Hoppa yfir valmynd
10. júní 2022 Matvælaráðuneytið

Niðurstöður um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum fyrir tímabilið júlí til desember 2022

Föstudaginn 3. júní síðastliðinn rann út tilboðsfrestur í tollkvóta á blómum vegna seinni hluta ársins 2022, sbr. reglugerð nr. 1294/2021.

Fjórar umsóknir bárust um innflutning á blómstrandi plöntum með knúppum eða blómum þó ekki kaktusar, úr tollskrárnúmerum (0602.9081-9083 og 0602.9088), samtals 5.800 stk. Eitt tilboð barst, samtals 1.000 stk., á meðalverðinu 92 kr./stk. Hæsta boð var 92 kr./stk. en lægsta boð var 92 kr./stk. Tilboði var tekið frá einu fyrirtæki. Til úthlutunar voru 1.650 stk.

Fjórar umsóknir bárust um innflutning á pottaplöntum til og með 1 metri á hæð, þó ekki kaktusar og þykkblöðungar og plöntur af ættkvíslinni Bromilea og plönturnar Erica Gracilis og Calluna í tollskrárnúmeri (0602.9093), samtals 7.520 stk. Eitt tilboð barst samtals 800 stk., á meðalverðinu 92 kr./stk.  Hæsta boð var 92 kr./stk. en lægsta boð var 92 kr./stk. Tilboði var tekið frá einu fyrirtæki. Til úthlutunar voru 2.160 stk.

Þrjár umsóknir bárust um innflutning á tryggðablómum úr tollskrárnúmeri (0603.1400), samtals 15.000 stk. Tvö tilboð bárust, samtals 13.000 stk., á meðalverðinu 61 kr./stk.  Hæsta boð var 62 kr./stk. en lægsta boð var 56 kr./stk. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 6.500 stk. á meðalverðinu 62 kr./stk.

Fjórar umsóknir bárust um innflutning á afskornum blómum og blómknöppum sem notað er í vendi…. úr tollskrárnúmerum (0603.1903, 0603.1906-1908, 0603.1911-1918 og 0603.1999), samtals 208.750 stk. Tvö tilboð bárust, samtals 178.750 stk., á meðalverðinu 53 kr./stk.  Hæsta boð var 62 kr./stk. en lægsta boð var 41 kr./stk. Tilboði var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 118.750 stk. á meðalverðinu 56 kr./stk.

Matvælaráðuneytið hefur úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða þeirra:

Blómstrandi pottaplöntur júlí - desember 2022

Magn (stk)

Tilboðsgjafi

   1.000

Grænn markaður ehf

 

Aðrar pottaplöntur júlí – desember 2022

Magn (stk)

Tilboðsgjafi

800

Grænn markaður ehf

 

Tryggðablóm júlí – desember 2022

Magn (stk)

Tilboðsgjafi

                   3.380

Grænn markaður ehf

                   3.120

Samasem ehf

 

Afskorin blóm júlí - desember 2022

Magn (stk)

Tilboðsgjafi

                  60.000

Grænn markaður ehf

                  58.750

Samasem ehf

 

Reykjavík, 9. júní 2022  

Matvælaráðuneytið

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum