Hoppa yfir valmynd
7. október 2021 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 376/2021 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 376/2021

Fimmtudaginn 7. október 2021

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 26. júlí 2021, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 22. júlí 2021, um að fella niður bótarétt hans í þrjá mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 17. nóvember 2020 og var umsókn hans samþykkt 11. janúar 2021. Þann 15. júní 2021 fékk kærandi tölvupóst og smáskilaboð í farsíma sinn frá Vinnumálastofnun þar sem hann var boðaður í símaviðtal hjá stofnuninni þann 16. júní 2021 sem honum bæri skylda til að sinna. Þegar hringt var í kæranda á áður boðuðum tíma var slökkt á farsímanum. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 2. júlí 2021, var óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda vegna þessa og vakin athygli á því að samkvæmt 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar geti þeir sem ekki mæti til stofnunarinnar á áður boðuðum tíma þurft að sæta biðtíma á grundvelli laganna. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 22. júlí 2021, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006. 

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála þann 26. júlí 2021. Með erindi úrskurðarnefndar 27. júlí 2021 var óskað eftir að kærandi legði fram afrit af hinni kærðu ákvörðun. Sú beiðni var ítrekuð 13. ágúst 2021. Þann 25. ágúst 2021 barst hin kærða ákvörðun frá Vinnumálastofnun vegna beiðni úrskurðarnefndarinnar þar um. Með bréfi, dags. 25. ágúst 2021, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 14. september 2021. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 15. september 2021, var greinargerð Vinnumálastofnunar send kæranda til kynningar. Viðbótargögn bárust frá kæranda þann 24. september 2021.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að síminn hans hafi verið bilaður þegar hann hafi fengið boðun í símaviðtal 16. júní 2021. Síminn hafi verið í viðgerð hjá Nova frá 9. júní til 18. júní. Kærandi greinir frá því að hann hafi mætt til Vinnumálastofnunar daginn eftir og fengið annan símafund og þar með komið þessum upplýsingum áleiðis, ásamt því að fá upplýsingar um atvinnuviðtal frá B þann 11. júní sem hann hafi misst af sökum símaleysis. Þegar kærandi hafi svo haft samband hafi verið búið að ráða í starfið. Kærandi tekur fram að hann hafi sjálfur mætt til Vinnumálastofnunar, óskað eftir öðrum símafundi ásamt því að uppfæra ferilskrá sína og hafa samband við B til að athuga með starfið. 

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi síðast sótt um greiðslur atvinnuleysistrygginga hjá Vinnumálastofnun þann 17. nóvember 2020. Þann 15. júní 2021 hafi kærandi fengið tölvupóst og smáskilaboð í farsíma sinn frá stofnuninni þar sem hann hafi verið boðaður í símaviðtal hjá stofnuninni þann 16. júní 2021 á milli klukkan 11.00 og 12:00. Kæranda hafi verið bent á að um væri að ræða úrræði sem honum bæri skylda til að sinna og að öll forföll þyrfti að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Forföll hafi borið að tilkynna á netfangið [email protected]. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að ef ekki næðist í hann gæti það valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Þann 16. júní 2021 hafi ráðgjafi stofnunarinnar hringt í kæranda en slökkt hafi verið á síma hans.

Þann 22. júní 2021 hafi kærandi komið á þjónustuskrifstofu stofnunarinnar þar sem hann hafi verið að bregðast við símtölum sem hann hafi misst af. Kærandi hafi sagt að síminn hans hefði verið bilaður og að hann hefði ekki áttað sig á því en væri kominn með nýjan síma. Kæranda hafi verið bent á að senda stofnuninni skýringarbréf hvers vegna ekki hafi náðst í hann. Engar skýringar hafi borist í framhaldinu. Þann 2. júlí 2021 hafi stofnunin sent kæranda bréf þar sem óskað hafi verið eftir skýringum frá kæranda á því hvers vegna hann hafi hvorki svarað símtölum né tölvupóstum frá stofnuninni. Í erindi til kæranda hafi verið vakin athygli á 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Engar skýringar hafi borist.

Vinnumálastofnun hafi fjallað um mál kæranda á fundi þann 22. júlí 2021. Á grundvelli fyrirliggjandi gagna hafi bótaréttur kæranda verið felldur niður í þrjá mánuði sem annars hefðu verið greiddar atvinnuleysisbætur fyrir með vísan til 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna og sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir. Mál þetta lúti að ákvörðun Vinnumálastofnunar um að stöðva greiðslur atvinnuleysistrygginga til kæranda þar sem hann hafi ekki sinnt boðuðu símaviðtali með ráðgjafa Vinnumálastofnunar.

Samkvæmt a-lið 13. gr. og g-lið 1. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé eitt af skilyrðum fyrir atvinnuleysistryggingum launamanna að viðkomandi sé virkur í atvinnuleit og í því felist meðal annars að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum sem standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsúrræði komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum og mæta í viðtöl hjá ráðgjöfum Vinnumálastofnunar. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Í 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar segi svo:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins. Ákvæðið eigi einnig við ef atvinnuleitandi mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma.

Það liggi fyrir að kærandi hafi ekki svarað símtali stofnunarinnar þann 16. júní 2021 en honum hafi verið send boðun í viðtal með tölvupósti og í uppgefið símanúmer hans þann 15. júní 2021, klukkan 12:43. Kærandi hafi ekki gefið neinar skýringar til stofnunarinnar þegar þess hafi verið óskað en í kæru til úrskurðarnefndarinnar komi fram að síminn hans hafi verið bilaður og hafi verið í viðgerð frá 9. júní til 18. júní. Kveðist kærandi hafa mætt daginn eftir og hafi þá fengið annan símafund þar sem hann hafi talið sig koma þessum upplýsingum áleiðis ásamt því að fá upplýsingar um atvinnuviðtal hjá B þann 11. júní 2021 sem hann hafi misst af sökum símaleysis. Kærandi segi að hann hafi sjálfur farið til Vinnumálastofnunar og óskað eftir öðrum símafundi ásamt því að uppfæra ferilskrána og haft samband við B til að athuga með starfið.

Vinnumálastofnun árétti að kærandi hafi mætt á þjónustuskrifstofu stofnunarinnar þann 22. júní 2021, eða sjö dögum eftir boðað símaviðtal og hafi síðan mætt aftur á þjónustuskrifstofu stofnunarinnar þann 30. júní 2021 vegna þess að hann hafði misst af símtölum frá B sem stofnunin hafi fengið tilkynningu um þann 25. júní 2021. Þá hafði atvinnurekandi reynt að ná í kæranda í um það bil viku. Auk þess hafi kæranda verið í lófa lagið að láta stofnunina vita af umræddu símaleysi í kjölfar tölvupósts sem honum hafi borist degi áður en boðað símaviðtal hafi átt að fara fram og eftir atvikum gefið upp annað símanúmer svo að unnt væri að ná í kæranda.

Vinnumálastofnun bendi á að í umsókn sinni um atvinnuleysisbætur þann 17. nóvember 2020 hafi kæranda borið að skrá inn bæði netfang og símanúmer svo að stofnuninni væri unnt að senda honum nauðsynlegar upplýsingar vegna umsóknar hans, þar með talið boðanir á fundi og viðtöl á vegum stofnunarinnar. Þann 15. júní 2021 hafi kærandi verið boðaður í símaviðtal við ráðgjafa Vinnumálastofnunar.

Boðunin hafi verið send á skráð netfang kæranda hjá stofnuninni og í símanúmer hans þann 15. júní 2021, kl. 12:43. Þá hafi kærandi einnig getað nálgast umrædda boðun á „mínum síðum“ Vinnumálastofnunar.

Hvað varði athugasemdir kæranda um boðun á fund stofnunarinnar skuli í fyrsta lagi nefna að tilkynning hafi bæði verið send á netfang, birt á „mínum síðum“ og send í síma kæranda. Í öðru lagi beri að nefna að kærandi hafi óskað eftir rafrænum samskiptum við Vinnumálastofnun.

Í samræmi við 6. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006 hafi Vinnumálastofnun óskað eftir afstöðu atvinnuleitanda til samskiptamáta stofnunarinnar. Þegar atvinnuleitandi óski eftir rafrænum samskiptum við stofnunina hafi Vinnumálastofnun komið upplýsingum og boðum til þeirra atvinnuleitenda með tölvupósti, smáskilaboðum og tilkynningu á „mínum síðum“. Það sé mat Vinnumálastofnunar að kærandi geti ekki borið fyrir sig að hann hafi ekki vitað af umræddu símaviðtali, enda hafi stofnunin nýtt sér þær samskiptaleiðir sem kærandi hafði óskað eftir. Í ljósi þess að rík skylda hvíli á umsækjendum um atvinnuleysisbætur til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum og að tilkynna Vinnumálastofnun um allar þær breytingar sem verði á högum þeirra, sé það mat Vinnumálastofnunar að þær skýringar sem kærandi hafi fært fram teljist ekki gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar og að með því að svara ekki símtali frá stofnuninni hafi hann brugðist skyldum sínum samkvæmt 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Það sé því niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum á grundvelli 58. gr., sbr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, en um sé að ræða niðurfellingu bótaréttar öðru sinni.

Það sé afstaða Vinnumálastofnunar að kærandi eigi að sæta viðurlögum á grundvelli 58. gr. laga, sbr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, og að ákvörðun stofnunarinnar frá 22. júlí 2021 skuli standa.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður bótarétt kæranda í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr.,  3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:

„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“

Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.

Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.

Í gögnum málsins liggur fyrir að ráðgjafi Vinnumálastofnunar hugðist taka símaviðtal við kæranda 16. júní 2021 sem kæranda var tilkynnt um daginn áður. Tekið var fram að um væri að ræða úrræði sem kæranda bæri skylda til að sinna og að öll forföll bæri að tilkynna án tafar. Þá var kæranda bent á að ef ekki næðist í hann á uppgefnum tíma gæti það valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Þegar hringt var í kæranda var slökkt á farsíma hans. Kærandi kom á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar þann 22. júní 2021 og gaf þær skýringar að farsími hans hefði verið bilaður.

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur með umsókn, dags. 17. nóvember 2021. Samkvæmt fyrirliggjandi samskiptasögu kæranda og Vinnumálastofnunar var honum þann 18. nóvember 2021 greint frá því að ítarlegar upplýsingar um réttindi og skyldur væri að finna á heimasíðu Vinnumálastofnunar og að hann þyrfti að láta vita um allar breytingar á högum sínum, þar á meðal breytingar á heimilisfangi, símanúmeri, netfangi og fleira. Á heimasíðu stofnunarinnar kemur fram að atvinnuleitandi skuli upplýsa Vinnumálastofnun tafarlaust um allar breytingar sem verða á högum og kunni að hafa áhrif á rétt hans á þeim tíma er hann fái greiddar atvinnuleysisbætur. Sé ekki tilkynnt um slíkar breytingar geti það leitt til biðtíma eða annarra viðurlaga samkvæmt lögum. Talin eru upp dæmi um slíkar breytingar og er breytingar á símanúmeri þar á meðal. Í samræmi við framangreinda skyldu bar kæranda því að láta Vinnumálastofnun vita um leið og farsíminn fór í viðgerð að símanúmer hans væri ekki virkt.

Í máli þessu liggur fyrir að kærandi var boðaður til Vinnumálastofnunar með sannanlegum hætti, með tölvupósti, smáskilaboðum og skilaboðum á „mínum síðum“. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram gildar skýringar sem réttlæta að hann hafi ekki mætt á boðaðan fund hjá Vinnumálastofnun. Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildi þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Ákvæðið er fortakslaust og því er ekki heimilt að beita vægari úrræðum en þar er kveðið á um.

Í 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um ítrekunaráhrif fyrri viðurlagaákvarðana. Ákvæðið er svohljóðandi:

„Sá sem hefur sætt viðurlögum skv. 57.–59. gr. eða biðtíma skv. 54. eða 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greinir á sér stað að nýju á sama tímabili skv. 29. gr. skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi er ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif liggur fyrir enda hafi hann fengið greiddar atvinnuleysisbætur skemur en samtals 24 mánuði á sama tímabili skv. 29. gr. Hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili skv. 29. gr. þegar atvik sem lýst er í 1. málsl. á sér stað skal hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr.“

Samkvæmt gögnum málsins var bótaréttur kæranda felldur niður í tvo mánuði þann 11. janúar 2021 á grundvelli 54. gr. laga nr. 54/2006. Þar sem um sama bótatímabil er að ræða, sbr. 29. gr. laganna, bar Vinnumálastofnun að láta kæranda sæta viðurlögum samkvæmt 1. mgr. 61. gr. laganna. Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður bótarétt kæranda í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. laga nr. 54/2006, staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 22. júlí 2021, um að fella niður bótarétt A, í þrjá mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum