Hoppa yfir valmynd
1. júní 2021 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Undirbúningur Tækniseturs á miklu skriði: Þórdís Kolbrún skipar stjórn

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra hefur skipað stjórn Tækniseturs og stendur undirbúningur fyrir stofnun þess yfir. 

Í kjölfar niðurlagningar Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og samkvæmt nýjum lögum um opinberan stuðning við nýsköpun er kveðið á um nýtt Tæknisetur byggt á grunni Efnis-, líf- og orkutækni, Rannsóknastofu byggingariðnaðarins og frumkvöðlaseturs Nýsköpunarmiðstöðvar á sviði tæknigreina. Tæknisetur verður rekið sem óhagnaðardrifið félag sem á ekki í samkeppni við einkafyrirtæki og stofnanir og verður alfarið í eigu ríkisins, þar sem ríkið leggur fram hluta af tækjabúnaði og eignum Nýsköpunarmiðstöðvar sem stofnframlag. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið mun leggja félaginu til árlegt fjárframlag gegnum þjónustusamninga. 

„Með stofnun hins nýja tækniseturs rætist gamall draumur og hér er tekið mikilvægt skref í átt að auknum og bættum stuðningi við íslenska hátæknisprota, auknu samstarfi um betri nýtingu tæknilegra innviða og aukinn stuðning við háskóla og atvinnulíf hvað varðar hagnýtar rannsóknir, þjónustumælingar og greiningar um allt land. Þetta eykur einnig samtalið milli atvinnulífsins og háskólasamfélagsins, segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.

Stjórn Tækniseturs skipa 

  • Margrét Ormslev Ásgeirsdóttir, fjárfestingastjóri hjá Brunni Ventures og frumkvöðull, stjórnarformaður
  • Sigurður Magnús Garðarsson, forseti Verkfræði og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands
  • Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík
  • Ragnheiður Inga Þórarinsdóttir, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands
  • Þór Sigfússon, stjórnarformaður Sjávarklasans 
  • Varamenn eru þau Ólöf Vigdís Ragnarsdóttir verkefnisstjóri á Vísinda- og nýsköpunarsviði Háskóla Íslands og Alexander Jóhönnuson frumkvöðull

Samstarf háskóla, atvinnulífs og ríkis

Viljayfirlýsing um Tæknisetrið var undirrituð á vormánuðum milli Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, Háskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík. Þar lýsa þessir aðilar  yfir vilja sínum til að leggja þann búnað sem stofnanirnar eiga hlut í með forvera Tækniseturs, Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, inn í Tæknisetur.  

Tæknisetrið verður jafnframt vettvangur fyrir byggingarannsóknir. Þær verða efldar með sérstökum framlögum í samráði við félagsmálaráðuneytið og unnið er að því að útgáfa fræðsluefnis um mannvirkjagerð flytjist á Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Starfsemin verður til húsa í Keldnaholti til að byrja með en stefnt er að því að flytja starfsemina í Vatnsmýrina innan tveggja ára og taka þannig þátt í uppbyggingu svæðisins sem kjarna vísinda- og nýsköpunarstarfs á Íslandi. Samþjöppun tengdrar starfsemi háskóla, frumkvöðlastarfsemi og atvinnulífs er þekkt víða um heim og er þá gjarnan vísir að enn frekara samstarfi. Aukin nálægð fyrirtækja og stofnana er til þess fallin að auka aðgengi og tengslamyndun með þekkingarsköpun og virðisauka að leiðarljósi. 

 

Svafa Grönfeldt ráðgjafi um alþjóðlegt samstarf

Mikilvægt er að Tækniseturs taki þátt í öflugu alþjóðlegu samstarfi á sviði tæknigreina. Svafa Grönfeldt prófessor við Massachusetts Institute of Technology (MIT) í Boston, verður Tæknisetri til ráðgjafar um alþjóðlegt samstarf og Tæknisetrið mun gerast aðili að samstarfssamningi sem er nú er í gildi milli Industrial Liason Program (ILP) hjá MIT, íslensks atvinnulífs og Háskólans í Reykjavík.  Samningurinn  felur í sér að Tæknisetur hafi aðgengi að sérfræðiþekkingu innan MIT, ýmist gegnum bein samskipti eða í gegnum sérstaka viðburði á þeirra vegum.

 

Hér má finna heimasíðu Tækniseturs: www.taeknisetur.is

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin
9. Nýsköpun og uppbygging

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum