Hoppa yfir valmynd
10. nóvember 2016 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Stjórnsýslukæra vegna ákvörðunar ríkisskattstjóra um leiðréttingu verðtryggðra fasteignaveðlána

[…]
[…]
[…]

Reykjavík 10. október 2016
Tilv.: FJR16050105/16.2.1


Vísað er til stjórnsýslukæru [A], kt. […], og [B], kt. […], sem móttekin var með tölvupósti hinn 29. maí sl., þar sem kærð er til ráðuneytisins ákvörðun ríkisskattstjóra frá 24. nóvember 2015, um leiðréttingu verðtryggðra fasteignaveðlána. Ráðuneytið ákvað á grundvelli heimildar í 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 að taka kæruna til meðferðar þar sem á skorti um leiðbeiningu um málskotsrétt kærenda í ákvörðun ríkisskattsjóra.

Málavextir og málsástæður
Ákvörðun ríkisskattstjóra, dags. 24. nóvember 2015
Í ákvörðun ríkisskattstjóra greinir að einstaklingum hafi verið heimilað skv. 1. mgr. 3. gr. laga nr. 35/2014, um leiðréttingu verðtryggðra fasteignaveðlána, að sækja um leiðréttingu á lánum sem lögin tóku til. Umsóknartímabil vegna leiðréttingar á verðtryggðum fasteignaveðlánum hafi verið frá 15. maí til 1. september 2014 skv. 1. mgr. 4. gr. sömu laga og bar einstaklingum að beina umsókn sinni til ríkisskattstjóra á rafrænu formi í gegnum þjónustusíðuna leidretting.is. Fram kemur að leiðrétting lána hafi byggst á því að einstaklingar sem eftir henni óskuðu áttu að eiga frumkvæði að því að koma þeirri ósk á framfæri við ríkisskattstjóra með þeim hætti sem umrædd lög og útfærsla þeirra kvað á um og innan lögfestra tímamarka.

Í ákvörðun ríkisskattstjóra er umsóknarferilinn rakinn. Þar greinir að innskráning á þjónustusíðuna leidretting.is hafi hvort tveggja verið möguleg með veflykli ríkisskattstjóra eða rafrænum skilríkjum. Í ferlinu hafi einstaklingar einnig veitt upplýsingar um tölvupóstfang sitt. Á forsíðu þjónustusíðunnar hafi einstaklingar getað sótt um leiðréttingu fasteignaveðlána, ráðstöfun á séreignarsparnaði eða bæði úrræðin. Fram kemur að við umsókn um leiðréttingu hafi einstaklingar átt kost á að yfirfara þær upplýsingar sem lagðar yrðu til grundvallar við afgreiðslu umsókna þeirra. Þá greinir að til þess að umsókn yrði gild og skil á henni ætti sér stað þurftu einstaklingar annars vegar að staðfesta að viðkomandi lánveitendum væri heimilað að miðla nauðsynlegum upplýsingum og gögnum til ríkisskattstjóra og hins vegar að velja að senda umsókn.

Í ákvörðun ríkisskattstjóra greinir að samkvæmt athugun embættisins í umsjónarkerfi leiðréttingarinnar og atvikaskráningarkerfi ríkisskattstjóra liggi fyrir að fyrsta innskráning kærenda á þjónustusíðuna leidretting.is hafi verið þann 24. maí 2014. Fram kemur að ekki hafi verið lokið við umsóknarferlið á þann hátt að umsókn um leiðréttingu hafi verið send. Af þeim sökum hafi ekki verið sótt um leiðréttingu innan lögákveðins umsóknartímabils og að ríkisskattstjóra hafi skort lagaheimild til að taka við umsóknum um leiðréttingu verðtryggðra fasteignaveðlána að umsóknartímabili loknu.

Stjórnsýslukæra, móttekin 29. maí 2016
Af kærunni má ráða að niðurstöðu ríkisskattstjóra sé mótmælt á þeirri forsendu að kærendur hafi farið inn á vef ríkisskattstjóra innan hins lögbundna umsóknartímabils og skráð tölvupóstfang sitt þar enda hafi eini tilgangur skráningarinnar verði að sækja um leiðréttingu. Fram kemur að kærendur telja sig hafa klárað umsóknarferlið.

Umsögn ríkisskattstjóra, dags.6. september 2016
Með bréfi, dags. 4. júlí sl., óskaði ráðuneytið eftir umsögn ríkisskattsjóra um framkomna stjórnsýslukæru ásamt því að þau gögn sem málið kynnu að varða yrðu send ráðuneytinu. Sú beiðni var ítrekuð með bréfi, dags. 24. ágúst sl. Umsögn barst ráðuneytinu með bréfi, dags. 6. september sl.

Í umsögn ríkisskattstjóra greinir að þann 24. maí 2014 sé skráð innskráning á vefsíðuna leidretting.is á kennitölu kæranda með veflykli. Við innskráninguna hafi kærandi komið inn á síðu þar sem krafist er skráningar á netfangi og því næst hafi kærandi opnað umsókn um höfuðstólsleiðréttingu. Fram kemur að ekkert í atvikaskráningu ríkisskattstjóra sýni að lokið hafi verið við umsókn um höfuðstólsleiðréttingu og ekki verði annað séð en að hin sjálfvirka atvikaskráningin hjá ríkisskattstjóra sé rétt.

Varðandi þá málsástæðu kæranda að í fréttum hafi komið fram að misfellur hafi orðið hjá einhverjum einstaklingum varðandi umsóknarferlið bendir ríkisskattstjóri á að sú frétt sem kærandi vísi til taki til samþykktarferils leiðréttingarfjárhæðar og ráðstöfunar hennar. Fram kemur að ekki hafi verið um slíkra hnökra að ræða í umsóknarferlinu, enda hafi það ferli verið af öðrum toga en samþykktarferlið.

Forsendur og niðurstaða

Í máli þessu er deilt um hvort að kærendur hafi sótt um leiðréttingu verðtryggðra fasteignaveðlána innan lögbundins umsóknartímabils.

Í ákvörðun ríkisskattstjóra greinir að við skoðun embættisins í umsóknarkerfi leiðréttingarinnar og atvikaskráningarkerfi þess hafi kærendur skráð sig inn á þjónustusíðuna leidretting.is þann 24. maí 2014 en hafi ekki lokið við umsóknarferlið með því að senda umsókn um leiðréttingu verðtryggðra fasteignaveðlána. Kærendur hafi því ekki sótt um leiðréttingu innan lögákveðins umsóknartímabils, sbr. 1. mgr. 4. gr. laga nr. 35/2014, og að ríkisskattstjóra hafi skort lagaheimild til að taka við umsóknum um leiðréttingu verðtryggðra fasteignaveðlána að útrunnu umsóknartímabili.

Ráðuneytinu er kunnugt um, líkt og fram kemur í minnisblaðinu sem fylgdi erindi kærenda, að allar upplýsingar varðandi umsóknir um leiðréttingu verðtryggðra fasteignalána á vefnum leidretting.is hafi verið sóttar til umsóknarkerfis leiðréttingarinnar með vefþjónustum og að allar færslur á vefnum hafi verið skráðar af umsjónarkerfinu. Þá hafi allar aðgerðir sem einstaklingar framkvæmdu á vefnum verið skráðar í atvikaskráningarkerfi embættisins af vefnum sjálfum ásamt því að hafa verið skráðar í umsóknarkerfið sem lagði til upplýsingarnar. Því hafi verið til staðar tvöföld atvikaskráning til viðbótar við vistun á viðeigandi gögnum í gagnagrunni. Allar tilraunir einstaklinga til auðkenningar/innskráningar hafi verið skráðar í atvikaskráningarkerfi embættisins hvort sem þær báru árangur eða ekki. Þá hafi allar aðgerðir sem einstaklingur framkvæmdi á vefnum eftir að hann hafði auðkennt sig verið skráðar með sama hætti. Í þessu sambandi má nefna að í skráningu ríkisskattstjóra, sem ráðuneytið fékk senda frá embættinu, sést að kærandi opnar umsóknina þann 24. maí 2014, skráir þar inn netfangið [email protected], en ekki er að finna skráningu um að umsókn hafi verið send. Næsta skráning sem framkvæmd var af kæranda var hinn 10. nóvember 2014.

Samkvæmt 1. mgr. 4. gr. laga nr. 35/2014 var umsóknartímabil fyrir leiðréttingu verðtryggða fasteignaveðlána frá 15. maí til 1. september 2014. Í 2 mgr. greinarinnar er tilgreint hverjum er heimilt að sækja um leiðréttingu verðtryggra fasteignaveðlána og í 3. mgr. 4. gr. er tilgreint að umsókn skuli beint til ríkisskattstjóra á því formi sem hann ákveður og skuli málsmeðferðin vera rafræn. Þá skuli umsækjandi staðfesta að hann heimili viðkomandi lánveitanda að miðla nauðsynlegum upplýsingum og gögnum til ríkisskattstjóra um viðkomandi fasteignaveðlán. Í 5. mgr. 4. gr. er tilgreint að ef umsækjandi veitir ekki þær upplýsingar eða leggur ekki fram þau gögn sem óskað er eftir í rafrænu umsóknarferli skuli hafna umsókn.

Með lögunum var ríkisskattstjóra falið að annast móttöku umsókna um leiðréttingu verðtryggðra fasteignaveðlána og afgreiðslu þeirra. Í athugasemdum við frumvarp það sem varð að lögum um leiðréttingu verðtryggðra fasteignaveðlána er undirstrikað að framkvæmd leiðréttingar skuli háð frumkvæði einstaklinganna sjálfra. Samkvæmt upplýsingum frá embætti ríkisskattstjóra birtist umsækjendur sem sóttu um leiðréttingu tilkynning þess efnis að umsókn um leiðréttingu hefði verið móttekin um leið og ýtt hafði verið á hnappinn „Senda umsókn“. Jafnframt var hægt að nálgast staðfestingu undir flipanum „Samskipti“ á vefsvæði umsækjenda á leidretting.is.

Fram hefur komið að kærendur hafi farið inn á vef ríkisskattsjóra leidretting.is hinn 24. maí 2014 en ekki lokið við umsóknarferlið með því að senda umsókn um leiðréttingu verðtryggðra fasteignaveðlán. Ríkisskattstjóri móttók því ekki umsókn um leiðréttingu frá kærendum og því voru forsendur til leiðréttingar ekki til staðar. Ráðuneytið telur ljóst að ef kærendur hefðu sent umsókn um leiðréttingu verðtryggðra fasteignaveðlána eða ef villa hefði komið upp við að senda umsóknina væri þá aðgerð að finna í skráningarkerfum ríkisskattstjóra auk þess sem kærendum hefði átt að berast tilkynning um móttöku umsóknar.

Líkt og áður greinir var frumkvæði að umsókn um leiðréttingu á ábyrgð og forræði einstaklinganna sjálfra. Hin lögbundnu skilyrði sem tilgreind eru m.a. í 4. gr. laga nr. 35/2014 eru ófrávíkjanleg og einstaklingar sem ekki sóttu sannanlega um leiðréttingu á vef ríkisskattstjóra innan þess umsóknartímabils sem lögin kveða á um teljast ekki eiga rétt á leiðréttingu verðtryggðra fasteignaveðlána. Með vísan til framangreinds er það því mat ráðuneytisins að staðfesta beri ákvörðun ríkisskattstjóra.

Úrskurðarorð

Ákvörðun ríkisskattstjóra er staðfest.

Fyrir hönd ráðherra


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum