar, að teknu tilliti til gagna um heimaríki kæranda og aðstæður hans þar, að það hafi frá upphafi málsmeðferðarinnar verið bersýnilegt að málsástæður hans vörðuðu ekki þá þætti sem 1. og 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga taka til. Enn fremur hafi verið bersýnilegt að aðrar aðstæður í heimaríki kæranda séu ekki þess eðlis eða nái því alvarleikastigi að þær gætu leitt til þeirrar niðurstöðu að heimilt væri að veita kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Í þessu sambandi lítur kærunefnd til þess að orðalag 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga mælir fyrir um að aðili þurfi að sýna fram á ríka þörf á vernd og tekur mat stjórnvalda á tilhæfuleysi slíkra umsókna mið af þeirri ábyrgð sem lögð er á aðila að þessu leyti. Þá er einnig ljóst að frekara mat og gagnaöflun hafi ekki breytt ofangreindu mati.

Að mati kærunefndar eru líkur á því að ákvörðun um niðurfellingu frests hafi varnaðaráhrif sem þjóni því markmiði að stuðla að fækkun bersýnilega tilhæfulausra umsókna frá öruggum upprunaríkjum. Fyrir liggur mat Útlendingastofnunar á því að framangreindu markmiði verði ekki náð með öðru og vægara móti. Kærunefnd telur sig ekki hafa forsendur til að draga í efa þetta mat að svo stöddu. Er það því mat kærunefndar að 12. gr. stjórnsýslulaga standi því ekki í vegi að kæranda verði ekki veittur frestur til að yfirgefa landið. Þá fær kærunefnd ekki séð að 1. mgr. 31. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna komi í veg fyrir að framangreindu úrræði verði beitt í máli kæranda.

Með vísan til framangreinds er fallist á það mat Útlendingastofnunar að umsókn kæranda um dvalarleyfi eða alþjóðlega vernd sé bersýnilega tilhæfulaus, sbr. b-lið 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga, og heimilt að veita kæranda ekki frest til að yfirgefa landið sjálfviljugur.

Eins og að framan greinir hefur kæranda verið vísað frá landinu og hafi hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar hér á landi. Þá hefur kærunefnd komist að þeirri niðurstöðu að heimilt sé að fella niður frest til að kærandi geti yfirgefið landið sjálfviljugur. Liggur því fyrir að kærandi dveljist ólöglega í landinu, sbr. a-lið 1. mgr. 98. gr. laga um útlendinga, og er því heimilt að brottvísa honum.

Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga skal ekki ákveða brottvísun ef hún, með hliðsjón af málsatvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Kærandi kom hingað til lands þann 3. júlí 2018 og sótti um alþjóðlega vernd þann 8. júlí 2018. Kærandi kvaðst í greinargerð eiga á hættu að verða fyrir ofbeldi í heimaríki. Í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 10. júlí 2018 kom fram að kærandi mótmælti ekki hugsanlegri brottvísun og endurkomubanni heldur óttaðist um öryggi sitt í heimaríki yrði hann sendur þangað. Það er mat kærunefndar, í ljósi grundvallar brottvísunar kæranda og með vísan til umfjöllunar kærunefndar um aðstæður í heimaríki kæranda, að ótti kæranda við ofbeldi í heimaríki vegi ekki nægilega þungt til að talið verði að brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun í máli hans. Þá var kærandi spurður út í sérstök tengsl við Ísland eða önnur Schengen-ríki og kvaðst hann ekki hafa slík tengsl en þekkti einstaklinga búsetta í Grænlandi og Bandaríkjunum. Af þeim svörum sem kærandi gaf um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun hans og endurkomubann verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð kæranda eða nánustu aðstandenda hans, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga.

Er ákvörðun Útlendingastofnunar er varðar brottvísun og endurkomubann því staðfest.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðun þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda.

 

 

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

 

Hjörtur Bragi Sverrisson

 

 

Anna Tryggvadóttir                                                                        Þorbjörg Inga Jónsdóttir

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum