Hoppa yfir valmynd
11. febrúar 2021 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 462/2020 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 462/2020

Fimmtudaginn 11. febrúar 2021

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 25. september 2020, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 25. september 2020, um nýtingu bótatímabils.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 2. september 2020. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 25. september 2020, var kæranda tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að hann væri búinn með 29,99 af 30 mánaða bótatímabili.

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 25. september 2020. Með bréfi, dags. 29. september 2020, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar vegna kærunnar. Með bréfi, dags. 19. október 2020, barst greinargerð Vinnumálastofnunar þar sem fram kom að hin kærða ákvörðun hefði verið afturkölluð þar sem kærandi hafi áunnið sér rétt til nýs bótatímabils. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 9. nóvember 2020, var óskað eftir afstöðu kæranda vegna greinargerðar Vinnumálastofnunar. Svar barst ekki.

II.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 25. september 2020, um nýtingu bótatímabils kæranda. Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndarinnar var vísað til þess að stofnunin hefði afturkallað hina kærðu ákvörðun þar sem kærandi hafi áunnið sér rétt til nýs bótatímabils. Úrskurðarnefndin óskaði eftir afstöðu kæranda til greinargerðar Vinnumálastofnunar en svar barst ekki.

Úrskurðarnefnd velferðarmála kveður upp úrskurði um ágreiningsefni sem kunna að rísa á grundvelli laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar, sbr. 11. gr. laganna. Af gögnum málsins verður ekki ráðið að ágreiningur sé til staðar á milli kæranda og Vinnumálastofnunar. Þar sem enginn ágreiningur er til staðar í máli þessu er kæru vísað frá úrskurðarnefndinni.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum