Hoppa yfir valmynd
21. apríl 2023 Utanríkisráðuneytið

Bakslag í bólusetningum barna

Ljósmynd: UNICEF - mynd

Um 67 milljónir barna hafa misst af einni eða fleiri bólusetningum á síðastliðnum þremur árum, samkvæmt nýrri skýrslu UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. Ýmsar ástæður liggja að baki en heimsfaraldur COVID-19 spilar þar stórt hlutverk. Í skýrslunni kemur fram að þegar heimsfaraldurinn var í hámarki minnkaði traust almennings til bólusetninga í 52 löndum af þeim 55 sem voru rannsökuð fyrir skýrslugerðina. Í flestum tilvikum var fólk yngra en 35 ára og konur í meirihluta þeirra sem segjast bera minna traust til bólusetninga barna eftir að faraldurinn hófst.  

Á hverju ári gefur UNICEF út skýrslu um stöðu barna í heiminum og er umfjöllunarefnið í ár bólusetningar vegna þess bakslags sem hefur átt sér stað í bólusetningum barna. Í fyrra bentu UNICEF og Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) á að heimsfaraldur COVID-19 hefði ýtt undir mestu afturför í bólusetningum barna í þrjá áratugi. Í nýju skýrslunni er varað við því að 67 milljónir barna hafi misst af reglubundnum bólusetningum á árunum 2019 til 2021 og að bólusetningum hafi fækkað í 112 löndum. Ef ekki er gripið inn í er heimurinn því langt frá því að ná heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um bólusetningar barna.

„UNICEF bendir á að það sé þörf á að afla frekari gagna til að sjá hvort minnkandi traust sé tímabundið ástand eða til marks um langtímaþróun. Góðu fréttirnar eru þær að stuðningur við bólusetningar barna við margvíslegum sjúkdómum á borð við mænusótt, mislinga og barnaveiki er áfram tiltölulega hár og í næstum helmingi þeirra 55 ríkja sem voru hluti af rannsókninni töldu yfir 80 prósent svarenda bóluefni mikilvæg fyrir börn,“ segir í frétt á vef UNICEF á Íslandi.

„Þegar heimsfaraldurinn stóð sem hæst náðu vísindamenn að þróa hratt bóluefni sem bjargaði ótal lífum. En þrátt fyrir þann sögulega árangur dreifðist ótti og rangar upplýsingar um hinar ýmsu tegundir bóluefna jafn víða og vírusinn sjálfur,” segir Catherine Russell, framkvæmdastjóri UNICEF. „Þessi gögn eru viðvörunarmerki sem vert er að hafa áhyggjur af. Við getum ekki leyft því að gerast að traust á venjubundnum bólusetningum verði enn eitt fórnarlamb heimsfaraldursins. Þá gæti næsta bylgja dauðsfalla orðið meðal barna með mislinga, barnaveiki eða aðra sjúkdóma sem hægt er að koma í veg fyrir.”  

Mislingatilfelli tvöfaldast milli ára

Árlega styðja UNICEF og samstarfsaðilar bólusetningar gegn lífshættulegum sjúkdómum hjá hátt í helmingi allra barna í heiminum í yfir 100 löndum sem bjarga lífi tveggja til þriggja milljóna barna á hverju ári. Heimsfaraldur COVID-19 hafði áhrif á bólusetningar barna nánast um allan heim, sérstaklega vegna álags á heilbrigðiskerfi, skorts á heilbrigðisstarfsfólki og sóttvarnaraðgerða. Börn sem fæddust rétt fyrir og í faraldrinum misstu því mörg af fyrstu bólusetningunum sínum og því brýnt að bregðast við til að koma í veg fyrir að banvænir sjúkdómar fari að breiðast út aftur. Sem dæmi má nefna að árið 2022 ríflega tvöfölduðust tilfelli mislinga samanborið við árið á undan. Fjöldi barna sem lömuðust vegna mænusóttar jókst um 16% á sama tímabili. 

Til eru bóluefni við þessum hættulegu sjúkdómum en alltof mörg börn, sérstaklega í jaðarsettustu samfélögunum, fá ekki notið þeirra. Af þeim 67 milljónum barna sem misstu af reglubundnum bólusetningum milli 2019 og 2021 voru 48 milljónir barna sem fengu engar bólusetningar (svokallað “zero-dose”). Undir lok árs 2021 voru flest þeirra barna búsett á Indlandi og í Nígeríu. Þau gögn sem kynnt eru í skýrslunni sýna vel þetta misrétti og þar kemur fram að 1 af hverjum 5 börnum sem búa á efnaminnstu heimilunum höfðu ekki fengið neina bólusetningu á meðan talan var eitt af hverjum tuttugu börnum í þeim efnameiri. Börn sem hafa ekki fengið neina bólusetningu búa oft á dreifbýlum svæðum sem erfitt er að ná til eða í fátækrahverfum stórborga.  

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum