Hoppa yfir valmynd
31. janúar 2020 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Skilnaðarráðgjöf innleidd í Hafnarfirði samkvæmt samningi félags- og barnamálaráðherra og Hafnarfjarðarbæjar

Frá undirritun samkomulags um þátttöku Hafnarfjarðarbæjar í tilraunaverkefni um framkvæmd skilnaðarráðgjafar.  - mynd

Félags- og barnamálaráðherra, Ásmundur Einar Daðason, og bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar, Rósa Guðbjartsdóttir, rituðu í gær undir samkomulag um þátttöku bæjarins í tilraunaverkefni á vegum ráðuneytisins um framkvæmd skilnaðarráðgjafar. Hafnarfjarðarbær mun því, í samstarfi við ráðuneytið innleiða og þróa nýtt vinnulag sem hefur að markmiði  að koma í veg fyrir og/eða draga úr ágreiningi foreldra í skilnaðarferli. 

Verkefnið snýr annars vegar að aðgangi foreldra í skilnaðarferli að rafrænu námskeiði og hins vegar að viðtalsráðgjöf sérfræðings fjölskylduþjónustu. Markmið þess er að innleiða og þróa nýtt vinnulag með áherslu á félagslega ráðgjöf í skilnaðarmálum.

„Ég er mjög ánægður með viðbrögð sveitarfélaga við nýkynntu tilraunaverkefni um ráðgjöf við skilnað foreldra, eitthvað sem skiptir miklu máli fyrir þau börn og þær fjölskyldur sem það ganga gegnum. Í verkefninu felast fyrirbyggjandi aðgerðir til hagsbóta fyrir börn og fjölskyldur sem hafa sýnt sig að hafi jákvæð áhrif á andlega heilsu þeirra og virðist draga úr þeim tíma sem ákveðnir erfiðleikar í kjölfar skilnaða ganga yfir." Sagði Ásmundur Einar við undirritunina.

Verkefnið er að danskri fyrirmynd, en eftir nýlegar breytingar á dönskum skilnaðarlögum þurfa allir foreldrar, sem sækja um leyfi til skilnaðar að borði og sæng, og eiga saman börn undir 18 ára aldri, að taka námskeið um áhrif skilnaða á börn. Samkvæmt rannsóknum sem framkvæmdar hafa verið hefur sú framkvæmd þegar gefið mjög góða raun, en andleg líðan foreldra sem tekið hafa námskeiðið er merkjanlega betri en þeirra sem gerðu það ekki á rannsóknartímabilinu. Þá hefur námskeiðið ýtt undir betri foreldrasamvinnu og meðal annars leitt til þess að foreldrar sem gengið hafa gegnum umrætt námskeið taka töluvert færri veikindadaga frá störfum sínum en ella. Allt þetta bendir til þess að námskeið sem þetta komi foreldrum og börnum þeirra til góða.

Til að byrja með verður um tilraunaverkefni hérlendis að ræða í samstarfi við nokkur sveitarfélög. Hafnarfjörður er þeirra fyrst til að rita undir formlegt samkomulag. Ef vel tekst til mun svo litið til þess hvernig beri að útfæra verkefnið til framtíðar.

„Ég er mjög þakklátur Hafnarfjarðarbæ sem hefur frá upphafi sýnt mikinn áhuga á verkefninu og einlægan vilja í verki við að styðja við það. Það er því afar ánægjulegt að bærinn skuli vera fyrsta sveitarfélag landsins sem formlega hefur innleiðingu“ sagði Ásmundur Einar við undirritunina í dag. Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar tekur undir orð ráðherra. „Við höfum verið og viljum áfram vera leiðandi sveitarfélag í innleiðingu nýrra verkefna m.a. á sviði velferðarmála. Það er spennandi að fá að taka þátt í þessu þróunarverkefni en þekkt er að  afleiðingar ósættis við skilnað geta haft veruleg áhrif á líðan og hegðun allra hlutaðeigandi og þá ekki síst barna. Við erum barnvænt samfélag, störfum samkvæmt Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og því yfirlýsta markmiði að hlúa sérstaklega vel að börnum og fjölskyldum þeirra. Þetta verkefni styður vel við það.“ segir Rósa. 

Fleiri sveitarfélög munu á komandi misserum hefja innleiðingu við hið nýja verklag. Félagsmálaráðuneytið tryggir innleiðingu verkefnisins hvað varðar kostnað vegna samninga, annars vegar við danska fyrirtækið Samarbejde Efter Skilsmisse (SES) og hins vegar við íslenska sérfræðinga sem hafa munu umsjón með innleiðingu verkefnisins á Íslandi, þ.m.t.  þýðingu efnis, fræðslu og handleiðslu til starfsmanna. Það eru Gyða Hjartardóttir, félagsráðgjafi, sérfræðingur í málefnum barna hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu og aðjúnkt við HÍ og Dr. Sigrún  Júlíusdóttir,  prófessor  í  félagsráðgjöf við  Háskóla Íslands  og fjölskylduráðgjafi  hjá Meðferðarþjónustunni Tengslum.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum