Hoppa yfir valmynd
15. desember 2017 Innviðaráðuneytið

Mislæg gatnamót á Reykjanesbraut og Krýsuvíkurvegi í notkun

Loftmynd af nýju gatnamótunum. Ljósm. Hersir Gíslason. - mynd

Tekin hafa verið í notkun hin nýju mislægu gatnamót á Reykjanesbraut og Krýsuvíkurvegi sem unnið hefur verið að frá liðnu vori. Um 15-20 þúsund bílar fara um mannvirkið á degi hverjum og með mislægum gatnamótum er umferðaröryggi verulega aukið.

Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og Hreinn Haraldsson vegamálastjóri opnuðu gatnamótin formlega í dag með því að klippa á borða ásamt Jóni Gunnarssyni, fyrrverandi samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Guðlaugu Kristjánsdóttur og Rósu Guðbjartsdóttur, bæjarfulltrúum í Hafnarfirði og forráðamönnum verktakanna, Andrési Konráðssyni frá Loftorku ehf. og Dofra Eysteinssyni frá Suðurverki hf.

Auk sjálfra gatnamótanna fólst verkið í gerð allra tilheyrandi vega og stíga. Til framkvæmdanna teljast einnig breytingar á Krýsuvíkurvegi, gerð tengivegar að Suðurbraut og tengivegar að Selhellu. Einnig er innifalin gerð göngu- og hjólastígs meðfram Suðurbrautartengingu og hraðatakmarkandi aðgerðir á Suðurbraut. Þá er gerð hljóðmana við Reykjanesbraut og í Hellnahverfi í Hafnarfirði hluti verksins auk  breytinga á lagnakerfum veitufyrirtækja og landmótun.

Fjögur tilboð bárust í verkið og var samið við lægstbjóðendur, Loftorku ehf. og Suðurverk hf., sem skiluðu sameiginlegu tilboði uppá rúmlega 900 milljónir króna en heildarkostnaður verksins alls verður kringum 1.100 milljónir. Allmargir undirverktakar komu einnig við sögu og eftirlit var á vegum VSÓ ráðgjafar ehf. Verksamningar voru undirritaðir 21. mars og hófst uppsteypa brúarmannvirkis 21. júlí.

Sigurður Ingi Jóhannsson, Hreinn Haraldsson og Rósa Guðbjartsdóttir sögðu nokkur orð við athöfnina og sögu mislæg gatnamót á þessum fjölfarna stað auka umferðaröryggi og væri mikil samgöngubót að verkinu.

Hreinn Haraldsson sagði nokkur orð í upphafi athafnarinnar og þakkaði meðal annars fyrrverandi samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra fyrir hlut hans í að koma verkinu af stað.

Hreinn Haraldsson sagði nokkur orð í upphafi athafnarinnar og þakkaði meðal annars fyrrverandi samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra fyrir hlut hans í að koma verkinu af stað.

Klippt á borðann og samgöngumannvirkið formlega opnað.

Klippt á borðann og samgöngumannvirkið formlega opnað. Frá vinstri: Andrés Konráðsson, Guðlaug Kristjánsdóttir, Sigurður Ingi Jóhannsson, Jón Gunnarsson, Hreinn Haraldsson, Rósa Guðbjartsdóttir og Dofri Eysteinsson.

Sigurður Ingi Jóhannsson í viðtali - nýja brúin í baksýn.

Sigurður Ingi Jóhannsson í viðtali - nýja brúin í baksýn.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum