Hoppa yfir valmynd
4. mars 2022 Utanríkisráðuneytið

Atkvæðagreiðsla hjá sendiskrifstofum um sameiningar sveitarfélaga

Atkvæðagreiðsla hjá sendiskrifstofum um sameiningar sveitarfélaga - myndHaraldur Jónasson / Hari

Utanríkisráðuneytið vekur athygli á að eftirtaldar sveitarstjórnir hafa ákveðið að fram fari atkvæðagreiðsla um tillögu um sameiningu sveitarfélaga þeirra þann 26. mars 2022:

  • Sveitarstjórnir sveitarfélaganna Langanesbyggð og Svalbarðshreppur
  • Sveitarstjórnir sveitarfélaganna Helgafellssveit og Stykkishólmsbær.

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna tillagnanna hefur hafist nú þegar og hægt er að greiða atkvæði hjá sendiskrifstofum Íslands.

Í ljósi aðstæðna tengdum Covid-19 faraldrinum, eru kjósendur vinsamlegast beðnir um að samband við sendiráð áður en mætt er á kjörstað. Hafa ber í huga að aðstæður sem hafa skapast vegna kórónaveirufaraldurs geta haft áhrif á hvort að hægt verði að kjósa hjá kjörræðismönnum.

Kjósendur eru beðnir um að framvísa íslenskum persónuskilríkjum með mynd, þ.e. vegabréfi eða ökuskírteini.

Kosningarrétt eiga allir íslenskir ríkisborgarar sem náð hafa 18 ára aldri á kjördag, 26. mars 2022 og sem skráðir eru með lögheimili í viðkomandi sveitarfélagi á Íslandi, þremur vikum fyrir kjördag.

Námsmenn á Norðurlöndum sem áttu síðast skráð lögheimili á Íslandi í umræddum sveitarfélögum og vilja vera teknir á kjörskrá í atkvæðagreiðslu vegna tillögu um sameiningu sveitarfélaganna geta sótt um  það hjá Þjóðskrá.  

Einnig eiga kosningarrétt danskir, finnskir, norskir og sænskir ríkisborgarar sem átt hafa lögheimili á Íslandi í þrjú ár samfellt fyrir kjördag og aðrir erlendir ríkisborgarar sem átt hafa lögheimili á Íslandi í fimm ár samfellt fyrir kjördag, enda fullnægi þeir að öðru leyti framangreindum skilyrðum.

Atkvæðagreiðslan fer þannig fram að kjósandi stimplar eða ritar á kjörseðil orðið „já“ ef hann er hlynntur tillögu um sameiningu sveitarfélaganna eða „nei“ ef hann er mótfallinn tillögunni.

Athygli kjósenda er vakin á því, að þeim ber sjálfum að póstleggja atkvæði sín eða koma þeim á annan hátt í tæka tíð til viðkomandi kjörstjórnar á Íslandi. Kjósendur eru því hvattir til að vera tímanlega á kjörstað, þar sem póstsendingar gætu tekið lengri tíma en vant er.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum