Hoppa yfir valmynd
2. júní 2022 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 208/2022 Úrskurður

 KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 2. júní 2022 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 208/2022

í stjórnsýslumáli nr. KNU22030055

 

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 29. mars 2022 kærði einstaklingur er kveðst heita […], vera fædd […], og vera ríkisborgari Sómalíu (hér eftir nefnd kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 11. mars 2022, um að synja henni um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja henni um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga.

Kærandi krefst þess aðallega að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að henni verði veitt staða flóttamanns hér á landi með vísan til 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til vara krefst kærandi þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að henni verði veitt viðbótarvernd með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til þrautavara krefst kærandi þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að henni verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða með vísan til 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.        Málsmeðferð

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi hinn 22. október 2021. Kærandi kom í viðtal hjá Útlendingastofnun, m.a. hinn 24. nóvember 2021 ásamt talsmanni sínum. Með ákvörðun, dags. 11. mars 2022, synjaði Útlendingastofnun kæranda um alþjóðlega vernd ásamt því að synja henni um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Var sú ákvörðun kærð til kærunefndar útlendingamála hinn 29. mars 2022. Kærunefnd barst greinargerð kæranda hinn 10. apríl 2022. Kærunefnd bárust viðbótargögn frá kæranda dagana 11., 20. og 29.  maí og 1. júní 2022.

Kærandi mætti í viðtal hjá kærunefnd hinn 12. maí 2022 ásamt talsmanni sínum og naut hún aðstoðar túlks.

III.       Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi byggi umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hún sé í hættu í heimaríki sínu vegna ofsókna af hálfu hryðjuverkasamtakanna Al-Shabaab.

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar í máli kæranda var sú að kærandi væri ekki flóttamaður og honum skyldi synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi samkvæmt ákvæðum 37. og 40. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laga um útlendinga. Þá taldi stofnunin að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stæði endursendingu til heimaríkis ekki í vegi.

Kæranda var vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Útlendingastofnun tilkynnti kæranda jafnframt að kæra frestaði réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.

IV.       Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda til kærunefndar er vísað til viðtala hennar hjá Útlendingastofnun. Þar hafi kærandi greint frá því að vera fædd og uppalin í hverfinu […] í borginni Mógadisjú. Á tímabili hafi kærandi búið í borginni […] á landamærum Kenía og Sómalíu en síðan hafi hún flutt aftur til Mógadisjú. Þar hafi hún verið búsett í hverfinu […] þegar hún hafi flúið land. Kærandi sé af þjóðerninu Hawiye og tilheyri ættbálknum Abgaal. Kærandi hafi flúið heimaríki sitt af öryggisástæðum í kjölfar þess að hún hafi verið numin á brott og haldið fanginni af meðlimum hryðjuverkasamtakanna Al-Shabaab í mars 2021. Hún hafi áður fengið líflátshótanir frá samtökunum vegna starfa hennar sem túlkur fyrir friðargæslu Afríkuþjóða í Sómalíu (AMISOM). Kæranda hafi fyrst borist hótanir frá Al-Shabaab snemma árs 2018, fljótlega eftir að hún hafi hafið störf fyrir AMISOM. Samtökin hafi þá krafið hana um að útvega lyf frá spítala þar sem hún hafi einnig starfað. Þegar hún hafi útskýrt að hún hefði ekki aðgang að lyfjum í starfi sínu hafi hún verið sökuð um að vera heiðingi (e. infidel) og starfa fyrir heiðingja. Oftsinnis hafi ókunnugir komið að leita hennar þegar hún hafi verið við vinnu og hringt í hana úr ókunnugum símanúmerum. Í kringum ágústmánuð 2020 hafi vinur kæranda hringt í hana og sagst hafa séð mynd af henni í dagblaði með yfirskriftinni […]. Kærandi hafi ekki séð þetta sjálf en að þekkt sé að Al-Shabaab leiti uppi myndir af fólki sem vinni fyrir samtök á borð við AMISOM og birti í blöðum. Í mars 2021 hafi kærandi síðan verið numin á brott af liðsmönnum Al-Shabaab þegar hún hafi verið stödd á markaði í Mógadisjú að kaupa föt á börnin sín. Henni hafi verið haldið í á þriðja dag í dimmu herbergi ásamt nokkrum öðrum konum. Á meðan hún hafi verið í haldi hafi hún hvorki fengið vott né þurrt. Þá hafi hún verið barin í höfuðið og henni hótað lífláti. Kæranda hafi verið sagt að hún væri heiðingi, að hún myndi þjást og fengi ekki að deyja auðveldlega. Aðfararnótt þriðja dags hafi aðilar frá stjórnvöldum komið að húsinu hvar konunum hafi verið haldið og þeim sleppt. Hafi lögreglan síðar sagt kæranda að Al-Shabaab hefði ætlað að hálshöggva þær. Kærandi hafi þá ákveðið að flýja land og falið sig í íbúð sinni þar til færi hafi gefist til þess tveimur mánuðum síðar. Hún hafi ekki talið sér fært að leita verndar hjá stjórnvöldum þar sem Al-Shabaab hafi of mikil ítök og stjórnvöld hefðu ekki getað veitt henni vernd.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun hafi kærandi einnig greint frá því að hafa tvívegis slasast í sjálfsvígssprengjuárásum, annars vegar í október 2017 og hins vegar árið 2018. Í fyrra skiptið hafi kærandi misst meðvitund og verið í dái í þrjá daga og hlotið varanlegan heyrnarskaða. Í síðara skiptið hafi hún einnig orðið fyrir heyrnarskaða og blætt hefði úr eyrum hennar.

Í greinargerð kæranda eru gerðar ýmsar athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar, einkum við trúverðugleikamat stofnunarinnar, mat stofnunarinnar á því hvort kærandi geti talist tilheyra hópi sem geti talist skotmark Al-Shabaab hryðjuverkasamtakanna og mat stofnunarinnar á öryggisástandi í Mógadisjú, áhrifum samtakanna þar og getu stjórnvalda til að veita vernd. Það sé mat kæranda að ekki sé hægt að draga afdráttarlausa ályktun af heimildum að einstaklingar sem túlki fyrir AMISOM frá Mógadisjú, líkt og kærandi hafi gert, verði ekki taldir geta verið skotmörk Al-Shabaab líkt og Útlendingastofnun hafi gert í ákvörðun sinni. Í einni af þeim skýrslum sem Útlendingastofnun hafi ítrekað vísað til í ákvörðun sinni komi fram að samkvæmt heimildum Sameinuðu þjóðanna geti starfsfólk AMISOM, sem m.a. sinni störfum líkt og þrifum, verið skotmörk Al-Shabaab. Bendi umrædd heimild að mati kæranda sterklega til þess að hún geti verið skotmark samtakanna. Jafnframt gerir kærandi athugasemd við umfjöllun Útlendingastofnunar um að konur séu ólíklegri en karlar til að vera skotmörk Al-Shabaab, en heimildum beri ekki saman um það. Þá hafi Útlendingastofnun lagt til grundvallar að yfirvöld í Sómalíu hafi stjórn á stórum svæðum innan landsins með stuðningi frá AMISOM en heimildir beri með sér að Al-Shabaab haldi starfsemi sinni eftir sem áður áfram á þeim svæðum án mikilla hindrana. Í þessu samhengi vísar kærandi til úrskurðar kærunefndar nr. 168/2021, en þar hafi komið fram að þrátt fyrir að öryggisástand í Mógadisjú hafi farið batnandi á undanförnum árum verði Útlendingastofnun að framkvæma einstaklingsbundið mat á aðstæðum einstaklings hverju sinni. Kærandi telur skorta verulega á rökstuðning Útlendingastofnunar í máli hennar, einkum þar sem um stefnubreytingu sé að ræða með synjun stofnunarinnar á umsókn kæranda. Auk þess hafi Útlendingastofnun stuðst við eldri heimildir í stað nýrra. Þá gerir kærandi athugasemd við mat Útlendingastofnunar á því að kærandi eigi ekki á hættu að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki sé greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Í greinargerð kæranda er m.a. fjallað um öryggisástand í Sómalíu, starfsemi Al-Shabaab og stöðu kvenna í landinu. Vísar kærandi til alþjóðlegra skýrslna máli sínu til stuðnings.

Kærandi krefst þess aðallega að henni verði veitt alþjóðleg vernd sem flóttamaður hér á landi, skv. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Hún eigi á hættu ofsóknir af hálfu Al-Shabaab, auk þess sem hún hafi tilefni til að óttast frekara ofbeldi og mismunun kyns síns vegna, sbr. d-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Í því samhengi vísar kærandi m.a. til athugasemda með frumvarpi laga um útlendinga um að taka skuli mið af tilskipun 2011/95/EB og norsku útlendingalögunum við skilgreiningu á ákveðnum þjóðfélagshópi. Heimildir séu skýrar um það að ýmsar ástæður geti legið að baki ofsóknum Al-Shabaab, t.d. ef almennir borgarar fari ekki eftir reglum og hugmyndafræði samtakanna. Þá beiti samtökin sér fyrir því að þurrka út ummerki vestrænna ríkja í Afríku. Nýlegar heimildir beri með sér að einstaklingum sem starfi fyrir alþjóðleg samtök stafi hætta af Al-Shabaab, þá einkum þeim sem starfi fyrir alþjóðleg mannúðarsamtök og undirstofnanir Sameinuðu þjóðanna. Kærandi hafi nú þegar fengið líflátshótanir starfs síns vegna. Þá beiti Al-Shabaab skæruhernaði og fremji mannskæðar hryðjuverkaárásir sem beinist bæði gegn yfirvöldum sem og almennum borgurum í Sómalíu. Þrátt fyrir að sómalska ríkisstjórnin fari með stjórnartaumana í Mógadisjú í dag séu heimildir skýrar um það að samtökin geti starfað óáreitt á svæðinu. Þá sé staða kvenna afar bágborin í Sómalíu og eigi kærandi á hættu kynbundið ofbeldi og mismunun verði henni gert að snúa aftur til heimaríkis síns.

Kærandi telur að líta megi til samsafns athafna þegar lagt sé mat á hvort 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga eigi við. Kærandi telur að samkvæmt skilgreiningu samsafns athafna (e. cumulative grounds) jafngildi staða hennar, þegar hún sé metin heildstætt, ofsóknum í skilningi ákvæðisins. Kærandi sé í annarri og verri stöðu en aðrir einstaklingar í Sómalíu vegna samtvinnunar á þeim ástæðum sem uppi séu í máli hennar. Sómölsk stjórnvöld hafi ekki getu til að vernda borgara landsins fyrir ofsóknum Al-Shabaab, auk þess sem konur geti ekki treyst á vernd þarlendra yfirvalda, sbr. c-lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Þá taki stjórnvöld sjálf þátt í ofsóknum með skorti á nauðsynlegum lögum og vernd, sbr. a-lið 4. mgr. 38. gr. sömu laga.

Kærandi telur að með endursendingu hennar til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki telur kærandi að slík ákvörðun brjóti í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.

Í greinargerð kemur fram að kærandi telji fasta framkvæmd vera til staðar í úrlausnum íslenskra stjórnvalda þegar komi að umsækjendum um alþjóðlega vernd frá mið- og suðurhluta Sómalíu sem óttist ofsóknir af hálfu Al-Shabaab og/eða séu af minnihlutaættbálkum. Í því samhengi vísar kærandi til úrskurða kærunefndar nr. 235/2020, 331/2020, 83/2021 og 217/2021. Einnig vísar kærandi til sex ákvarðana Útlendingastofnunar þar sem umsækjendur í málunum hafi óttast ofsóknir af hálfu Al-Shabaab og öllum verið veitt vernd hér á landi á grundvelli 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi telur með vísan til framangreindra fordæma að leysa eigi úr máli hennar á sama hátt. Landaupplýsingar beri ekki með sér að staða einstaklinga frá Sómalíu sé breytt þegar komi að hættu á ofsóknum af hálfu Al-Shabaab og ómöguleika stjórnvalda að veita vernd. 

Verði ekki fallist á aðalkröfu málsins krefst kærandi þess til vara að henni verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi eigi á hættu að sæta dauðarefsingu eða annarri ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð verði henni gert að snúa aftur til heimaríkis. Einnig eigi hún á hættu að verða fyrir skaða af völdum árása í vopnuðum átökum stjórnvalda og ýmissa hryðjuverkasamtaka þar sem ekki sé greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka verði henni gert að snúa aftur heim. Kærandi vísar til skýrslu norskra samtaka fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd þar sem fram kemur m.a. að upplýsingar berist hratt á milli manna í Sómalíu sem geri Al-Shabaab kleift að hafa uppi á einstaklingum sem hafi snúið aftur til landsins, jafnvel árum eftir að þeir hafi flúið landið. Meðlimir Al-Shabaab séu tortryggnir gagnvart þeim sem snúi aftur til Sómalíu og telji aðilana vera njósnara eða í samstarfi við sómölsk stjórnvöld. Þá sé öryggisástand á heimasvæði kæranda í Mógadisjú mjög ótryggt, fyrst og fremst vegna árása af hálfu hryðjuverkasamtaka og skæruliða. Staðan í Mógadisjú í dag sé eldfim vegna fyrirhugaðra kosninga sem hafi ítrekað verið frestað. Þá telur kærandi fasta framkvæmd vera til staðar varðandi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga í málum einstaklinga frá Mið- og Suður-Sómalíu, en þeim sé almennt veitt viðbótarvernd uppfylli þeir ekki skilyrði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Því til stuðnings vísar kærandi til fimm ákvarðana Útlendingastofnunar þar sem umsækjendum var veitt viðbótarvernd. Kærandi telur Útlendingastofnun bundna af framangreindum ákvörðunum nema hægt sé að sýna fram á að ástand mála hafi batnað til muna, en kærandi telur ljóst að svo sé ekki.

Til þrautavara krefst kærandi þess að henni verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Ákvæðið heimili veitingu slíks dvalarleyfis þegar útlendingur geti sýnt fram á ríka þörf á vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki. Kærandi vísar m.a. til athugasemda við ákvæðið í frumvarpi því er varð að lögum um útlendinga. Kærandi telur að hún hafi sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, en í Sómalíu viðgangist gróf mannréttindabrot sem almenningur njóti ekki verndar fyrir. Þá séu félagslegar aðstæður kæranda í heimaríki hennar afar erfiðar en sem kona eigi hún mikla hættu á að sæta ofbeldi og mismunun.

V.        Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi hafi ekki lagt fram nein gögn sem til þess væru fallin að sanna auðkenni hennar með fullnægjandi hætti. Var því leyst úr auðkenni hennar á grundvelli mats á trúverðugleika og komst Útlendingastofnun að þeirri niðurstöðu að kærandi væri frá Sómalíu. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærandi sé sómalskur ríkisborgari.

Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Sómalíu m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • 2021 Country Reports on Human Rights Practices – Somalia (US Department of State, 12. apríl 2022);
  • Amnesty International Report 2021/22 (Amnesty International, 29. mars 2022);
  • BTI 2022 Country Report – Somalia (Bertelsmann Stiftung, 23. febrúar 2022);
  • Benadir Regional Report 2020, Somali Health and Demographic Survey (SHDS) (Somalia National Bureau of Statistics, júlí 2021);
  • Challenges Facing the Health System in Somalia and Implications for Achieving the SDGs (European Journal of Public Health, 30. september 2020);
  • Clans in Somalia (Austrian Centre for Country of Origin and Asylum Research and Documentation (ACCORD), desember 2009);
  • Country Background Note – Somalia (UK Home Office, desember 2020);
  • Country of Origin Information – Somalia: Health System (Danish Immigration Service, nóvember 2020);
  • Country Policy and Information Note – Somalia: Al-Shabaab (UK Home Office, nóvember 2020);
  • Country Policy and Information Note – Somalia: Majority clans and minority groups in south and central Somalia (UK Home Office, janúar 2019);
  • Country Policy and Information Note (South and Central); Security and humanitarian situation (UK Home Office, nóvember 2020);
  • Country Policy and Information Note – Somalia: Women fearing gender-based violence (UK Home Office, apríl 2018);
  • Country Reports on Terrorism 2020 – Somalia (US Department of State, 16. desember 2021);
  • EASO Country of Origin Information Report: Somalia – Actors (European Union Agency for Asylum, 1. júlí 2021);
  • EASO Country of Origin Information Report: Somalia – Key socio-economic indicators (European Union Agency for Asylum, 19. september 2021);
  • EASO Country of Origin Information Report: Somalia – Security situation (European Union Agency for Asylum, 19. september 2021);
  • EASO Country of Origin Information Report: Somalia – Targeted profiles (European Union Agency for Asylum, 19. september 2021);
  • Freedom in the World 2021 – Somalia (Freedom House, 3. mars. 2021);
  • Human Rights in Africa: Review of 2019 (Amnesty International, 8. apríl 2020);
  • Overview of Gender-Based Violence in Somalia – Advocacy Brief, 2021 (UNFPA Somalia, 5. mars 2021);
  • Protection of Civilians: Building the Foundation for Peace, Security and Human Rights in Somalia (OHCHR, UNSOM, 10. desember 2017);
  • Reply by the United Nations High Commissioner for Refugees (UNHCR) in response to request for guidance on the application of the internal flight or relocation alternative, particularly in respect of Mogadishu, Somalia (UNHCR, 25. september 2013);
  • Situation in Somalia: Report of the Secretary-General (UN Security Council, 17. febrúar 2021);
  • Situation in Somalia: Report of the Secretary-General (UN Security Council, 19. maí 2021);
  • Situation in Somalia: Report of the Secretary-General (UN Security Council, 8. febrúar 2022);
  • Somalia: Al-Shabaab and local employees of AMISOM, the UN and other international organisations (Landinfo, 2. júní 2015);
  • Somalia. Al-Shabaab areas in Southern Somalia (Landinfo, 21. maí 2019);
  • Somalia: Basisinfo (Landinfo, 22. mars 2021);
  • Somalia country profile (BBC, 4. janúar 2018);
  • Somalia: Fact-Finding Mission to Mogadishu in March 2020 – Security situation and humanitarian conditions in Mogadishu (Finnish Immigration Service, 7. ágúst 2020);
  • Somalia: Det generelle voldsbildet og al-Shabaabs aktivitet i ulike deler av landet (Landinfo, 3. júní 2021);
  • Somalia: Health system (The Danish Immigration Service, nóvember 2020);
  • Somalia: Kampene i Mogadishu den 25. April 2021 og sikkerhetssituasjonen i byen etter dette (Landinfo, 15. júní 2021);
  • Somalia: Klan, familie, migrasjon og bistand ved (re)etablering (Landinfo, 24. júní 2020);
  • Somalia: Security challenges in Mogadishu (Landinfo, 15. maí 2018);
  • Somalia: Violence in Mogadishu and developments since 2012 (Landinfo, 30. október 2020);
  • Somalia: UN expert warns health care standards “dangerously low“ (UNHRC, 5. apríl 2022);
  • South and Central Somalia – Security Situation, Al-Shabaab Presence, and Target Groups (Danish Refugee Council, mars 2017);
  • South and Central Somalia – Security situation, forced recruitment, and conditions for returnees (The Danish Immigration Service, júlí 2020);
  • The World Factbook – Somalia (Central Intelligence Agency, síðast uppfært 19. maí 2022);
  • UNHCR Eligibility Guidelines for Assessing the International Protection Needs of Asylum -Seekers from Somalia (UNHCR, 5. maí 2010);
  • UNHCR Position on Returns to Southern and Central Somalia (Update I) (UNHCR, maí 2016);
  • Upplýsingasíða Johns Hopkins háskólans (https://coronavirus.jhu.edu/region/somalia, sótt 2. júní 2022) og
  • World Report 2022 – Somalia: Events of 2021 (Human Rights Watch, 13. janúar 2022).

Sómalía er sambandslýðveldi með rúmlega 12 milljónir íbúa. Ríkið lýsti yfir sjálfstæði frá Bretum og Ítölum þann 1. júlí 1960. Þann 20. september 1960 gerðist Sómalía aðili að Sameinuðu þjóðunum.[1] Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi sem og alþjóðasamning um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1990. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám alls kynþáttamisréttis árið 1975 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1990. Sómalía fullgilti samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 2015 og samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks árið 2019.[2]

Í skýrslu EUAA frá árinu 2016 kemur fram að árið 1991 hafi brotist út borgarastyrjöld í Sómalíu eftir að vopnaðir andspyrnuhópar hafi steypt þáverandi forseta landsins, Siad Barre, og ríkisstjórn hans af stóli. Næstu ár hafi einkennst af miklum átökum og lögleysu í landinu án þess að starfhæf ríkisstjórn væri við völd. Í ágúst 2012 hafi fyrsta varanlega alríkisstjórnin verið mynduð frá því borgarastyrjöldin hafi hafist. Frá árinu 2009 hafi átök verið bundin við mið- og suðurhluta Sómalíu á milli ríkisstjórnar landsins og bandamanna þeirra annars vegar og íslamskra öfgahópa hins vegar, einkum Al-Shabaab, sem hafi náð stjórn á nokkrum svæðum í landinu. Beri Al-Shabaab m.a. ábyrgð á fjölda hryðjuverkaárása síðustu ár í Sómalíu sem hafi kostað hundruð óbreyttra borgara lífið. Samkvæmt skýrslu öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna frá því í maí 2020 sé almennt öryggisástand í Sómalíu sveiflukennt. Megi rekja það til aukningar hryðjuverkaárása í landinu, fjölgunar glæpa og vopnaðra átaka sem hafi verið viðvarandi frá því í janúar 2020. Al-Shabaab hafi aukið árásir sínar í Mógadisjú og í Boosasoo í Bari héraði í Puntlandi.

Í skýrslu búsetunefndar Sameinuðu þjóðanna frá árinu 2006 kemur fram að í kjölfar borgarastyrjaldarinnar árið 1991 hafi ættbálkar í Norður-Sómalíu ákveðið að lýsa yfir sjálfstæði og stofnað lýðveldið Sómalíland. Héruðin Bari, Nugaal og norðurhluti Mudug hafi sett á fót sjálfstjórnarríkið Puntland í norðausturhluta Sómalíu árið 1998 og hafi ríkið haft sjálfstjórn síðan. Ólíkt Sómalílandi hafi Puntland ekki leitast eftir sjálfstæði frá Sómalíu. Frá árinu 1998 hafi Puntland átt í deilum við Sómalíland um landsvæðin Sool og Sanaag.

Í skýrslu Landinfo frá árinu 2019 kemur fram að Al-Shabaab hafi tekið yfir stjórn stærsta hluta Suður-Sómalíu árin 2008 til 2010. Á árunum 2011 til 2015 hafi friðargæslu Afríkuþjóða í Sómalíu (The African Union Mission in Somalia (AMISOM)) og fleiri samtök stjórnvalda tekist að ná stjórn á Mógadisjú og í kjölfarið öðrum bæjum Suður-Sómalíu. Þrátt fyrir það hafi Al-Shabaab náð yfirráðum yfir nokkrum bæjum í suðurhluta landsins að nýju á árunum 2016 og 2017 og hafi einnig viss áhrif á þeim svæðum þar sem samtökin hafi ekki varanlega viðveru. Sterkir ættbálkar hafi ákveðið svigrúm til að semja við samtökin en flestir hræðist hefndaraðgerðir þeirra. Al-Shabaab hafi umfangsmikið net uppljóstrara og bandamanna sem fari tiltölulega frjálslega milli landsvæða og séu hópar samtakanna sérstaklega virkir á svæðum þar sem ríkisstjórnin og stuðningsmenn hennar haldi sig. Í skýrslu dönsku flóttamannanefndarinnar frá árinu 2017 kemur fram að ýmsar ástæður geti legið að baki ofsóknum Al-Shabaab. Megi þar m.a. nefna alvarlegar refsiaðgerðir gegn óbreyttum borgurum sem ekki fari eftir reglum og hugmyndafræði samtakanna. Þvinguð nýliðaskráning sé hins vegar óalgeng og eigi sér ekki stað á þeim svæðum sem séu ekki undir fullri stjórn Al-Shabaab. Geti samtökin þó hugsanlega hvatt til þess að einstaklingar gangi til liðs við þau og beitt hópþrýstingi með það að markmiði að þvinga aðila til liðs við sig. Þá hafi Al-Shabaab í einhverjum tilvikum krafist þess að ákveðinn fjöldi ungmenna gangi til liðs við samtökin til að verja tiltekin svæði. Neiti einstaklingur þeirri kröfu hafi samtökin í einhverjum tilvikum krafist einhvers konar bóta og þá hafi komið upp tilvik þar sem einstaklingur hafi þurft að flýja til að tryggja öryggi sitt.

Samkvæmt skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá árinu 2020 er árangursrík vernd stjórnvalda á yfirráðasvæðum Al-Shabaab ekki tiltæk. Ríkisstjórn landsins hafi leitast við að bæta öryggisþjónustu sína með aðstoð AMISOM. Í höfuðborg Sómalíu, Mógadisjú, og á öðrum þéttbýlisstöðum þar sem ríkisstjórnin sé við völd séu öryggissveitir veikburða sökum skorts á fjármagni, fullnægjandi búnaði og skorts á þjálfun starfsmanna. Í skýrslu Landinfo frá árinu 2018 kemur fram að sómalska lögreglan (e. Somali Police Force) sé virk og sýnileg í höfuðborginni Mógadisjú. Megináhersla lögreglunnar sé að vernda stofnanir ríkisins gegn árásum Al-Shabaab. Aftur á móti ber heimildum saman um að lögreglan hafi takmarkaða getu til að vernda einstaklinga gegn ofbeldi, þ.m.t. að rannsaka, ákæra og refsa fyrir ofbeldisbrot. Þá kemur fram að spilling sé útbreidd meðal lögreglu og hjá dómstólum. Í skýrslu danskra innflytjendayfirvalda frá 2020 kemur fram að öryggisástand í Sómalíu sé sveiflukennt og Al-Shabaab fremji flest brot gegn óbreyttum borgurum í Suður- og Mið-Sómalíu. Árið 2019 hafi mátt rekja tæp 70% af árásum á svæðinu til Al-Shabaab.

Í skýrslu EUAA frá 2021 kemur fram að konur og stúlkur standi frammi fyrir margs konar áskorunum í Sómalíu, m.a. þvinguðum hjónaböndum á barnsaldri, kynfæralimlestingum, heimilisofbeldi, kynferðis- og kynbundnu ofbeldi, auk takmarkana á skólagöngu. Samkvæmt skýrslu EUAA frá 2021 eru konur sérstaklega berskjaldaðar gagnvart kynbundnu ofbeldi.[3] Sómölsk lög og réttarkerfið veiti takmarkaða vernd gegn mismunun á grundvelli kyns. Konur eigi erfitt uppdráttar á mörgum sviðum, m.a. á sviði húsnæðis, menntunar og atvinnu. Þá njóti þær ekki jafnréttis þegar komi að því að erfa eignir og sé þeim oft neitað um þær eignir sem þær eigi lagalegan rétt á vegna félagslegra viðhorfa sem mismuni konum.[4] Þá séu nauðganir, og annað kynferðisofbeldi, mjög útbreiddar og algengar í Sómalíu, einkum í Suður- og Mið-Sómalíu og á svæðum innan Puntlands. Meirihluti brotanna sé ekki tilkynntur til lögreglu, einkum sökum víðtæks refsileysis innan réttarkerfisins og ótta og skömm þolenda. Heimilisofbeldi í garð kvenna í Sómalíu sé jafnframt lýst sem „hömlulausu“.[5] Konur séu berskjaldaðar fyrir kynferðislegu ofbeldi á vinnumarkaði og sé algengt að karlmenn, sem sjái um ráðningar innan bæði einkageirans og hins opinbera, krefjist einhvers konar kynlífsþjónustu gegn ráðningu. Konur hafi litla möguleika á að kvarta yfir slíku ofbeldi, en nær öruggt sé að konur missi vinnuna geri þær það. Fyrir vikið neyðist margar konur til að þola kynferðislega misnotkun til að sjá fyrir fjölskyldu sinni.[6] Þá sé þátttaka kvenna í stjórnmálastörfum takmörkuð vegna viðhorfa sem einkennist af mismunun og fjandskap í garð þeirra.[7] Einstæðar konur séu almennt í viðkvæmari stöðu en giftar konur, en skortur á vernd í bland við viðhorf feðraveldisins í Sómalíu leiði til mismununar og útilokunar einstæðra kvenna.[8] Einstæðar konur standi t.a.m. frammi fyrir erfiðleikum við að leigja eigið húsnæði þar sem þær þurfi karlmann til að ábyrgjast leigufyrirkomulagið.[9] Almennt er ætlast til þess af samfélaginu að konur gangi í hjúskap ungar, þ.e. á unglingsárunum, eignist mörg börn og sjái um uppeldi þeirra og sinni húsverkum innan heimilisins.[10] Í skýrslu óháðs sérfræðings mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna um stöðu mannréttindamála í Sómalíu frá 14. júlí 2021 kemur m.a. fram að staða kvenna og barna hafi versnað vegna Covid-19 faraldursins og ofbeldi, einkum inni á heimilum, hafi aukist verulega. Einnig hafi orðið aukning í kynfæralimlestingum kvenna og stúlkna. Þá hafi aðgerðir stjórnvalda í málefnum kvenna ekki fengið þá framgöngu sem ætlað hafi verið og lagafrumvarp um glæpi tengda kynmökum boði afturför og fari gegn alþjóðlegum og svæðisbundnum skuldbindingum Sómalíu í þessum málaflokki.

Í skýrslu EUAA frá 2021 kemur fram að friðargæslu Afríkuþjóða í Sómalíu (AMISOM) sé friðargæslusveit í Sómalíu, stutt m.a. af Sameinuðu þjóðunum, sem samanstandi af nærri 20.000 hersveitum. Markmið AMISOM sé m.a. að draga úr hættunni sem stafi af Al-Shabaab og öðrum vopnuðum hópum og koma á stöðugleika og öryggi í landinu undir stjórn sómölsku ríkisstjórnarinnar. AMISOM hafi tekist að ná yfirráðum úr höndum Al-Shabaab á nokkrum svæðum, þ. á m. Mógadisjú.[11] Árangur AMISOM sé þó ekki öruggur þar sem hann sé háður hernaðarstuðningi alþjóðasamfélagsins.[12] Í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá 2020 er m.a. vísað í skýrslu danskra útlendingayfirvalda frá 2017 þar sem fram komi að flestar heimildir bendi til þess að helstu skotmörk Al-Shabaab séu embættismenn, háttsettir stjórnmálamenn, leiðtogar ættbálka sem styðji sómölsku ríkisstjórnina, AMISOM og stjórnarher landsins. Samkvæmt heimildum Sameinuðu þjóðanna geti þó einstaklingar sem starfi við þrif og önnur lágt sett störf hjá sómölskum stjórnvöldum eða AMISOM jafnframt verið skotmörk Al-Shabaab. Starfsfólk Sameinuðu þjóðanna og alþjóðlegra samtaka geti einnig verið skotmörk, óháð stöðu þeirra innan stofnananna. Í skýrslunni kemur fram að starfsmenn frjálsra félagasamtaka séu ekki sjálfkrafa skotmörk Al-Shabaab heldur fari það eftir ýmsu, t.a.m. hve mikil gagnrýni samtakanna sé á Al-Shabaab. Frjáls félagasamtök með tengsl við Bandaríkin séu hins vegar almennt skotmörk Al-Shabaab.[13]

Ákvæði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr.  38. gr. laga um útlendinga kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki, verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kæranda haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Kærandi byggir á því að hún hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir af hálfu Al-Shabaab. Kærandi hafi sætt hótunum og verið rænt af meðlimum hryðjuverkasamtakanna þar sem hún hafi starfað sem túlkur hjá samtökunum Somali Women Development Center (SWDC) og sinnt verkefnum á vegum friðargæslu Afríkuþjóða í Sómalíu (AMISOM). Kærandi telur yfirvöld í Sómalíu skorta getu til að veita henni vernd þar sem Al-Shabaab hafi mikil ítök þar í landi.

Mat á trúverðugleika frásagnar kæranda er byggt á endurritum af viðtölum hennar hjá Útlendingastofnun, viðtali hjá kærunefnd hinn 12. maí 2022, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki kæranda.

Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun lagði kærandi m.a. fram afrit af skjali, dags. 11. júní 2021, sem hún kvað vera staðfestingu á störfum sínum hjá SWDC og AMISOM. Hinn 9. maí 2022 óskaði kærunefnd eftir því að kærandi legði fram frekari gögn sem staðfestu störf hennar hjá SWDC og AMISOM, sem og heilsufarsgögn væri þeim fyrir að fara. Jafnframt óskaði kærunefnd eftir því að kærandi legði fram afrit af dagblaðinu sem hún kvað Al-Shabaab hafa birt nafn hennar í, auk ljósmyndar af henni. Með tölvubréfi, dags. 11. maí 2022, lagði kærandi fram ljósmynd af starfsmannaskírteini sínu hjá SWDC frá árinu 2020 þar sem fram kemur að hún sé túlkur hjá samtökunum. Í tölvubréfinu kom jafnframt fram að misskilningur hafi átt sér stað varðandi dagblaðið. Ekki hafi verið um dagblað að ræða heldur einhvers konar lista eða skjal tengdu Al-Shabaab. Í því samhengi vísar kærandi til viðtals hjá Útlendingastofnun þar sem hún hafi talað um „paper“ sem hafi verið mistúlkað sem dagblað. Kærandi greindi þá frá því að kærunefnd væri óhætt að hafa samband við SWDC og óska eftir staðfestingu á störfum hennar þar. Hinn 29. maí 2022 lagði kærandi fram umsögn öryggisráðgjafa hjá Þróunarstofnun Sameinuðu þjóðanna (UNDP) í Sómalíu, dags. 26. maí 2022, um öryggisástand í Mogadishu, og skjal frá utanríkisráðuneyti Sómalíu, dags. 14. október 2021, þar sem þess er óskað að þvinguðum endursendingum til Sómalíu verði hætt.

Í viðtali hjá kærunefnd var kærandi spurð nánar út í störf sín sem túlkur í Sómalíu, störf fjölskyldumeðlima hennar, meintar ofsóknir af hálfu Al-Shabaab og fjölskyldu- og félagsaðstæður hennar í heimaríki. Kærandi greindi m.a. frá því að hafa starfað sem túlkur síðustu þrjú árin sem hún hafi dvalið í Sómalíu, en hún hafi hafið störf hjá SWDC hinn […] og sinnt verkefnum á spítala þar sem hún hafi túlkað fyrir ungar ófrískar stúlkur á spítala og lækna þeirra. Kærandi kvað SWDC og AMISOM hafa unnið saman að verkefnum og því hafi starf hennar einnig heyrt undir AMISOM. Kærandi hafi túlkað Swahili og sómölsku, en hún hafi lært fyrrnefnda tungumálið er hún hafi búið við landamæri Kenía í þrjú ár vegna vopnaðra átaka í Mógadisjú. Kærandi kvað Al-Shabaab hafa komist að því að hún ynni hjá SWDC og AMISOM og byrjað að hóta henni og krafið hana um lyf þar sem hún ynni á spítala. Þegar kærandi hafi sagt þeim að hún hefði ekki aðgang að lyfjum á spítalanum þá hefðu þeir hótað henni lífláti. Al-Shabaab séu á móti fólki sem starfi fyrir erlend samtök líkt og AMISOM og samtök tengd AMISOM, þar sem Al-Shabaab telji það fólk ekki vera múslima. Meðlimir Al-Shabaab hafi m.a. sakað kæranda um að vera glæpamann og kristna. Kærandi kvaðst hafa hundsað hótanir þeirra fyrst um sinn, en þegar hún hafi ekki svarað símtölum frá þeim hafi þeir mætt heim til hennar og haft uppi hótanir í hennar garð við börnin hennar. Kærandi kvaðst ekki hafa getað yfirgefið starf sitt þar sem hún sé fimm barna móðir og hafi þurft að sjá fyrir þeim. Kærandi hafi síðan verið stödd á fatamarkaði hinn 16. mars 2021 þegar tveir einstaklingar hafi komið upp að henni, sagt henni að hafa hljótt og leitt hana upp í bíl til sín. Þar hafi þeir tilkynnt henni að hún væri í haldi Al-Shabaab. Hún hafi verið í haldi samtakanna í um tvo daga en þá hafi aðilar á vegum sómalskra stjórnvalda frelsað hana og aðra sem einnig hafi verið haldið föngnum. Kærandi hafi í kjölfarið ákveðið að flýja heimaríki sitt og tekist það um tveimur mánuðum síðar.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að faðir hennar hafi starfað fyrir sómölsk stjórnvöld og verið myrtur. Jafnframt kvað kærandi frændfólk sitt hafa verið myrt í Sómalíu. Í viðtali hjá kærunefnd var kærandi spurð nánar út í framangreinda frásögn. Kærandi greindi þá frá því að faðir hennar hafi starfað sem […] og verið myrtur í stríðinu í Sómalíu, m.a. vegna starfa sinna fyrir stjórnvöld. Kærandi kvað móður sína hafa starfað hjá samtökunum […] í Sómalíu sem hafi verið áhættusamt starf. Kærandi kvað systur sína vera […] og að bæði systir hennar og móðir hafi verið skotmörk Al-Shabaab vegna starfa sinna. Þá greindi kærandi frá því að frændi hennar hafi starfað hjá tiltekinni stofnun og verið myrtur fyrir utan heimili sitt. Kærandi kvað óupplýst hver hafi verið þar að verki. Kærandi kvaðst þá eiga systur hér á landi sem hafi verið veitt alþjóðleg vernd með ákvörðun Útlendingastofnunar, […]. Í þeirri ákvörðun lagði Útlendingastofnun til grundvallar að umsækjandi væri […] og að henni kynni að stafa hætta af ótilgreindum aðilum sem gætu athafnað sig í skjóli refsileysis, en samkvæmt ákvörðuninni bar hún fyrir sig að hún óttaðist Al-Shabaab vegna starfs síns.

Að mati kærunefndar var framburður kæranda stöðugur og í samræmi við fyrri frásögn hennar í viðtölum hjá Útlendingastofnun. Kærandi var trúverðug í frásögn sinni, en lítið sem ekkert misræmi var í frásögn hennar varðandi störf hennar sem túlkur í heimaríki, fjölskylduaðstæður hennar og flótta frá heimaríki. Með vísan til þess sem fram hefur komið telur kærunefnd ekki ástæðu til annars en að leggja til grundvallar að kærandi hafi verið búsett í Mógadisjú þar sem hún hafi starfað sem túlkur fyrir samtökin SWDC og AMISOM. Þrátt fyrir að kærandi hafi ekki lagt fram gögn sem styðja við frásögn hennar um að henni hafi verið hótað og síðar rænt af Al-Shabaab telur kærunefnd, með tilliti til trúverðugleika kæranda og þess að meta skuli vafa kæranda í hag, ekki ástæðu til annars en að leggja til grundvallar að kærandi hafi sætt hótunum og ofbeldi af hendi Al-Shabaab. Jafnframt telur kærunefnd ekki ástæðu til annars en að leggja til grundvallar frásögn kæranda um að faðir hennar hafi unnið fyrir sómölsk stjórnvöld, móðir hennar hafi starfað hjá […] í Sómalíu og að systir hennar hafi starfað sem […] í Sómalíu og flúið þaðan vegna ótta við Al-Shabaab.

Frásögn kæranda um að meðlimir Al-Shabaab beini vopnum sínum einkum að starfsmönnum og stuðningsmönnum ríkisstjórnarinnar og alþjóðlegum samtökum fær stuðning í þeim gögnum og heimildum sem kærunefnd hefur skoðað. Sú hætta sem einstaklingum stafi af samtökunum fari þó einkum eftir stöðu og starfi þeirra innan samtakanna. Í umsögn öryggisráðgjafa hjá Þróunarstofnun Sameinuðu þjóðanna í Mogadishu, sem barst kærunefnd hinn 29. maí 2022, kemur m.a. fram að starfsfólk AMISOM verði reglulega fyrir hótunum hvort sem þau séu verktakar eða starfsfólk. Þá séu túlkar sérstaklega illa liðnir af hálfu Al-Shabaab, en þeir séu gjarnan kallaðir njósnarar og eigi á hættu að vera teknir af lífi. Heimildir bera með sér að Al-Shabaab hafi yfirlýsta afstöðu gegn réttindum kvenna og kemur m.a. fram í framangreindri umsögn að það geti falið í sér aukna hættu fyrir einstaklinga að sinna starfi tengdu kynbundnu ofbeldi líkt og kærandi hafi gert í heimaríki. Með vísan til framangreinds, og í ljósi þess að kærunefnd telur ekki ástæðu til þess að efast um frásögn kæranda um störf hennar í Sómalíu og afskipti meðlima Al-Shabaab af henni, þá má ætla að þau afskipti geti leitt til þess að hún verði í aukinni hættu á að verða fyrir ofsóknum af hálfu samtakanna verði henni gert að snúa aftur til heimaríkis. Þá er það mat kærunefndar að störf annarra fjölskyldumeðlima hennar fyrir ríkisstjórnina og alþjóðasamtök auki líkur þess að kærandi verði sérstakt skotmark samtakanna. Frásögn kæranda um að ekki sé hægt að fá vernd stjórnvalda í heimaríki hennar vegna ofsókna af hálfu Al-Shabaab fær jafnframt stoð í þeim gögnum sem kærunefnd hefur skoðað. Með vísan til framangreinds, þess að meta skuli vafa kæranda í hag og heildstæðs mat á aðstæðum kæranda í heimaríki hennar telur kærunefnd að kærandi hafi með rökstuddum hætti leitt líkur að því að hún kunni að eiga á hættu ofsóknir sem rekja megi til aðstæðna hennar í heimaríki og að hún teljist því flóttamaður í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Mat á möguleika á flutningi innanlands

Þó svo að umsækjandi um alþjóðlega vernd hafi sýnt fram á ástæðuríkan ótta við að verða fyrir ofsóknum á því landsvæði sem hann býr, er heimilt að synja umsókn um alþjóðlega vernd ef umsækjandi getur fengið raunverulega vernd í öðrum landshluta heimalands síns en hann flúði frá, viðkomandi getur ferðast þangað á öruggan og löglegan hátt og hægt er með sanngirni að ætlast til þess af viðkomandi að hann setjist að á því svæði, sbr. 4. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Í athugasemdum við ákvæðið í frumvarpi til laga um útlendinga segir að niðurstaða um hvort útlendingur geti fengið raunverulega vernd í öðrum hluta heimalands skuli byggð á einstaklingsbundnu mati á persónulegum aðstæðum útlendingsins og þeim aðstæðum sem séu í því landi. Við mat á því hvort hægt sé með sanngirni að ætlast til þess að útlendingur setjist að á því svæði sem talið er öruggt samkvæmt ákvæði þessu skuli tekið tillit til ýmissa þátta, svo sem aldurs, kyns, heilsu, fjölskylduaðstæðna, trúar, menningar sem og möguleika viðkomandi útlendings á vinnu eða menntun. Við mat samkvæmt ákvæðinu skuli m.a. höfð hliðsjón af leiðbeiningum flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (Guidelines on International Protection: „Internal Flight or Relocation Alternative“ within the Context og Article 1A(2) of the 1951 Convention and/or 1967 Protocol relating to the Status of Refugees, frá 23. júlí 2003).

Í leiðbeiningunum, sem varða möguleika á flutningi innanlands þegar einstaklingur hefur flúið heimaríki af ástæðuríkum ótta við ofsóknir, er lagt til grundvallar að mat á því hvort möguleiki sé á að einstaklingur geti flust búferlum til annars svæðis í heimaríki sé tvíþætt. Annars vegar verði að kanna hvort flutningur innanlands sé raunhæft úrræði. Að því er mál kærenda varðar kemur í þessu sambandi einkum til athugunar hvort það svæði sem lagt er til að hann flytjist til sé aðgengilegt á öruggan og löglegan hátt og hvort flutningur hans þangað skapi hættu á að kærandi verði fyrir ofsóknum eða alvarlegum skaða. Hins vegar beri að kanna hvort viðkomandi geti, með hliðsjón af aðstæðum í heimaríki hans, lifað tiltölulega eðlilegu lífi án þess að standa frammi fyrir óþarfa erfiðleikum. Við þann þátt matsins verður m.a. að horfa til persónulegra aðstæðna viðkomandi, t.a.m. félags- og efnahagslegra aðstæðna á því svæði sem lagt er til. Í leiðbeiningunum segir m.a. um síðastnefnt atriði að það sé ósanngjarnt að ætlast til þess lífsviðurværi einstaklings verði lægra en það sem talist geti viðunandi eða að viðkomandi búi við eymd.

Líkt og fram hefur komið kveðst kærandi vera fædd og uppalinn í Mógadisjú í suðurhluta Sómalíu. Kærunefnd hefur lagt til grundvallar að kærandi eigi á hættu ofsóknir verði henni gert að fara aftur til suðurhluta Sómalíu. Kemur þá til skoðunar hvort raunhæft og sanngjarnt sé að ætlast til þess að kærandi setjist að annars staðar í heimaríki sínu. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur hvatt ríki til að endursenda ekki einstaklinga til Mið-Sómalíu eða suðurhluta landsins, einkum vegna hernaðaraðgerða af hálfu vopnaðra hópa sem þar hafi átt sér stað lengi, sbr. skýrsla stofnunarinnar frá 2016, UNHCR Position on Returns to Southern and Central Somalia (Update I). Í leiðbeiningum stofnunarinnar um mat á innri flutningi í Sómalíu frá 2013 kemur jafnframt fram að almennt sé ekki sanngjarnt að ætlast til að einstaklingur setjist að annars staðar í landinu nema ljóst sé að hann muni njóta stuðnings fjölskyldu sinnar eða ættbálkar. Kærandi hefur greint frá því að faðir hennar hafi verið myrtur og að móðir hennar, eiginmaður og fimm börn búi í dag í Mógadisjú. Systir kæranda sé búsett hér á landi og hin systkini hennar hafi einnig yfirgefið Sómalíu og séu búsett í mismunandi löndum í Evrópu. Samkvæmt frásögn kæranda á hún ekki aðra ættingja í heimaríki sínu. Í ljósi skorts á stuðningsneti í heimaríki kæranda, þ.e. á öðrum svæðum en í Mógadisjú, er það mat kærunefndar að ekki sé raunhæft eða sanngjarnt að ætlast til þess af kæranda að hún setjist að annars staðar í Sómalíu, sbr. 4. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd til þess að samkvæmt framlögðum heilsufarsgögnum þjáist kærandi af liðagigt og eigi að eigin sögn erfitt með gang og glími við verki, auk þess sem hún sé með astma og skerta heyrn á báðum eyrum.

Telur kærunefnd því ljóst að kærandi uppfylli skilyrði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga til að teljast flóttamaður hér á landi.

Athugasemdir kærunefndar við ákvörðun Útlendingastofnunar

Kærunefnd gerir athugasemd við skort á umfjöllun um stöðu kvenna í Sómalíu í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda, en hvergi í ákvörðuninni er vikið að almennum aðstæðum kvenna þar í landi. Með vísan til framangreindrar umfjöllunar kærunefndar um aðstæður kvenna er það mat kærunefndar að skortur á rannsókn og rökstuðningi hvað þennan þátt varðar í ákvörðun Útlendingastofnunar teljist verulegur annmarki sem hafi getað haft áhrif á niðurstöðu í máli kæranda. Þar sem að kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að kæranda skuli veitt alþjóðleg vernd hér á landi þykir þó ekki ástæða til að ógilda ákvörðun Útlendingastofnunar og senda til nýrrar meðferðar af þessum sökum.

Samantekt

Að öllu framangreindu virtu er fallist á aðalkröfu kæranda um að fella úr gildi ákvörðun Útlendingastofnunar og veita kæranda alþjóðlega vernd á Íslandi á grundvelli 1. mgr. 37. gr. útlendingalaga, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðsamnings um stöðu flóttamanna.

Í ljósi þess að kærunefnd útlendingamála hefur fallist á aðalkröfu kæranda verða varakrafa, þrautavarakrafa og þrautaþrautavarakrafa kæranda ekki teknar til umfjöllunar í máli þessu.

 


 

Úrskurðarorð

:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi. Kæranda er veitt alþjóðleg vernd á grundvelli 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 40. gr. s.l. Lagt er fyrir stofnunina að veita kæranda dvalarleyfi á grundvelli 73. gr. laga um útlendinga.

 

The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The appellant is granted international protection in accordance with Article 37, paragraph 1, and Article 40, paragraph 1, of the Act on Foreigners. The Directorate is instructed to issue him residence permit on the basis of Article 73 of the Act on Foreigners.

 

 

Tómas Hrafn Sveinsson

 

Sindri M. Stephensen                                                                     Þorbjörg I. Jónsdóttir

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum