Hoppa yfir valmynd
10. nóvember 2010 Dómsmálaráðuneytið

Mannanafnanefnd, úrskurðir 10. nóvember 2010

Mál nr. 84/2010                 Eiginnafn:     Botnía

                                              Millinafn:      Hrútfjörð

 

Hinn 10. nóvember kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 84/2010:

Eiginnafnið Botnía (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Botníu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Millinafnið Hrútfjörð er dregið af íslenskum orðstofnum, hefur ekki nefnifallsendingu og hefur hvorki unnið sér hefð sem eiginnafn karla né sem eiginnafn kvenna. Nafnið er ekki heldur ættarnafn í skilningi 7. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Millinafnið Hrútfjörð uppfyllir þannig ákvæði 6. gr. fyrrnefndra laga.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Botnía (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá. Beiðni um millinafnið Hrútfjörð er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 

 

 

Mál nr. 85/2010                    Eiginnafn:     Björgey

 

Hinn 10. nóvember kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 85/2010 en erindið barst nefndinni 15. október.

Eiginnafnið Björgey (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Björgeyjar, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Björgey (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 

 

 

Mál nr. 86/2010                    Eiginnafn:     Karim

 

Hinn 10. nóvember kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 86/2010 en erindið barst nefndinni 3. nóvember.

Eiginnafnið Karim (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Karims, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Karim (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 

 

 

Mál nr. 87/2010                    Eiginnafn:     Níní

 

Hinn 10. nóvember kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 87/2010 en erindið barst nefndinni 3. nóvember.

Eiginnafnið Níní (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Níníar og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Níní (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 

 

 

Mál nr. 88/2010                    Eiginnafn:     Andru

 

Hinn 10. nóvember kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 88/2010 en erindið barst nefndinni 3. nóvember.

Öll skilyrði 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn þurfa að vera uppfyllt svo að mögulegt sé að samþykkja nýtt eiginnafn og færa það á mannanafnaskrá. Skilyrðin eru þessi: (1) Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. (2) Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi. (3) Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess. Með almennum ritreglum íslensks máls er vísað til auglýsinga nr. 132/1974 og 261/1977 um íslenska stafsetningu.

Í máli þessu reynir á skilyrði nr. eitt og tvö hér að ofan. Samkvæmt umsókn er nafnið Andru án endingar í eignarfalli. Það fullnægir því ekki skilyrði nr. eitt. Í íslensku enda nöfn aldrei á u í nefnifalli. Nafnið Andru fer því í bág við íslenskt málkerfi og fullnægir ekki skilyrði nr. tvö.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Andru (kk.) er hafnað.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum