Hoppa yfir valmynd
13. desember 2023 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 762/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 13. desember 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 762/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU23120012

 

Beiðni um frestun réttaráhrifa í máli […]

 

Málsatvik

Hinn 30. nóvember 2023 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 17. apríl 2023, um að synja […], fd. […], ríkisborgara Kólumbíu, um alþjóðlega vernd hér á landi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Úrskurður kærunefndar var birtur fyrir aðila 30. nóvember 2023 og 5. desember 2023 barst kærunefnd beiðni aðila um frestun réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar ásamt fylgiskjali. Hinn 11. desember 2023 barst kærunefnd greinargerð aðila.

Kærunefnd leggur þann skilning í beiðni aðila að hann fram á að réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar útlendingamála verði frestað, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Málsástæður aðila

Í greinargerð aðila kemur fram að kærunefnd hafi ekki fallist á að veita aðila alþjóðlega vernd á grundvelli sérstakra tengsla hans við landið. Fjölskylda aðila sé öll búsett hér á landi, foreldrar og tvö systkini. Aðili andmæli því ekki að enginn þeirra falli undir hugtakið nánustu aðstandendur í skilningi 17. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Tengsl hans við landið hljóti þó að teljast sérstök. Því liggi beinast við að aðili sæki um dvalarleyfi á grundvelli 78. gr. laga um útlendinga. Aðili telji að ekki sé gert ráð fyrir að slík umsókn berist á meðan einstaklingur dvelur í landinu heldur verði hann að leggja inn slíka umsókn þegar hann sé staddur erlendis. Aðili fari fram á að réttaráhrifum hins kærða úrskurðar verði frestað á meðan leyst sé úr umsókn hans um dvalarleyfi. Aðili telur þrjár veigamiklar ástæður mæla með því. Í fyrsta lagi sé það áfall fyrir fjölskyldu aðila og hann sjálfan að þurfa að yfirgefa fjölskyldu sína í hættulegar aðstæður. Í öðru lagi séu aðstæður aðila sérstakar að því leyti að sjaldgæft sé að einstaklingur búi við þær fjölskylduaðstæður að báðir foreldrar og systkini séu búsett hér á landi í lögmætri dvöl. Fordæmisáhrif yrðu því ekki víðtæk. Í þriðja lagi sé í ljósi tengsla aðila við landið fyrirsjáanlegt að fallist verði á dvalarleyfi í máli hans, t.d. á grundvelli 3. mgr. 78. gr. laga um útlendinga og því væri um óþarfa tengslarof að ræða og óþarfa vinnu bæði fyrir stjórnvöld og aðila að þurfa að yfirgefa landið og stofna til umsóknar um dvalarleyfi.

Við meðferð málsins lagði aðili fram bréf, dagsett 4. desember 2023, ritað á spænsku af fjölskyldumeðlimum aðila. Þar kemur m.a. fram að fjölskyldan hafi hlotið alþjóðlega vernd hér á landi og óski eftir að syni þeirra verði einnig veitt tækifæri til þess að búa hér á landi í návist þeirra. Þá koma fram upplýsingar um andlegt heilsufar aðila.

Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Í íslenskum rétti gildir sú meginregla að málskot til dómstóla frestar ekki réttaráhrifum endanlegra ákvarðana stjórnvalda, sjá til hliðsjónar 2. málsl. 60. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944. Reglan er áréttuð í 1. málsl. 6. mgr. 104. laga um útlendinga nr. 80/2016 en þar segir að málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun á stjórnsýslustigi um að útlendingur skuli yfirgefa landið fresti ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess, sbr. 2. málsl. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga. Frestun á réttaráhrifum skal bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að málið hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Niðurstaða um hvort ástæða sé til að fresta réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar ræðst af heildstæðu mati á hagsmunum aðila af því að réttaráhrifum úrskurðarins verði frestað og sjónarmiðum sem mæla gegn slíkri frestun. Meðal þeirra sjónarmiða sem líta ber til við þetta mat er hvort framkvæmd úrskurðarins valdi aðila óafturkræfum skaða, hvort framkvæmdin feli í sér verulegar hindranir á aðgengi aðila að dómstólum, hvort aðstæður sem þýðingu geta haft fyrir málið hafi breyst verulega eða hvort þörf sé á sérstakri varúð, m.a. með tilliti til hagsmuna barna. Þá lítur kærunefnd til þess hlutverks stjórnvalda að tryggja skilvirka framkvæmd laga um útlendinga. Kærunefnd hefur jafnframt litið til þess að heimild til frestunar réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar er undantekning frá meginreglu sem aðeins sé ætlað að ná til tilvika þar sem ástæða er til þess að fresta framkvæmd. Réttaráhrifum úrskurðar verði því ekki frestað af þeirri ástæðu einni að úrskurðurinn verði borinn undir dómstóla heldur þurfi að liggja fyrir tilteknar ástæður í fyrirliggjandi máli svo kærunefnd fallist á slíka beiðni.

Af beiðni aðila um frestun réttaráhrifa má ráða að hann fari fram á að réttaráhrifum verði frestað á meðan leyst sé úr umsókn hans til Útlendingastofnunar um dvalarleyfi á grundvelli 78. gr. laga um útlendinga. Heimild kærunefndar til að fresta réttaráhrifum samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga er bundinn því skilyrði að aðili ætli að höfða mál fyrir dómstólum til ógildingar á úrskurði kærunefndar. Aðili hefur ekki borið fyrir sig að hann hyggist bera mál sitt undir dómstóla. Í því ljósi og með vísan til aðstæðna aðila að öðru leyti er það niðurstaða kærunefndar að ekki sé ástæða til að fresta réttaráhrifum úrskurðar í máli aðila á þeim grundvelli að framkvæmd úrskurðarins valdi tjóni á málatilbúnaði hans fyrir dómstólum eða skerði réttindi sem honum eru tryggð samkvæmt 70. gr. stjórnarskrárinnar, sbr. einnig dóma Héraðsdóms Reykjavíkur í málum nr. E-2434/2017, frá 23. maí 2018, og E-6830/2020, frá 15. desember 2020.

Með úrskurði kærunefndar útlendingamála, sem er sjálfstæð stjórnsýslunefnd, hefur verið tekin afstaða til málsástæðna aðila varðandi umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi og dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða og komist að niðurstöðu um að synja umsókn hans. Kærunefnd ítrekar það sem kemur fram í úrskurði í máli aðila að athugun nefndarinnar hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að ætla að aðstæður í heimaríki séu þess eðlis að endursending aðila þangað sé í andstöðu við 1. og 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Kærunefnd telur að gögn sem aðili lagði fram með beiðni um frestun réttaráhrifa séu ekki þess eðlis að ástæða sé til að ætla að þau breyti niðurstöðu nefndarinnar varðandi þetta mat. Í samræmi við framangreint er það jafnframt mat kærunefndar að aðili eigi ekki á hættu að verða fyrir óafturkræfum skaða snúi hann aftur til heimaríkis.

Tiltölulega skammur tími er liðinn síðan nefndin úrskurðaði í máli aðila. Ekkert í gögnum málsins bendir til þess að aðstæður aðila eða aðstæður í ríkinu, sem vísa á aðila til, hafi breyst verulega síðan nefndin úrskurðaði í málinu á þann hátt að nefndin telji að það gæti haft áhrif á efnislega niðurstöðu málsins. Eftir skoðun á beiðni aðila um frestun réttaráhrifa telur kærunefnd að athugasemdir sem þar koma fram varðandi málsmeðferð og efnislegt mat kærunefndar í málinu séu ekki þess eðlis að ástæða sé til að ætla að niðurstaða kærunefndar í málinu sé haldin annmarka sem leitt gæti til ógildingar úrskurðarins.

Samkvæmt framansögðu er það mat kærunefndar að ekki sé ástæða til að fallast á beiðni aðila um frestun réttaráhrifa úrskurðar kærunefndar í máli hans.

 

 

Úrskurðarorð:

 

Kröfu aðila er hafnað.

The appellant’s request is denied.

 

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

 

 

Þorsteinn Gunnarsson, formaður

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum