Hoppa yfir valmynd
27. apríl 2022 Utanríkisráðuneytið

Ísland veitir 80 milljónum til Eþíópíu

Ísland veitir 80 milljónum til Eþíópíu - myndWFP/Claire Nevill

Á framlagaráðstefnu sem fram fór í Genf í gær tilkynntu íslensk stjórnvöld að þau myndu veita 80 milljónum króna til mannúðaraðstoðar í Eþíópíu á þessu ári. Samhæfingarskrifstofa aðgerða Sameinuðu þjóðanna í mannúðarmálum (OCHA), Evrópusambandið, Eþíópía, Kenía og Sómalía stóðu fyrir ráðstefnunni vegna yfirvofandi hungursneyðar af völdum þurrka á svæðinu sem kennt er við horn Afríku. 

Þurrkarnir eru þeir verstu í rúma fjóra áratugi og valda miklum búsifjum og matarskorti í þremur löndum sem kennd eru við horn Afríku, það er Eþíópíu, Kenía og Sómalíu. Áætla Sameinuðu þjóðirnar að hungursneyð vofi yfir 15-16 milljónum manna verði ekkert að gert. 

Framlag Íslands mun renna til Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (WFP) sem hlýtur 50 milljónir króna og 30 milljónir króna renna til Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR). Framlagið er til viðbótar við kjarnaframlög Íslands til stofnananna sem nema 200 milljónum króna á árinu. Ísland lagði einnig sitt af mörkum til að bregðast við ástandinu í Eþíópíu í árslok 2021 með 50 milljóna króna framlagi til WFP. 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin
2. Ekkert hungur

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum