Hoppa yfir valmynd
22. janúar 2020 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Mál nr. 360/2019 - Úrskurður

 

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 360/2019

Miðvikudaginn 22. janúar 2020

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Ásmundur Helgason lögfræðingur.

Með kæru, dags. 29. ágúst 2019, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 13. ágúst 2019 um endurreikning tekjutengdra bóta ársins 2018.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi fékk greiddar tekjutengdar bætur frá Tryggingastofnun ríkisins á árinu 2018. Með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 22. maí 2019, var kæranda tilkynnt um endurreikning og uppgjör tekjutengdra greiðslna ársins 2018. Með tölvubréfi lögmanns kæranda 3. júní 2019 var óskað endurskoðunar á ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins. Með bréfi stofnunarinnar, dags. 13. ágúst 2019, var kæranda tilkynnt að endurreikningur og uppgjör tekjutengdra greiðslna ársins 2018 væri látinn standa óbreyttur.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 29. ágúst 2019. Með bréfi, dags. 2. september 2019, óskaði úrskurðarnefnd eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins ásamt gögnum málsins. Með bréfi, dags. 18. september 2019, barst greinargerð stofnunarinnar þar sem fram kom að Tryggingastofnun færi fram á að málinu yrði vísað frá að svo stöddu eða að úrskurðarnefnd velferðarmála afmarkaði og skýrði kæruefnið þar sem kæruefnið væri afar óljóst og engin krafa væri á kæranda vegna tekjuársins 2018. Með bréfi, dags. 20. september 2019, óskaði úrskurðarnefnd velferðarmála eftir efnislegri greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins og kom fram í bréfinu að úrskurðarnefndin teldi að ráðið væri af kæru að hún lyti að ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 13. ágúst 2019. Með bréfi, dags. 18. október 2019, barst viðbótargreinargerð stofnunarinnar og var hún send kæranda til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 21. október 2019. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi gerir ekki formlegar kröfur í málinu en ráða má af kæru að kærandi óski endurskoðunar á ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um endurreikning tekjutengdra greiðslna ársins 2018.

III.  Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins

Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 18. október 2019, kemur fram að kærður sé endurreikningur tekjutengdra bóta ársins 2018.

Í 16. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, sé kveðið á um tilhögun útreiknings tekjutengdra bóta. Í 2. mgr. ákvæðisins sé vísað til laga um tekjuskatt nr. 90/2003 varðandi hvað skuli teljast til tekna. Til tekna samkvæmt III. kafla laga um almannatryggingar teljist tekjur samkvæmt II. kafla laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, að teknu tilliti til ákvæða 28. gr. sömu laga um hvað teljist ekki til tekna og frádráttarliða samkvæmt 1., 3., 4. og 5. tölul. a-liðar 1. mgr. 30. gr. og 31. gr. sömu laga eða undantekninga og takmarkana samkvæmt öðrum sérlögum. Í a-lið 2. mgr. ákvæðisins sé fjallað um fjármagnstekjur og þar komi fram að ef um hjón sé að ræða skiptist tekjur samkvæmt 1. málsl. til helminga á milli hjóna við útreikning bótanna. Ekki skipti máli hvort hjónanna sé eigandi þeirra eigna sem myndi tekjurnar eða hvort um séreign eða hjúskapareign sé að ræða.

Tryggingastofnun greiði lífeyri á grundvelli áætlunar um tekjur viðkomandi árs, sbr. 5. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar. Bótaþegi beri ábyrgð á því að slík tekjuáætlun endurspegli árstekjur og beri að breyta áætluninni ef svo sé ekki, sbr. 1. mgr. 39. gr. sömu laga og 3. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags, en þar komi fram að bótaþega sé skylt að veita Tryggingastofnun allar nauðsynlegar upplýsingar til að hægt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og endurskoðun þeirra. Að sama skapi sé bótaþega skylt að tilkynna Tryggingastofnun um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geti haft áhrif á greiðslur.

Í 7. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar komi fram að þegar endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluársins liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum, skuli Tryggingastofnun endurreikna bótafjárhæðir á grundvelli tekna. Einnig sé fjallað um endurreikning í reglugerð nr. 598/2009. Tryggingastofnun hafi ekki heimild til að líta fram hjá tekjuupplýsingum sem fram komi í skattframtölum.

Í 5. gr. reglugerðar nr. 598/2009 segi meðal annars að komi fram upplýsingar við eftirlit Tryggingastofnunar ríkisins sem leiði til breytinga á tekjuáætlun innan ársins og breytingin hafi áhrif á rétt til bóta eða fjárhæð greiðslna, skuli stofnunin skora á bótaþega að breyta tekjuáætlun og stofnunin skuli breyta útreikningi bóta frá og með næsta mánuði á eftir til samræmis við upplýsingar frá bótaþega. Berist ekki nýjar upplýsingar frá bótaþega og sýnt sé að um sé að ræða varanlega breytingu á tekjum, sé Tryggingastofnun ríkisins heimilt að breyta útreikningi bóta til samræmis við fyrirliggjandi upplýsingar.

Þegar nýr útreikningur bóta liggi fyrir, sbr. 1. mgr., skuli jafna áætluðum heildargreiðslum ársins á alla mánuði bótagreiðsluársins og greiða bætur samkvæmt því þá mánuði sem eftir eru af árinu. Ef í ljós komi að bætur hafi verið ofgreiddar komi ofgreiðslan til innheimtu við næsta árlega uppgjör, nema bótaþegi semji um annað. Hafi bætur verið vangreiddar skuli greiða bótaþega upp á það sem vanti. Komi í ljós við endurreikning bóta að bætur hafi verið ofgreiddar fari um það samkvæmt 55. gr. laganna. Þar komi fram skylda Tryggingastofnunar til þess að innheimta ofgreiddar bætur. Sú meginregla sé ítrekuð í 9. gr. reglugerðar nr. 598/2009.

Á árinu 2018 hafi kærandi verið með örorkulífeyri og tengdar greiðslur allt árið. Uppgjör tekjutengdra bóta ársins hafi leitt til 345.775 kr. inneignar að teknu tilliti til greiddrar staðgreiðslu. Ástæða þess að inneign myndaðist sé sú að við samkeyrslu við tekjuupplýsingar af skattframtali 2019 vegna tekjuársins 2018, hafi komið í ljós að tekjur kæranda reyndust lægri en síðasta tekjuáætlun gerði ráð fyrir. Endurreikningur hafi byggst á upplýsingum úr skattframtölum bótaþega.

Kærandi hafi fengið senda tillögu að tekjuáætlun þann 17. janúar 2018. Samkvæmt tillögunni hafi verið gert ráð fyrir að árið 2018 væri kærandi með 1.237.704 kr. í lífeyrissjóðstekjur, 826.740 kr. í launatekjur og í sameiginlegar tekjur þeirra hjóna 1.176 kr. í vexti og verðbætur. Einnig hafi verið gert ráð fyrir iðgjaldi í lífeyrissjóð til frádráttar að fjárhæð 33.072 kr. Engar athugasemdir hafi borist frá kæranda vegna þessarar tekjuáætlunar og hafi honum verið greitt eftir henni frá 1. janúar til 30. apríl 2018.

 

Kærandi hafi sent inn tekjuáætlun þann 4. apríl 2018. Samkvæmt tillögunni hafi verið gert ráð fyrir óbreyttum tekjum fyrir utan lífeyrissjóðstekjur sem hafi verið lækkaðar í 1.160.794 kr. Sú tekjuáætlun hafi verið samþykkt með bréfi stofnunarinnar, dags. 5. apríl 2018. Kærandi hafi fengið greitt miðað við hana frá 1. maí til 31. maí 2018.

 

Kærandi hafi skilað inn nýrri tekjuáætlun þann 3. maí 2018 en þar hafi verið gert ráð fyrir að kærandi hafi verið með 1.212.000 kr. í lífeyrissjóðstekjur og 1.176 kr. í vexti og verðbætur í sameiginlegum tekjum þeirra hjóna. Ekki hafi verið gert ráð fyrir öðrum tekjum. Sú tekjuáætlun hafi verið samþykkt með bréfi stofnunarinnar, dags. 4. maí 2018. Kærandi hafi fengið greitt á grundvelli þeirrar áætlunar frá 1. júní til 30. september 2018. Í bréfinu hafi kæranda einnig verið tilkynnt um að búið væri að mynda kröfu að fjárhæð 4.746 kr. sem verði ekki innheimt fyrr en að loknu uppgjöri bóta ársins sem áætlað sé að fram fari haustið 2019.

 

Við reglubundið eftirlit Tryggingastofnunar þann 11. september 2018 hafi komið í ljós að misræmi hafi verið á milli tekjuáætlunar kæranda og upplýsinga úr staðgreiðsluskrá Ríkisskattstjóra. Tekjuáætlun kæranda hafi því verið leiðrétt af stofnuninni. Í nýrri tekjuætlun hafi verið gert ráð fyrir 4.514.400 kr. í launatekjur, 1.212.000 kr. í lífeyrissjóðstekjur og sömu fjármagnstekjum og áður hafði verið gert ráð fyrir. Einnig hafi verið gert ráð fyrir iðgjaldi í lífeyrissjóð til frádráttar að fjárhæð 180.567 kr. Kæranda hafi verið tilkynnt um þessa breyttu tekjuáætlun með bréfi 11. september og í því bréfi hafi einnig komið fram að búið væri að mynda kröfu að fjárhæð 776.920 kr. vegna ofgreiddra bóta frá 1. janúar til 30. september 2018 sem færi ekki í innheimtu fyrr en að loknu uppgjöri ársins 2018 sem færi fram haustið 2019. Engar athugasemdir hafi komið frá kæranda og hafi hann fengið greitt á grundvelli þessarar áætlunar frá 1. október til 31. desember 2018.

 

Við bótauppgjör ársins 2018 hafi komið í ljós að kærandi hafði haft lægri tekjur en gert var ráð fyrir í tekjuáætluninni frá 11. september en hærri en gert hafði verið ráð fyrir í öðrum tekjuáætlunum. Kærandi hafi verið með 1.382.400 kr. í launatekjur, 1.184.403 kr. í lífeyrissjóðstekjur og sameiginlegar tekjur þeirra hjóna voru 72 kr. í vexti og verðbætur. Einnig var tekið tillit til iðgjalds í lífeyrissjóð til frádráttar að fjárhæð 55.296 kr. Niðurstaða endurreiknings tekjutengdra bóta ársins 2018 var sú að kærandi hafi fengið vangreiddar bætur í nokkrum bótaflokkum.

 

Tryggingastofnun sé skylt lögum samkvæmt að framkvæma endurreikning ár hvert þegar endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluársins liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum. Tryggingastofnun sé ekki heimilt að horfa fram hjá tekjum sem birtist á framtali bótaþega eins og ítrekað hafi verið staðfest af úrskurðarnefnd og hafi einnig verið staðfest fyrir dómstólum.

 

Niðurstaða endurreiknings tekjutengdra bóta ársins 2018 hafi verið sú að kærandi hefði fengið greitt á árinu 1.845.301 kr. en hefði átt að fá greitt 2.274.314 kr. Þessi mismunur hafi leitt til vangreiðslu að fjárhæð 345.775 kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu. Kærandi hafi sent Tryggingastofnun ríkisins andmæli þann 4. júní 2019 sem hafi verið svarað með bréfi stofnunarinnar þann 13. ágúst 2019.

 

Að lokum er rétt að taka fram að ástæðan fyrir því að krafan, að fjárhæð 776.920 kr., hafi myndast í kjölfar eftirlits Tryggingastofnunar þann 11. september 2018, hafi verið sú að kærandi hafi sent inn ranga tekjuáætlun í maí 2018 og hafi svo vanrækt að gefa Tryggingastofnun upp launatekjur sínar þá um sumarið. Þegar Tryggingastofnun hafi breytt tekjuáætlun kæranda í septembermánuði 2018, hafi tekjur kæranda verið ofáætlaðar en kærandi hafi ekki brugðist við bréfum Tryggingastofnunar. Í kjölfar uppgjörs tekjuársins 2018 hafi greiðslur til kæranda vegna ársins verið leiðréttar og séu nú að fullu í samræmi við lögbundinn rétt. Með vísun til framangreinds telji Tryggingastofnun ekki forsendur til að breyta fyrri ákvörðun sinni.

IV.  Niðurstaða

Mál þetta varðar ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um endurreikning á tekjutengdum bótum kæranda vegna ársins 2018.

Kærandi fékk greiddar tekjutengdar bætur frá Tryggingastofnun á árinu 2018. Samkvæmt 39. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, er umsækjanda eða greiðsluþega skylt að veita stofnuninni allar nauðsynlegar upplýsingar til að hægt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og annarra greiðslna samkvæmt lögunum og endurskoðun þeirra. Enn fremur er skylt að tilkynna stofnuninni um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geta haft áhrif á bætur eða greiðslur. Af framangreindu verður ráðið að sú skylda hvíli á greiðsluþegum að upplýsa Tryggingastofnun um tekjur á bótagreiðsluári sem kunna að hafa áhrif á bótarétt.

Í 16. gr. laga um almannatryggingar er kveðið á um tekjutengingu lífeyristrygginga og hvernig Tryggingastofnun ríkisins skuli standa að útreikningi bóta. Í 2. mgr. 16. gr. segir að til tekna samkvæmt III. kafla skuli telja tekjur samkvæmt II. kafla laga nr. 90/2003 um tekjuskatt. Á grundvelli 7. mgr. 16. gr. ber Tryggingastofnun ríkisins að endurreikna bótafjárhæðir þegar endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluárs liggja fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum. Ef í ljós kemur við endurreikning að bætur hafi verið ofgreiddar ber Tryggingastofnun að innheimta þær samkvæmt 55. gr. laga um almannatryggingar. Sú meginregla er ítrekuð í 9. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags.

Samkvæmt gögnum málsins gerði upphafleg tekjuáætlun kæranda fyrir árið 2018 ráð fyrir launatekjum að fjárhæð 826.740 kr., iðgjaldi í lífeyrissjóð til frádráttar að fjárhæð 33.072 kr., lífeyrissjóðstekjum að fjárhæð 1.237.704 kr. og vöxtum og verðbótum að fjárhæð 1.176 kr. Kærandi fékk greitt miðað við þá áætlun frá 1. janúar til 30. apríl 2018. Í leiðréttri tekjuáætlun, dags. 3. apríl 2018, var einungis gert ráð fyrir lífeyrissjóðstekjum að fjárhæð 1.160.794 kr. Kærandi fékk greitt miðað við hana frá 1. maí til 31. maí 2018. Í leiðréttri tekjuáætlun frá 3. maí 2018 var einungis gert ráð fyrir lífeyrissjóðstekjum að fjárhæð 1.212.000 kr. Kærandi fékk greitt miðað við þá áætlun frá 1. júní til 30. september 2018. Tryggingastofnun leiðrétti tekjuáætlun kæranda 11. september 2018 til samræmis við upplýsingar úr staðgreiðsluskrá Ríkisskattstjóra. Samkvæmt þeirri tekjuáætlun var gert ráð fyrir launatekjum að fjárhæð 4.514.400 kr., iðgjaldi í lífeyrissjóð til frádráttar að fjárhæð 180.576 kr., lífeyrissjóðstekjum að fjárhæð 1.212.000 kr. og vöxtum og verðbótum að fjárhæð 1.176 kr.

Samkvæmt upplýsingum úr skattframtali kæranda vegna tekjuársins 2018 reyndust launatekjur hans vera 1.382.400 kr. en 1.327.131 kr. að frádregnum iðgjöldum í lífeyrissjóð. Þá reyndust lífeyrissjóðstekjur vera 1.184.403 kr. og vextir og verðbætur vera 72 kr. Endurreikningur Tryggingastofnunar á tekjutengdum bótagreiðslum vegna ársins 2018 leiddi í ljós að kæranda hefðu verið vangreiddar bætur að fjárhæð 345.775 kr., að teknu tilliti til afdreginnar staðgreiðslu. Niðurstaða útreikningsins var því sú að kærandi ætti inneign til útborgunar að fjárhæð 345.775 kr.

Samkvæmt framangreindu reyndust tekjur kæranda vera hærri en gert hafði verið ráð fyrir í tekjuáætlunum sem miðað var við á tímabilinu 1. janúar 30. september 2018. Aftur á móti voru tekjur kæranda mun lægri en gert var ráð fyrir í tekjuáætlun sem miðað var við á tímabilinu 1. október til 31. desember 2018. Ástæða þess að bætur voru vangreiddar til kæranda er að rekja til þess að tekjur kæranda vegna ársins í heild voru vanáætlaðar í tekjuáætlunum. Tryggingastofnun greiðir tekjutengdar bætur á grundvelli upplýsinga úr tekjuáætlun viðkomandi greiðsluþega. Þá ber stofnuninni lögum samkvæmt að endurreikna bætur með hliðsjón af upplýsingum skattyfirvalda.

Að framangreindu virtu er það niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að staðfesta endurreikning Tryggingastofnunar ríkisins á tekjutengdum bótum ársins 2018.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um endurreikning og uppgjör á tekjutengdum bótum A, á árinu 2018, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

                                                                                                                                                                                            Rakel Þorsteinsdóttir

 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum