Hoppa yfir valmynd
10. september 2019 Matvælaráðuneytið

Samstarfsyfirlýsing um sjávarútvegs- og fiskeldismál undirrituð

Samstarfsyfirlýsing um sjávarútvegs- og fiskeldismál undirrituð - myndGunnar Geir Vigfússon

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra, og T. Armstrong Changsan, sendiherra Indlands á Íslandi, hafa undirritað samstarfsyfirlýsingu um sjávarútvegs- og fiskeldismál.

Markmið yfirlýsingarinnar er að efla samstarf og samvinnu á sviði rannsóknar og þróunar í sjávarútvegsmálum, þá sérstaklega að ýta undir samstarf íslenskra og indverskra fyrirtækja á þessum vettvangi. Í samstarfsyfirlýsingunni er vikið að mikilvægi fiskveiðistjórnunnar, sjálfbærra veiða og umhverfissjónarmiða sem og fullnýtingu afurða og hámörkun verðmæta þeirra.

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra:

„Í þessu samstarfi geta falist mikilvæg tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki til að hasla sér völl á þeim sístækkandi markaði sem Indland er. Um leið er þetta tækifæri til að miðla af reynslu Íslendinga þegar að kemur að hagkvæmri fiskveiðistjórnun, sjálfbærum veiðum og fullnýtingu afurða.“

  • Samstarfsyfirlýsing um sjávarútvegs- og fiskeldismál undirrituð - mynd úr myndasafni númer 1

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

Heimsmarkmið Sþ: 14 Líf í vatni
 Heimsmarkmið SÞ: 13 Aðgerðir í loftslagsmálum

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum