Hoppa yfir valmynd
2. september 2011 Utanríkisráðuneytið

Opinber heimsókn Kuupik Kleist, formanns grænlensku landstjórnarinnar

Kuupik Kleist, formaður grænlensku landstjórnarinnar, kemur í opinbera heimsókn til Íslands mánudag, 5. september til 7. september. Hann mun eiga fundi með forsætisráðherra, Jóhönnu Sigurðardóttur, Össuri Skarphéðinssyni utanríkisráðherra og Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra og ræða sameiginleg hagsmunamál Íslands og Grænlands, auk þess sem hann snæðir kvöldverð í boði forseta Íslands, Ólafs Ragnars Grímssonar.

Á meðan dvöl formanns grænlensku landsstjórnarinnar stendur mun hann heimsækja Alþingi, kynna sér orkumál og öryggis- og björgunarstörf ofl. Í tengslum við heimsóknina efnir Íslandsstofa einnig til sérstakrar kynningar á tækifærum til viðskipta og fjárfestinga fyrir íslensk fyrirtæki á Grænlandi,  þriðjudaginn 6. september.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum