Hoppa yfir valmynd
25. ágúst 2017 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Verkefnið Göngum í skólann hefst 6. september

Verkefninu Göngum í skólann verður hleypt af stokkunum í 11. sinn miðvikudaginn 6. september nk. og lýkur svo formlega með alþjóðlega Göngum í skólann deginum miðvikudaginn 4. október. Markmið verkefnisins er að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni þeirra til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni.

Á vef verkefnisins segir meðal annars: „Ein einfaldasta leiðin til að auka hreyfingu í daglegu lífi er að velja virkan ferðamáta, svo sem göngu, hjólreiðar, hlaup, línuskautar og hjólabretti. Ávinningurinn er ekki aðeins bundinn við andlega og líkamlega vellíðan heldur er þetta einnig umhverfisvæn og hagkvæm leið til að komast á milli staða. Á síðasta ári tóku milljónir barna í yfir 40 löndum viðsvegar um heiminn þátt í Göngum í skólann með einum eða öðrum hætti. Hér á landi voru um 70 skólar skráðir til leiks á síðasta ári og hefur þátttakan vaxið jafnt og þétt í gegnum árin, en fyrsta árið voru þátttökuskólar 26 talsins.

Átaksverkefnið er orðið að árlegum viðburði í mörgum skólum og býður upp á lærdómsríka og skemmtilega leið fyrir nemendur til að fræðast um umferðarreglur, öryggi og umhverfismál. „

Skráning í þátttöku 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

Heimsmarkmið - mynd
Heimsmarkmið - mynd

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum