Hoppa yfir valmynd
25. nóvember 2021 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 607/2021 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 25. nóvember 2021 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 607/2021

í stjórnsýslumáli nr. KNU21100061

 

Beiðni [...]um endurupptöku

 

I.       Málsatvik

Þann 25. mars 2021 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 18. janúar 2021, um að taka umsókn einstaklings er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Palestínu (hér eftir kærandi), um alþjóðlega vernd á Íslandi ekki til efnismeðferðar og vísa honum frá landinu. Niðurstaða kærunefndar var birt kæranda þann 29. mars 2021.

Þann 24. október 2021 barst kærunefnd beiðni kæranda um endurupptöku. Upplýsingar um málsmeðferð í máli kæranda bárust kærunefnd frá Útlendingastofnun þann 29. október 2021 og stoðdeild ríkislögreglustjóra þann 15. nóvember 2021. Athugasemdir bárust frá kæranda þann 17. nóvember 2021.

Af greinargerð kæranda má ætla að beiðni hans um endurupptöku málsins byggi á 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

II.        Málsástæður og rök kæranda

Beiðni kæranda um endurupptöku málsins byggir á því að meira en 12 mánuðir séu nú liðnir frá því að hann lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi, en tafir á afgreiðslu málsins séu ekki á hans ábyrgð. Með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 skuli umsókn kæranda því tekin til efnismeðferðar hér á landi. Kærandi vísar til úrskurðar kærunefndar í máli nr. KNU17090040, dags. 24. október 2017, máli sínu til stuðnings.

III.      Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga á aðili máls rétt á því að mál sé tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Í 1. mgr. 40. gr. laga um útlendinga kemur fram að flóttamaður skv. 37. gr. laganna, sem er hér á landi eða kemur hér að landi, hefur samkvæmt umsókn rétt á að fá hér alþjóðlega vernd. Stjórnvöldum er þó heimilt, á grundvelli a-, b- og c-liðar 1. mgr. 36. gr. laganna, að taka umsókn ekki til efnismeðferðar við þær aðstæður sem tilgreindar eru í umræddum stafliðum.

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Af orðalagi 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga leiðir að umrætt 12 mánaða tímabil hefst þegar umsækjandi leggur fyrst fram umsókn um alþjóðlega vernd hjá stjórnvöldum. Þá hefur í úrskurðum kærunefndar verið lagt til grundvallar að tímabilinu ljúki þegar endanleg niðurstaða stjórnvalda er framkvæmd með flutningi umsækjanda til viðtökuríkis eða þegar kærandi fer úr landi sjálfviljugur eftir að ákvörðun í máli hans hefur verið tekin.

Kærunefnd telur að túlka beri 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga á þann hátt að þó að 12 mánaða fresturinn sé liðinn verði umsókn ekki tekin til efnismeðferðar af þeim sökum ef tafir á málsmeðferð eða flutningi verði fyrst og fremst raktar til athafna eða athafnaleysis umsækjanda sem hann ber sjálfur ábyrgð á, nema þær tafir hafi verið óverulegar og ljóst er að hægt hefði verið að flytja kæranda áður en 12 mánaða fresturinn var liðinn.

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 24. október 2020 og rann því umræddur 12 mánaða frestur út á miðnætti þann 24. október 2021. Kemur því til skoðunar hvort tafir á afgreiðslu umsóknar kæranda séu á ábyrgð hans sjálfs, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þann 28. október 2021 óskaði kærunefnd útlendingamála eftir upplýsingum frá Útlendingastofnun og stoðdeild ríkislögreglustjóra. Sneri fyrirspurn nefndarinnar að því hvort tafir hefðu orðið á meðferð umsóknar kæranda og ef svo væri, hvort tafir væru á ábyrgð kæranda, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í svari Útlendingastofnunar sem barst þann 29. október 2021, kemur fram að Útlendingastofnun líti ekki svo á að kærandi hafi tafið mál sitt. Stofnunin hafi hins vegar fengið upplýsingar frá stoðdeild ríkislögreglustjóra um að kærandi hafi neitað að sýna samstarfsvilja í tengslum við framkvæmd flutnings.

Í svari frá stoðdeild sem barst þann 15. nóvember 2021, kemur fram að verkbeiðni hafi borist stoðdeild frá Útlendingastofnun þann 7. apríl 2021. Þann 8. apríl 2021 hafi verið haft samband við kæranda símleiðis en hann ekki svarað. Kærandi hafi hringt til baka sama dag og greint frá því að skilja ekki ensku nægilega vel og því óskað eftir túlki. Þann 21. apríl 2021 hafi verið haft samband við kæranda og hann boðaður í viðtal í Bæjarhraun 18 þann 23. apríl 2021. Í því viðtali hafi kærandi greint frá því að hann vildi ekki fara til Grikklands og ekki fara í Covid-19 sýnatöku. Þá kvaðst kærandi ekki vilja vinna með íslenskum stjórnvöldum. Þann 7. maí 2021 hafi stoðdeild rætt við kæranda og honum tjáð að hann ætti að mæta í Covid-19 sýnatöku mánudaginn 10. maí 2021, klukkan 8:00. Kæranda var greint frá því að hann yrði sóttur af stoðdeild og farið með hann til Grikklands gegnum Amsterdam þann 11. maí 2021 en búið væri að ganga frá farmiðanum. Kærandi hafi greint frá því að ætla hvorki að fara í Covid-19 sýnatöku né til Grikklands. Þann 10. maí 2021 hafi kærandi svo ekki verið í búsetuúrræði sínu þegar stoðdeild kom á staðinn auk þess sem hann hafi ekki látið ná í sig. Því hafi verið óskað eftir endurgreiðslu farmiða. Kærandi hafi svo verið skráður í tilkynningarskyldu frá 19. maí til 2. júní 2021 og hann mætt í öll skiptin. Ekki hafi verið haft frekar samband við kæranda þar sem afstaða hans hafi legið fyrir.

Með tölvubréfi kærunefndar, dags. 15. nóvember 2021, var kærandi upplýstur um afstöðu Útlendingastofnunar og stoðdeildar og gefinn frestur til að koma að andmælum í samræmi við 13. gr. stjórnsýslulaga. Andmæli kæranda bárust kærunefnd þann 17. nóvember 2021. Í svari kæranda vísar hann til þess að engin gögn hafi verið lögð fram af hálfu stoðdeildar til þess að sýna fram á það með ótvíræðum hætti að kærandi hafi verið sannanlega boðaður í sýnatöku þann 10. maí 2021. Þá hafi ekki verið lögð fram gögn um kaup eða afbókun farmiðans auk þess sem engin gögn hafi verið lög fram til þess að sanna að kærandi hafi ekki látið ná í sig þann 10. maí 2021. Því sé ekki hægt að fullyrða að kærandi hafi verið meðvitaður um meinta sýnatöku sem hafi átt að fara fram þann 10. maí 2021, en tilviljun ein gæti útskýrt meinta fjarveru hans þann dag. Þá áréttar kærandi að hann hafi mætt í öll skiptin sem hann var settur í tilkynningarskyldu. Kærandi tekur fram að um sé að ræða gögn sem stoðdeild ætti hæglega að geta lagt fram máli sínu til stuðnings. Allt að einu sé eingöngu lögð fram einhliða frásögn lögreglufulltrúa en kærandi telur að slík sönnun hafi takmarkað sönnunargildi. Þá vísar kærandi til úrskurðar kærunefndar í máli nr. KNU21080008 frá 22. september 2021 í þessu samhengi. Kærandi telur að stoðdeild hafi augljóslega verið að kanna afstöðu hans til fyrirhugaðs flutnings með almennum hætti við meðferð málsins en engin gögn hafi verið lögð fram sem styðji frásögn stoðdeildar. Af svörum stoðdeildar megi ráða að ekki hafi verið gerðar tilraunir til að framkvæma ákvörðun Útlendingastofnunar eftir 10. maí 2021. Stoðdeild hafi því verið aðgerðarlaus í meira en fimm mánuði og því hafi framkvæmdin verið ómarkviss af hálfu stoðdeildar. Kærandi telur það ekki standast skoðun að líta svo á að hann hafi tafið mál sitt með nokkrum hætti, enda hafi kærunefnd áður komist að þeirri niðurstöðu að yfirlýsing þess efnis að vilja ekki undirgangast Covid-19 sýnatöku eða snúa aftur til viðkomandi móttökuríkis, geti ekki eitt og sér talist vera töf á afgreiðslu málsins. Kærandi telur að af svari stoðdeildar megi ráða að ekki hafi verið gerðar frekari tilraunir af þeirra hálfu til að undirbúa flutning á honum og framkvæmdin því ómarkviss af hálfu stoðdeildar. Að auki telur kærandi að meint boðun stoðdeildar í sýnatöku skorti lagastoð. Það hljóti að teljast nauðsynlegt að hafa skýra lagaheimild fyrir slíkri rannsókn, sbr. 113. gr. laga um útlendinga. Þannig sé ekki hægt að leggja meinta boðun til grundvallar við ákvarðanatöku í málinu. Kærandi telur að munnleg yfirlýsing hans um að hann vilji ekki snúa aftur til Grikklands eða undirgangast Covid-19 sýnatöku til þess að gera íslenskum stjórnvöldum kleift að flytja hann þangað, geti ekki heldur tafist töf á afgreiðslu málsins. Vísar kærandi til úrskurðar kærunefndar í máli nr. KNU21070020 frá 26. ágúst 2021 máli sínu til stuðnings.

Af svari stoðdeildar má ráða að þau samskipti sem hafi átt sér stað milli kæranda og stoðdeildar hafi snúið að því að kanna afstöðu kæranda til fyrirhugaðs flutnings til Grikklands auk þess sem kærandi var sérstaklega boðaður til sýnatöku þann 10. maí 2021, klukkan 8:00. Fyrirhugaður flutningur hans úr landi var þann 11. maí 2021.

Kærunefnd tekur fram að flutningur umsækjenda um alþjóðlega vernd sem fengið hafa neikvæða niðurstöðu hér á landi í máli sínu er íþyngjandi ákvörðun og því eðlilegt að umsækjendur séu mótfallnir slíkum flutningi. Líkt og að framan greinir leið 12 mánaða fresturinn í máli kæranda þann 24. október 2021. Ljóst er að kærandi mætti ekki í fyrirhugaða sýnatöku og lýsti þeirri afstöðu sinni að hann vildi ekki fara til Grikklands. Þannig kom kærandi í veg fyrir flutning sinn úr landi og tafði málsmeðferðina. Með háttsemi sinni og skýrum yfirlýsingum gerði hann framkvæmd endanlegrar ákvörðunar á stjórnsýslustigi ómögulega innan tilgreindra tímamarka. Jafnvel þótt slík háttsemi kunni að vera skiljanleg, svo sem að framan greinir, telur kærunefnd ljóst að hún felur í sér tafir af hálfu kæranda enda gerir hún stjórnvöldum ókleift að framkvæma flutning.

Með hliðsjón af framangreindu telur kærunefnd að tafir á afgreiðslu umsóknar kæranda hafi verið á hans ábyrgð, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Af framangreindu leiðir að skilyrði 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er ekki uppfyllt.

Vegna tilvísunar kæranda til úrskurða kærunefndar í málum nr. KNU21070020 frá 26. ágúst 2021 og KNU21080008 frá 22. september 2021, tekur kærunefnd fram að málsatvik eru ósambærileg þar sem framkvæmd stoðdeildar hafi verið metin ómarkviss í umræddum málum en kærunefnd hefur ekki metið framkvæmd stoðdeildar ómarkvissa í fyrirliggjandi máli.

Í ljósi framangreinds er því ekki fallist á að atvik hafi breyst verulega í máli kæranda á þann hátt að hann eigi rétt á endurupptöku á máli sínu, sbr. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga. Endurupptöku á máli hans er þar með hafnað.

 

Úrskurðarorð:

 

Kröfu kæranda er hafnað.

The appellant‘s request is denied.

 

Tómas Hrafn Sveinsson

 

Þorbjörg I. Jónsdóttir                                                            Sindri M. Stephensen

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum