Hoppa yfir valmynd
20. febrúar 2017 Heilbrigðisráðuneytið

Fundað um aðstæður á sambýli fyrir fatlað fólk á Blönduósi

Þorsteinn Víglundsson félags- og jafnréttismálaráðherra fundaði fyrir helgi með Ástu Pálmadóttur, sveitarstjóra Sveitarfélagsins Skagafjarðar, til að ræða hvernig unnið skuli að úrbótum til að tryggja góða þjónustu og fullnægjandi aðbúnað íbúa sambýlis fyrir fatlað fólk á Blönduósi. Ráðherra óskaði eftir fundinum í kjölfar frétta um alvarlegar brotalamir í þjónustu og aðbúnað íbúanna.

Á fundinum kynnti Ásta fyrir Þorsteini hvað gert hefur verið á síðustu misserum til að vinna að úrbótum í þjónustu við íbúana. Fram kom að fylgt hafi verið leiðbeiningum sérfræðiteymis um aðgerðir til að draga úr nauðung við fatlað fólk, ráðinn hafi verið forstöðumaður með menntun í þroskaþjálfafræði og stöðugildum starfsfólks við heimilið verið fjölgað. Einnig hafi verið markvisst unnið að því að miða þjónustuna betur að þörfum einstaklinganna ásamt því að veita sértæka ráðgjöf og stuðning til starfsmanna heimilisins. Þá hafi samvinna við Heilbrigðisstofnun Norðurlands varðandi heilsu og vellíðan íbúanna einnig verið efld.

Fram kom á fundinum að þau atriði til úrbóta sem sveitarfélagið hefur nú í forgangi sé að gera íbúunum kleift að búa í eigin íbúð, óski þeir þess. Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins vinni jafnfram að mati á greiningu íbúa sambýlisins.

Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttismálaráðherra, segir ríka skyldu til þess að bregðast við hverri ábendingu sem berst um ófullnægjandi aðbúnað fatlaðs fólks og eins sé ljóst að efla þurfi eftirlit með þjónustunni. Fyrir liggur ákvörðun um að efla eftirlit af hálfu ráðuneytisins til að tryggja að viðeigandi stofnanir sinni hlutverki sínu. Enn fremur stendur til að fjölga réttindagæslumönnum sem gegna lykilhlutverki í hagsmunagæslu fyrir fatlað fólk um allt land. Auk þessa er verið að semja frumvarp til nýrra laga um þjónustu við fatlað fólk með þörf fyrir mikinn stuðning sem lagt verður fram á yfirstandandi þingi.

Á fundinum kom fram eindreginn vilji Sveitarfélagsins Skagafjarðar til að vinna áfram að úrbótum á sambýlinu til að bæta aðbúnað og þjónustu íbúanna og tryggja þeim betri lífsskilyrði og mun velferðarráðuneytið fylgjast með þeirri vinnu.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum