Hoppa yfir valmynd
2. júlí 2015 Utanríkisráðuneytið

Vilji til að skoða frekara samstarf Íslands og Bandaríkjanna í öryggis- og varnarmálum

Gunnar Bragi og Work

Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra átti í gær fund í Pentagon með aðstoðarvarnarmálaráðherra Bandaríkjanna Robert S Work,sem tók við embætti fyrir rúmu ári. Ræddu ráðherrarnir þróun varnar- og öryggismála í Norður-Evrópu, m.a. með tilliti til umsvifa rússneska heraflans og aðgerða Rússa í Úkraínu og víðar. Work sagði skuldbindingu Bandaríkjanna um að verja Ísland algerlega óhaggaða og lýsti vilja til þess að skoða möguleika til frekara samstarfs ríkjanna á sviði öryggis- og varnarmála. Hann sagði Ísland lykilbandamann og að staðsetning landsins hafi áfram strategískt mikilvægi eins og það hafi haft alla tíð. Work bar einnig lof á leiðandi hlutverk Íslands í að efla svæðisbundið samstarf á sviði norðurslóða, s.s. varðandi leit og björgun.

Gunnar Bragi sagði að Bandaríkjanna biði vandasamt verkefni, þau tækju við formennsku í Norðurskautsráðinu á tímum væringa í Evrópu og aukinnar spennu í samskiptum við Rússa. Jafnframt sagði hann vonir standa til þess að Rússar virði Minsk samkomulagið og láti af ögrandi aðgerðum þannig að gott samstarf innan Norðurskautsráðsins raskist ekki.

Undir lok dags flutti Gunnar Bragi erindi um málefni norðurslóða og hagsmuni Íslands í hugveitunni Center for Strategic and International Studies. Umræðum stýrði framkvæmdastjóri CSIS,Dr. John Hamre, sem gegndi stöðu aðstoðarvarnarmálaráðherra Bandaríkjanna frá 1997 til 2000. Ráðherra ræddi áherslur Íslands í norðurslóðasamstarfi, formennsku Bandaríkjanna í Norðurskautsráðinu og öryggishagsmuni Íslands.

Upptaka af erindi utanríkisráðherra hjá CSIS

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum