Hoppa yfir valmynd
17. febrúar 2020 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 49/2020 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 17. febrúar 2020 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 49/2020

í stjórnsýslumáli nr. KNU19100070

 

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 22. október 2019 kærði einstaklingur er kveðst heita […], vera fæddur […] og vera ríkisborgari Tajikistan (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 7. október 2019, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.

Þess er krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnislegrar meðferðar hér á landi með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og 2. mgr. 42. gr. sömu laga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.            Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 6. ágúst 2019. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, þann sama dag, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum fjölda Evrópuríkja, þ. á m. Hollandi. Þann 15. ágúst 2019 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda í Hollandi, sbr. b-lið 1. mgr. 18. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá hollenskum yfirvöldum, dags. 17. ágúst 2019, samþykktu þau viðtöku kæranda á grundvelli d-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 7. október 2019 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 8. október 2019 og kærði kærandi ákvörðunina þann 22. október 2019 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 31. október 2019 ásamt fylgigögnum. Viðbótargögn bárust kærunefnd þann 27. og 30. janúar 2020.

III.           Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kom fram að hollensk stjórnvöld bæru ábyrgð á meðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Umsóknin yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Hollands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður væru fyrir hendi þannig að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Hollands.

IV.          Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að hann hafi í viðtölum hjá Útlendingastofnun m.a. greint frá því að hann sé við slæma heilsu, eigi við svefnerfiðleika, einbeitingarskort og stam að stríða auk þess sem hann upplifi hræðslu og kvíða. Þá kvaðst hann ekki vilja snúa aftur til Hollands þar sem stjórnvöld þar í landi hafi ekki skoðað mál hans nægilega vel og sent hann aftur til Lúxemborgar sem hafi í kjölfarið leitt til brottvísunar hans til Rússlands.

Kærandi gerir athugasemdir við hina kærðu ákvörðun Útlendingastofnunar. Telji kærandi að Útlendingastofnun hafi ekki rannsakað einstaklingsbundnar aðstæður hans með fullnægjandi hætti heldur látið nægja að vísa með almennum hætti í skýrslur um ástand mála í Hollandi. Kærandi hafi lýst andlegri heilsu sinni sem slæmri og m.a. greint frá minnistapi og stami. Hann hafi fengið mikla sálfræðimeðferð hér á landi í formi reglulegra sálfræðitíma og lyfjatöku. Rof á umræddri sálfræðimeðferð hefði neikvæð áhrif á heilsu kæranda og þann árangur sem hafi náðst. Í viðtali á Göngudeild sóttvarna hafi kærandi greint frá því að hann hafi undirgengist aðgerð sem framkvæmd hafi verið í kafbát þar sem óþekktum hlut hafi verið komið fyrir í höfði hans. Vegna framangreinds telji kærandi mikilvægt að gengið sé úr skugga um að hann eigi ekki við alvarleg andleg veikindi að stríða. Hvað aðstæður í Hollandi varðar vísar kærandi til þess að mikið álag sé á hæliskerfinu þar í landi og að varðhaldsmiðstöðvar fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd líkist fangelsum auk þess sem þar tíðkist valdbeiting á borð við einangrunarvist og notkun handjárna. Varðhaldi sé einnig beitt of oft og ekki eingöngu sem neyðarúrræði. Kærandi kveði að umræddar aðstæður myndu hafa slæm áhrif á þann kvíða, þunglyndi og svefnleysi sem hann glími við. Þá telji kærandi að Útlendingastofnun hafi ekki útvegað honum viðeigandi læknisþjónustu áður en ákvörðun hafi verið tekin í máli hans. Lýsing sem kærandi hafi gefið á andlegri heilsu sinni á Göngudeild sóttvarna hafi verið lýst sem „lélegri sögu“ af hálfu heilbrigðisstarfsmanns þar. Samkvæmt rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 sem áréttuð sé í 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga skuli Útlendingastofnun afla nauðsynlegra og aðgengilegra upplýsinga við meðferð máls. Þá skuli stofnunin tryggja að einstaklingsbundin greining á því hvort kærandi teljist vera einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga fari fram, sbr. 1. mgr. 25. gr. sömu laga.

Kærandi byggir á því að íslenskum stjórnvöldum beri að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnislegrar meðferðar þar sem sérstakar ástæður séu uppi í máli hans, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í þeim efnum fjallar kærandi almennt um og gerir grein fyrir inntaki og túlkun á ákvæðinu, m.a. með hliðsjón af lögskýringargögnum og fyrri úrskurðum kærunefndar útlendingamála. Þá gerir kærandi athugasemd vegna skorts á lagastoð reglugerðar nr. 276/2018, um breytingar á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 er varða framkvæmd 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Telji kærandi að reglugerðinni skuli ekki beitt í tilvikum þar sem hún kveði á um ríkari kröfur en ákvæði laga um útlendinga. Vekur kærandi athygli á því að í 32. gr. a umræddrar reglugerðar séu aðeins sett fram viðmið í dæmaskyni sem geti ekki komið í stað heildarmats á einstaklingsbundnum aðstæðum hans. Kærandi telji margt í máli hans benda til þess að hann sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga, þ. á m. vegna minnistaps. Hann sé þ.a.l. einnig í viðkvæmri stöðu skv. 2. mgr. 36. gr. sömu laga. Þá séu miklar líkur á því að staða kæranda verði mun síðri en staða almennings í Hollandi og að flutningur þangað muni hafa í för með sér slæmar afleiðingar fyrir hann. Með tilliti til framangreinds beri íslenskum stjórnvöldum að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnislegrar meðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá byggir kærandi kröfu sína um efnislega meðferð á umsókn hans á því að endursending til Hollands muni fela í sér brot gegn grundvallarreglu þjóðarréttar um non-refoulement eða bann við því að endursenda fólk þangað sem líf þess eða frelsi kann að vera í hættu skv. 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, sbr. 42. gr. sömu laga.

V.            Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef krefja má annað ríki, sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli samninga sem Ísland hefur gert um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram hér á landi eða í einhverju samningsríkjanna, um að taka við umsækjanda. Í samræmi við samning ráðs Evrópusambandsins og Íslands og Noregs um þátttöku hinna síðarnefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna samþykkti Ísland áðurnefnda Dyflinnarreglugerð, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 1/2014.

Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Ábyrgð Hollands á umsókn kæranda er byggð á d-lið 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar þar sem kærandi hafi fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd þar í landi. Samkvæmt framansögðu er heimilt að krefja hollensk stjórnvöld um að taka við kæranda, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Kærandi er […] ára karlmaður sem er staddur einsamall hér á landi. Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun m.a. þjást af kvíða, eiga við vandamál með minni að stríða auk þess að sofa illa. Í framlögðum heilsufarsgögnum kemur fram að kærandi hafi upplifað svefnleysi ásamt því að hann sé með væga kviðverki og hafi hann fengið ávísað lyfjum vegna þessa, sbr. samskiptaseðill frá Heilsugæslunni í Keflavík, dags. 29. ágúst 2019. Þá kemur fram að kærandi hafi verið hraustlegur í heilsufarsviðtali á Göngudeild sóttvarna þann 19. september 2019 og að hann telji fyrrnefnda svefnerfiðleika vera vegna höfuðverks sem sé afleiðing aðgerðar sem hann hafi undirgengist í Rússlandi. Í aðgerðinni hafi annað hvort óþekktum hlut verið komið fyrir í höfði hans eða hluti af heila hans verið fjarlægður. Að auki greindi kærandi frá því að hann hafi áður verið greindur með lifrarbólgu C. Niðurstöður úr mótefnisprófi sem framkvæmt var á Göngudeild sóttvarna hafi þó ekki gefið tilefni til frekari aðgerða. Þá kemur fram í samskiptaseðli frá Göngudeild sóttvarna varðandi sálfræðiviðtal sem kærandi sótti, dags. 30. október 2019, að kærandi hafi greint frá sjálfsvígshugsunum.

Kærunefnd hefur ekki borist frekari gögn um heilsufar kæranda en hér hefur verið vísað til. Kærunefnd tekur fram að kæranda var leiðbeint í viðtali hjá Útlendingastofnun, þann 22. ágúst 2019, um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem kærandi telji hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls hans hjá Útlendingastofnun. Kæranda var jafnframt leiðbeint með tölvupósti kærunefndar, dags. 22. janúar 2020, um framlagningu frekari gagna í málinu og bárust frekari gögn um heilsufar 27. og 30. janúar sl. Þá greindi kærandi frá því þann 6. febrúar sl. að öll tiltæk heilsufarsgögn hafi verið lögð fram í máli hans. Með vísan til fyrrgreindrar málsmeðferðar og þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu telur kærunefnd að málið sé nægjanlega upplýst með tilliti til heilsufars.

Aðstæður í Hollandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd í Hollandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  •         Asylum Information Database, National Country Report: The Netherlands (European Council on Refugees and Exiles, 26. mars 2019);
  •         Amnesty International Report 2017/18 - Netherlands (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
  •         Freedom in the World 2019 - Netherlands (Freedom House, 4. febrúar 2019);
  •       World Report 2020 - European Union (Human Rights Watch, 14. janúar 2020);
  •        2018 Country Reports on Human Rights Practices - Netherlands (U.S. Department of State, 13. mars 2019);
  •        Asylum Information Database, Housing out of reach. The reception of refugees and asylum seekers in Europe (European Council on Refugees and Exiles, 29. maí 2019);
  •        ECRI Report on the Netherlands (fifth monitoring cycle) (European Commission against Racism and Intolerance, 4. júní 2019);
  •        Upplýsingar af vefsíðu hollenska öryggis- og dómsmálaráðuneytisins, (www.government.nl/topics/asylum-policy);
  •            Upplýsingar af vefsíðu COA (The Central Agency for the Reception of Asylum Seekers, www.coa.nl/en) og
  •         Upplýsingar af vefsíðu hollensku útlendingastofnunarinnar (www.ind.nl/en).

Í framangreindum skýrslum kemur fram að þegar umsækjendur um alþjóðlega vernd eru sendir til Hollands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar þá býðst þeim að leggja fram umsókn um alþjóðlega vernd þegar við komu til landsins. Á Schiphol flugvelli í Hollandi er umsóknarmiðstöð (e. Application Centre) þar sem skráning umsókna um alþjóðlega vernd fer fram og er hún í höndum löggæsluyfirvalda (e. The Royal Military Police) þar í landi. Útlendingastofnun Hollands (h. Immigratie- en Naturalisatiedienst (IND)) ber ábyrgð á meðferð umsókna um alþjóðlega vernd. Í hefðbundnu umsóknarferli fara umsækjendur um alþjóðlega vernd í tvö viðtöl, með aðstoð túlks sé talin þörf á því, áður en ákvörðun er tekin í máli þeirra. Umsækjendur sem hafa fengið synjun á umsókn sinni hjá IND geta kært niðurstöðuna til héraðsdómstóls og þeim dómi er í kjölfarið unnt að áfrýja til Ríkisráðsins (h. Afdeling Bestuursrechtspraak Raad van State). Umsækjendum sem hefur verið synjað um alþjóðlega vernd eiga að auki möguleika á því að leggja fram viðbótarumsókn hjá IND. Ef nýjar upplýsingar eða gögn liggja fyrir í máli umsækjenda geta skilyrði viðbótarumsóknar verið uppfyllt. Þá eiga umsækjendur þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun skv. 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á umsókn um alþjóðlega vernd hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða meðferð sem brýtur í bága við ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu.

Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér verður talið að hollensk yfirvöld uppfylli skyldur sínar varðandi lögfræðiaðstoð til handa umsækjendum um alþjóðlega vernd skv. tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 32/2013 um málsmeðferð við veitingu og afturköllun alþjóðlegrar verndar, sbr. 19. og 20. gr. hennar. Um leið og umsókn hefur verið tekin til meðferðar hjá útlendingastofnun Hollands eiga umsækjendur rétt á gjaldfrjálsri lögfræðiaðstoð þar til ákvörðun hefur verið tekin í máli þeirra. Ákveði umsækjendur að bera synjun á umsókn þeirra um alþjóðlega vernd undir dómstóla þá eiga þeir að auki rétt á gjaldfrjálsri lögfræðiaðstoð á meðan áfrýjunarferlinu stendur. Uppfylli umsækjendur um alþjóðlega vernd ekki ákveðin skilyrði löggjafar um útlendinga í Hollandi, s.s. að geta sýnt fram á gild skilríki eða vegabréfsáritun sem heimili þeim inngöngu í landið eða að almenningi stafi ekki ógn af þeim, geta yfirvöld ákveðið að úrskurða þá í varðhald í ákveðinn tíma. Umsækjendur geta borið lögmæti varðhaldsúrskurðar undir dómstóla og eiga þeir jafnframt rétt á gjaldfrjálsri lögfræðiaðstoð í tengslum við það.

Holland er aðildarríki Evrópusambandsins og hefur innleitt tilskipanir sambandsins vegna meðferðar og móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd. Í þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd í Hollandi kemur fram að umsækjendum séu tryggð búsetuúrræði og fjárhagsleg aðstoð fyrir nauðsynlegum útgjöldum, s.s. matarinnkaupum, sé þörf á því. Eftir að skráningu umsóknar um alþjóðlega vernd er lokið eru umsækjendur fluttir í móttökumiðstöðvar þar sem þeir dvelja þar til leyst hefur verið úr umsókn þeirra.

Umsækjendur fá aðgang að atvinnumarkaðnum í Hollandi sex mánuðum eftir að umsókn um alþjóðlega vernd hefur verið lögð fram. Vinnuveitandi verður þó að sækja um atvinnuleyfi fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd áður en þeir geta hafið störf og hefur það því reynst erfitt fyrir umsækjendur að finna sér störf. Öllum umsækjendum um alþjóðlega vernd er tryggt aðgengi að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, þ. á m. geðheilbrigðisþjónustu. Við meðferð umsókna er að auki tekið tillit til þarfa einstaklinga sem teljast vera í viðkvæmri stöðu.

Undanfarin ár hefur mátt greina aukna andúð í viðhorfi gagnvart innflytjendum í Hollandi, þ. á m. gagnvart múslimum. Frá árinu 2009 hefur verið komið upp 38 skrifstofum um landið sem starfa gegn mismunun (e. Anti-Discrimination Bureaus) og veita þolendum mismununar aðstoð og ráðgjöf ásamt því að skrásetja tilvik þar sem einstaklingar hafa orðið fyrir mismunun. Mannréttindastofnun Hollands (e. The Netherlands Institute for Human Rights) ákvarðar í málum þar sem hvers konar mismunun er til skoðunar og gefur út óbindandi álit sem er að meginstefnu farið eftir. Stofnunin hefur að auki vald til að fara með mál fyrir dómstóla sem hún telur að geti haft fordæmisgildi. Þá eru mál, þar sem ofbeldi sem rekja má til kynþáttafordóma er til skoðunar, saksótt með skilvirkum hætti séu þau tilkynnt til löggæsluyfirvalda. Þá benda framangreind gögn jafnframt til þess að löggæsluyfirvöld í Hollandi hafi yfir að ráða fullnægjandi úrræðum til að veita umsækjendum um alþjóðlega vernd aðstoð óttist þeir tiltekna einstaklinga.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun aðildarríkis um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið byggt á því að sú meðferð sem einstaklingur á von á við brottvísun eða frávísun verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til að ákvörðunin verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars. Við mat á umræddu alvarleikastigi hefur dómstóllinn jafnframt litið til annarra þátta, t.d. hvort einstaklingurinn er í viðkvæmri stöðu, sbr. t.d. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Khlaifia o.fl. gegn Ítalíu (nr. 16483/12) frá 15. desember 2016. Í því sambandi hefur dómstóllinn lagt ákveðna áherslu á að umsækjendur um alþjóðlega vernd tilheyri jaðarsettum og viðkvæmum þjóðfélagshóp sem þurfi sérstaka vernd, sbr. t.d. dóm í máli Tarakhel gegn Sviss (nr. 29217/12) frá 4. nóvember 2012. Þrátt fyrir það verði 3. gr. mannréttindasáttmálans ekki túlkuð á þann hátt að í greininni felist skylda aðildarríkja til að sjá umsækjendum um alþjóðlega vernd fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum, sbr. dóm í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011.

Með vísan til umfjöllunar um aðstæður og móttökuskilyrði umsækjenda um alþjóðlega vernd í Hollandi er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá benda öll gögn til þess að kærandi hafi raunhæf úrræði í Hollandi, bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. jafnframt 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem tryggja að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Aðstæðum kæranda hefur þegar verið lýst og telur kærunefnd að þær séu ekki þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Í því sambandi hefur nefndin m.a. litið til þess að heilsufar kæranda sé ekki með þeim hætti að hann teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki eins og segir í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Þá telur nefndin að heilbrigðisaðstæður hans geti ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar. Gögn málsins benda jafnframt til þess að kærandi muni hafa aðgang að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu í Hollandi, þ. á m. geðheilbrigðisþjónustu.

Þá telur kærunefnd að gögn málsins beri ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að hann geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Það er jafnframt mat kærunefndar að málsástæður kæranda að öðru leyti verði ekki taldar til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. 

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 22. ágúst 2019 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 6. ágúst 2019.

Athugasemdir kæranda við hina kærðu ákvörðun

Svo sem fram hefur komið gerir kærandi ýmsar athugasemdir við hina kærðu ákvörðun, m.a. telur kærandi að stofnunin hafi ekki framkvæmt heildarmat á einstaklingsbundnum aðstæðum hans. Þá telur kærandi að reglugerð nr. 276/2018, um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, eigi sér ekki lagastoð.

Eins og að framan greinir hefur kærunefnd lagt einstaklingsbundið mat á umsókn kæranda og komist að niðurstöðu um að taka umsókn hans ekki til efnismeðferðar með vísan til ákvæða laga um útlendinga eins og þau hafa verið útfærð í reglugerð um útlendinga. Er niðurstaða í málinu byggð á túlkun kærunefndar á framangreindum ákvæðum og sjónarmiðum sem nefndin telur málefnaleg en áður hefur komið fram í úrskurðum kærunefndar að reglugerðina skortir ekki lagastoð. Að mati kærunefndar er því ekki tilefni til frekari umfjöllunar um athugasemdir kæranda að þessu leyti.

Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun að öðru leyti og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við hana. Hefur kærunefnd skoðað alla þætti málsins og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun. Að mati kærunefndar er því ekki tilefni til frekari umfjöllunar um athugasemdir kæranda.

Frávísun

Kærandi kveðst hafa komið hingað til lands annað hvort 1. eða 2. ágúst 2019 og samkvæmt gögnum máls sótti hann um alþjóðlega vernd þann 6. ágúst 2019. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærandi skal fluttur til Hollands innan tilskilins frests, nema ákveðið verði að fresta réttaráhrifum úrskurðar þessa að kröfu kæranda, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Í máli þessu hafa hollensk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda kæranda til Hollands með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er því staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

Úrskurðarorð

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Áslaug Magnúsdóttir

 

Árni Helgason                                                                                    Bjarnveig Eiríksdóttir

                                                                                               

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum