Hoppa yfir valmynd
16. desember 2015 Dómsmálaráðuneytið

Úrskurður nr. 190/2015

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 16. desember 2015 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 190/2015

í stjórnsýslumáli nr. KNU15100004

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 29. september 2015 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 25. september 2015, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um hæli á Íslandi og endursenda hann til Svíþjóðar.

Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsókn hans um hæli til efnislegrar meðferðar.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 1. mgr. 30. gr. laga um útlendinga nr. 96/2002 og barst kæran fyrir lok kærufrests, sbr. 3. mgr. 30. gr. sömu laga.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um hæli á Íslandi þann 3. september 2015. Við leit að fingraförum kæranda í svokölluðum Eurodac gagnagrunni þann 20. ágúst sl., kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í gagnagrunninn af yfirvöldum í Svíþjóð. Þann 2. september 2015 var beiðni um viðtöku kæranda beint til yfirvalda í Svíþjóð, sbr. 2. mgr. 12. gr. reglugerðar evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Þann 10. september 2015 barst svar frá sænskum yfirvöldum þess efnis að þau samþykktu viðtöku kæranda á grundvelli 2. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 15. september 2015 að taka ekki umsókn kæranda um hæli hér á landi til efnismeðferðar og að hann skyldi endursendur til Svíþjóðar. Kærandi kærði ákvörðunina þann 29. september sl. auk þess að óska eftir frestun réttaráhrifa á hinni kærðu ákvörðun á meðan mál hans væri til meðferðar. Fallist var á frestun réttaráhrifa á meðan málið væri til kærumeðferðar með bréfi kærunefndar, dags. 9. október 2015. Greinargerð kæranda barst kærunefndinni 19. nóvember 2015.

Þann 2. desember sl. kom kærandi fyrir kærunefndina og gerði grein fyrir máli sínu, sbr. 5. mgr. 3. gr. b laga um útlendinga. Viðstaddir voru talsmaður kæranda og túlkur.

Kæra þessi hefur hlotið hefðbundna málsmeðferð, gagnaöflun er lokið og er málið hér með tekið til úrskurðar.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar, dags. 25. september 2015, var sú að hælisumsókn kæranda yrði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi og hann skyldi endursendur til Svíþjóðar. Lagt var til grundvallar að Svíþjóð virði ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu og flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna, þar með talið bann við endursendingu til ríkis þar sem líf og frelsi kæranda kynni að vera í hættu (non-refoulement). Því fæli flutningur kæranda til Svíþjóðar ekki í sér brot gegn 1. mgr. 45. gr. laga um útlendinga. Þá var talið að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að ástæða væri til að beita ákvæði 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga. Aðstæður kæranda féllu ekki undir 16. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar og væru ekki slíkar að ástæða væri til að beita 1. mgr. 17. gr. reglugerðarinnar í málinu.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að kærandi vilji ekki fara aftur til Svíþjóðar þar sem hann kveðst hafa eytt þar fimm árum sem réttindalaus maður. Hann hafi ekki búið í húsnæði á vegum yfirvalda og honum hafi ekki verið heimilt að stunda atvinnu í landinu þar sem hann hafi ekki getað framvísað persónuskilríkjum. Í greinargerð er m.a. vísað til frétta síðustu vikna, t.d. af fréttasíðum Dagens Nyheter og Sydsvenskan, þar sem fjallað er um þann húsnæðisvanda í hæliskerfi landsins sem sænsk stjórnvöld standa nú frammi fyrir. Þar komi fram að vegna þess mikla álags sem nú er á sænska hæliskerfinu verði tímabundið eftirlit tekið upp á landamærunum. Einnig að búist sé við um 190.000 hælisleitendum og flóttamönnum til landsins á þessu ári, sem sé fordæmalaus fjöldi. Þá er vísað til yfirlýsingar innanríkisráðherra Svíþjóðar, þar sem fram komi að lögreglan óttist að hættuástand geti skapast í landinu. Einnig að sænska Útlendingastofnunin (s. Migrationsverket) geti ekki lengur tryggt öllum hælisleitendum þak yfir höfuðið og sumir hafi af þessum sökum þurft að gista í tjöldum. Kærandi kveðst ekki hafa haft húsnæði þann tíma sem hann dvaldist í Svíþjóð og fram kemur í greinargerð að gera megi ráð fyrir að yfirvöld í landinu geti ekki séð kæranda fyrir húsnæði, verði hann endursendur til Svíþjóðar. Jafnframt að sænsk stjórnvöld hafi lagt fram beiðni til framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um að önnur ríki sambandsins létti af þeim byrðum, á svipaðan hátt og ítölsk og grísk stjórnvöld hafa nýlega gert. Ennfremur bendir talsmaður á að útlendingahatur hafi gert vart við sig í meira mæli en áður hafi þekkst og vísar þar í íkveikjur í húsnæði hælisleitenda víðsvegar um landið, sem hafi átt sér stað ítrekað undanfarið.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Afmörkun úrlausnarefnis

Fyrir liggur í máli þessu að sænsk stjórnvöld hafa samþykkt viðtöku á kæranda á grundvelli 2. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar.

Úrlausnarefni kærumáls þessa er að skera úr um hvort Útlendingastofnun hafi tekið rétta ákvörðun þegar ákveðið var að taka ekki umsókn kæranda um hæli til efnismeðferðar og vísa honum til Svíþjóðar. Úrlausnarefni málsins er afmarkað við það hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn kæranda um alþjóðlega vernd.

Lagarammi

Í máli þessu gilda aðallega ákvæði laga um útlendinga nr. 96/2002, með síðari breytingum, ákvæði reglugerðar nr. 53/2003 um útlendinga, með áorðnum breytingum og ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Auk þess ber að taka mið af ákvæðum Dyflinnarreglugerðarinnar en Ísland skuldbatt sig til að fylgja henni með samningi Íslands, Noregs og Evrópusambandsins frá 19. janúar 2001, um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um hæli sem lögð er fram í aðildarríki eða á Íslandi eða í Noregi. Í III. kafla hennar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á hælisumsókn. Jafnframt ber að líta til annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Í d-lið 1. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga kemur fram að stjórnvöld geti, með fyrirvara um ákvæði 45. gr. laganna, synjað að taka til efnismeðferðar hælisumsókn ef krefja megi annað ríki sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar um að taka við umsækjanda (Dyflinnarmál). Þó kemur fram í 2. mgr. 46. gr. a sömu laga að ekki skuli endursenda flóttamann til annars ríkis hafi hann slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða sérstakar ástæður mæli annars með því. Samkvæmt 1. mgr. 45. gr. laga um útlendinga má einnig ekki senda útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir sem gætu leitt til þess að hann skuli teljast flóttamaður eða ef ekki er tryggt að hann verði ekki sendur til slíks svæðis. Samsvarandi verndar skal útlendingur njóta sem vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Við mat á því hvort beita skuli þessum ákvæðum í Dyflinnarmálum þarf einkum að kanna hvort aðstæður hælisleitenda í því ríki, sem endursenda á hælisleitanda til samkvæmt Dyflinnarreglugerðinni, kunni að brjóta gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Sé svo er óheimilt að senda hælisleitandann þangað og skal þá taka hælisumsókn viðkomandi til efnismeðferðar hér, sbr. einnig undanþágureglu 1. mgr. 17. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Eftir atvikum þarf enn fremur að skoða hvort slíkur ágalli sé á málsmeðferð þess ríkis, sem endursenda á til, að það brjóti í bága við 13. gr. mannréttindasáttmálans.

Aðstæður hælisleitenda og málsmeðferð í Svíþjóð

Samkvæmt framkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu í málum er varða Grikkland og Ítalíu getur sú staða komið upp að óheimilt sé að endursenda hælisleitendur til einstakra ríkja vegna ástands í viðkomandi móttökuríki. Aðildarríki mannréttindasáttmálans verða að vera meðvituð um alvarlega galla við meðferð hælisumsókna eða í móttöku hælisleitenda í því aðildarríki sem endursenda skal til á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Verður því að skoða aðstæður hælisleitenda og málsmeðferð í Svíþjóð.

Kærunefnd útlendingamála hefur farið yfir skýrslur og gögn um aðstæður og málsmeðferð í Svíþjóð, sbr. m.a. Asylum Information Database, Country Report – Sweden (European Council on Refugees and Exiles, apríl 2015); Submission by the United Nations High Commissioner for Refugees for the Office of the High Commissioner for Human Rights‘ Compilation Report, Universal Periodic Review: SWEDEN (UNHCR, júní 2014); Sweden 2014 Human Rights Report (United States Department of State, 25. júní 2015); Amnesty International Report 2014/2015, The State of World‘s Human Rights (Amnesty International, 2015); upplýsingar og tölfræði af vefsíðu sænsku Útlendingastofnunarinnar, migrationsverket.se; frétt af vefsíðu the Washington Post, Sweden is running out of housing for refugees. So it‘s pitching tents (20. október 2015); frétt af vefsíðu Reuters, Sweden says can no longer guarantee housing for new refugees (6. nóvember 2015); frétt af vefsíðu the Telegraph, Sweden conceals refugee centre addresses after attacks (28. október 2015) og frétt af vefsíðu Dagens nyheter, Migrationsverket: Flyktingar kan få sova på gatan (19. nóvember 2015).

Hælisleitendur í Svíþjóð sem fengið hafa endanlega niðurstöðu um synjun í hælismáli sínu hjá Útlendingastofnun og þeim dómstólum sem taka ákvarðanir í málum hælisleitenda í landinu, eiga þess kost að fara fram á endurupptöku á hælismáli sínu hjá Útlendingastofnun. Synjun á endurupptöku má kæra og engin takmörk eru á því hversu oft hælisleitandi getur óskað eftir endurupptöku í máli sínu. Kærandi nýtur aðstoðar lögmanns fái hann endurskoðun á máli sínu hjá Útlendingastofnun.

Hælisleitendur fá framfærslu frá yfirvöldum og veltur upphæðin aðallega á búsetu hælisleitanda. Þeir hælisleitendur sem ekki geta staðfest á sér deili með viðeigandi gögnum, eiga þess kost að fá tímabundið atvinnuleyfi og vinna í styttri tíma í senn á hverjum vinnustað, þ.e. að hámarki í þrjá mánuði á hverjum vinnustað.

Samkvæmt fréttum síðustu vikna jókst straumur hælisleitenda til Svíþjóðar töluvert í október og nóvember á þessu ári og mun fleiri komu til landsins en gert var ráð fyrir í haustbyrjun. Til að bregðast við húsnæðisskorti í kjölfarið, hafa verið reistar upphitaðar tjaldbúðir fyrir hælisleitendur. Einnig eru áform um að húsnæði á vegum Útlendingastofnunar verði nýtt fyrir enn fleiri einstaklinga, þ.e. fleiri flytja inn í húsakosti sem þegar eru í notkun. Þá er opnun nýrra móttökumiðstöðva í bígerð. Almenningur mun ekki hafa aðgang að upplýsingum um staðsetningu móttökumiðstöðva fyrir hælisleitendur í kjölfar íkveikja í móttökumiðstöðvum síðastliðna mánuði. Nú í lok nóvember og byrjun desember hefur töluvert dregið úr fjölda hælisumsókna í Svíþjóð. Samkvæmt tölfræði sænsku Útlendingastofnunarinnar hefur umsóknum fækkað úr rúmlega 9500 umsóknum á einni viku í byrjun nóvember í um 5100 umsóknir fyrstu vikuna í desember.

Með vísan til framangreinds hefur athugun kærunefndar á aðstæðum hælisleitenda í Svíþjóð ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að líta svo á að aðstæður eða móttökuskilyrði hælisleitenda þar í landi séu þess eðlis að hætta sé á að endursending kæranda til Svíþjóðar brjóti í bága við 1. mgr. 45. gr. laga um útlendinga eða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, verði hann sendur þangað. Þá benda öll gögn til þess að kæranda séu tryggð úrræði til að leita réttar síns í Svíþjóð bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Ennfremur er haft til hliðsjónar að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur ekki lagst gegn endursendingu hælisleitenda til Svíþjóðar á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar.

Sérstök tengsl við landið eða aðrar sérstakar ástæður skv. 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga nr. 96/2002

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 18. september síðastliðinn ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga. Þá benda gögn ekki til þess að aðstæður hans séu að öðru leyti svo sérstakar að ákvæði 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga eigi við. Verður því ekki talið að ástæða sé til að taka mál kæranda til efnismeðferðar á grundvelli sérstakra tengsla við Ísland eða annarra sérstakra ástæðna.

Samantekt

Í máli þessu hafa sænsk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um hæli á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls framangreinds er fallist á að Útlendingastofnun hafi verið rétt að synja um efnismeðferð á umsókn kæranda um hæli hér á landi og ákveða að senda kæranda til Svíþjóðar með vísan til d-liðar 1. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga.

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið er það niðurstaða kærunefndar útlendingamála að staðfesta beri ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 33. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá því að beiðni um það er synjað. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því ákvörðun var tekin.

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar í máli er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Hjörtur Bragi Sverrisson, formaður

Anna Valbjörg Ólafsdóttir Pétur Dam Leifsson

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum