Hoppa yfir valmynd
17. nóvember 2016 Dómsmálaráðuneytið

Úrskurður nr. 452/2016

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 17. nóvember 2016 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 452/2016

í stjórnsýslumáli nr. KNU16090063

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Með stjórnsýslukæru, dags. 11. október 2016, kærði[...], fd. [...], ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi) þá ákvörðun Útlendingastofnunar, dags 20. september 2016, að synja honum um hæli á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 12. gr. f laga nr. 96/2002 um útlendinga. Kærandi sótti um hæli hér ásamt eiginkonu sinni, [...].

Kærandi krefst þess aðallega að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og kæranda verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga. Til vara er þess krafist að kæranda verði veitt dvalarleyfi hér á landi á grundvelli 12. gr. f útlendingalaga. Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 1. mgr. 30. gr. útlendingalaga og barst kæran fyrir lok kærufrests, sbr. 3. mgr. 30. gr. sömu laga.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi kom hingað til lands ásamt eiginkonu sinni, [...], og sóttu þau um hæli þann 5. september 2016 hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Kærandi mætti í fyrsta viðtal hjá Útlendingastofnun þann 7. september s.á. og annað viðtal þann 15. september s.á., ásamt löglærðum talsmanni sínum. Ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 20. september 2016, um að synja kæranda um hæli og dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða eða sérstakra tengsla við landið, var birt honum þann 27. september s.á. og óskaði kærandi samdægurs eftir frestun réttaráhrifa. Fallist var á frestun réttaráhrifa á meðan málið væri til kærumeðferðar með bréfi kærunefndar, dags. 28. september 2016, með þeim fyrirvara að kæra bærist kærunefnd útlendingamála innan 15 daga frá birtingu hinnar kærðu ákvörðunar. Kærandi kærði ákvörðunina þann 11. október 2016. Greinargerð vegna kæru barst kærunefnd útlendingamála þann 18. október s.á.

Kæra þessi er afgreidd á grundvelli 2. mgr. 3. gr. b útlendingalaga, sbr. lög nr. 38/2016. Gagnaöflun er lokið og er málið hér með tekið til úrskurðar.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Niðurstaða Útlendingastofnunar var sú að kærandi sé ekki flóttamaður og honum skuli synjað um hæli á Íslandi skv. ákvæðum 44. gr. útlendingalaga. Þá verði kæranda ekki veitt dvalarleyfi á grundvelli 12. gr. j sömu laga. Kæranda var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða og vegna sérstakra tengsla við landið skv. 12. gr. f útlendingalaga. Að þessari niðurstöðu hafi verið komist að virtum ákvæðum 45. gr. sömu laga.

Kæranda var vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 18. gr. útlendingalaga, sbr. 2. mgr. 56. gr. reglugerðar nr. 53/2003 um útlendinga. Útlendingastofnun tilkynnti kæranda jafnframt að kæra frestaði ekki réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. c-lið 1. mgr. 32. gr. útlendingalaga.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að hann hafi sótt um vernd hér á landi vegna hótana og fjárkúgana af hálfu manns að nafni [...]. Sá sé leiðtogi glæpagengis í heimalandi kæranda, [...], en hafi á árum áður verið lífvörður og bílstjóri [...] þingmanns. [...]. Brotist hafi verið inn í fyrirtæki í eigu föður hans með tilheyrandi eyðileggingu og hótunum í kjölfarið. Þá hafi kærandi ekki þorað annað en að flýja land vegna frétta í heimalandi sínu um glæpamenn sem hafi sprengt upp vinnustaði og sett sprengjur undir bíla einstaklinga sem neiti að greiða þeim.

Í greinargerð kæranda er jafnframt að finna ítarlega umfjöllun um aðstæður og ástandið í [...]. Spilling sé mikið vandamál í landinu og réttarkerfi landsins skorti sjálfstæði, gagnsæi og virkni. Þá sé skipulögð glæpastarfsemi umfangsmikil. [...] mafían sé bæði tengd skipulagðri glæpastarfsemi og pólitískri starfsemi. Þá hafi tilkoma sérstakrar nefndar árið 2012, til að taka á skipulagðri glæpastarfsemi, ekki skilað tilætluðum árangri. Ásamt spillingu í réttarkerfinu séu spilling í heilbrigðiskerfinu, heimilisofbeldi og mismunun gegn konum alvarlegustu mannréttindabrotin í landinu. Þrátt fyrir tilkomu laga sem mæli fyrir um harðari refsingar við opinberri spillingu hafi lögin ekki verið innleidd á árangursríkan hátt.

Þá gagnrýnir kærandi einnig umfjöllun Útlendingastofnunar um [...]. Stofnunin láti að því liggja að lögregluyfirvöld og dómskerfið séu í góðu lagi og veiti borgurunum fullnægjandi vernd. Í ákvörðun stofnunarinnar komi fram að frásögn kæranda sé metin trúverðug en þó gefi upplýsingar sem fyrir liggi um [...] tilefni til að ætla að kærandi eigi raunhæfan möguleika á að leita aðstoðar [...] yfirvalda. Kærandi telji ýmsar upplýsingar aftur á móti benda til þess að ekki sé fótur fyrir framangreindum staðhæfingum Útlendingastofnunar þar sem spilling, ófagleg vinnubrögð og refsileysi séu enn alvarleg vandamál í landinu. Við mat á þörf einstaklings fyrir vernd þurfi því að meta hvert mál á einstaklingsgrundvelli. Þá sé lagaleg umgjörð mannréttindalöggjafar í [...] í samræmi við evrópska staðla en skilvirk innleiðing og stefnumótun sé takmörkuð og verndin sé því ófullnægjandi í reynd. Ljóst sé að kærandi geti ekki leitað til [...]yfirvalda og hlotið þar vernd, þegar fyrir liggi í skýrslum alþjóðlegra stofnana að umfangsmikil opinber spilling ríki í [...] og réttarkerfið þar sé óburðugt. Helsta ástæða flótta kæranda frá [...] sé vantraust á vilja og getu stjórnvalda til að veita honum vernd gagnvart þeim sem hann óttist. Þá veki kærandi jafnframt athygli á því að 3. gr. flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna leggi bann við því að mismuna flóttamönnum eftir ættlandi, enda sé einstaklingsbundið mat á aðstæðum hverju sinni kjarni flóttamannahugtaksins.

Í greinargerð kæranda er jafnframt að finna umfjöllun um 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga og samspil hennar við alþjóðlega mannréttindasamninga sem Ísland er aðili að, þ.á m. 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 3. gr. samnings gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Samningar þessir verndi einstaklinga gegn illri meðferð af hendi hins opinbera en mannréttindasáttmálinn og alþjóðasamningurinn um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi veiti einnig vernd gegn slíkri meðferð af hendi þriðja aðila, sé vernd yfirvalda ekki til að dreifa. Í athugasemdum með frumvarpi því sem varð að lögum nr. 115/2010, um breytingu á útlendingalögum, segi enn fremur að orðalag 2. mgr. 44. gr. laganna taki mið af skilgreiningu og afmörkun viðbótarverndar í 2. gr. e og 15. gr. tilskipunar Evrópubandalagsins nr. 2004/83/EB frá 29. apríl 2004, um lágmarksskilyrði til að ríkisborgarar þriðju landa eða ríkisfangslausir einstaklingar teljist flóttamenn eða menn sem að öðru leyti þarfnist alþjóðlegrar verndar og um inntak slíkrar verndar. Tilskipunin hafi nú verið endurskoðuð með tilskipun nr. 2011/95/ESB. Samkvæmt 2. kafla tilskipunarinnar skuli m.a. taka tillit til þess hvort einstaklingur hafi þegar orðið fyrir ofsóknum, alvarlegum skaða eða hótunum. Í athugasemdum flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna við 15. gr. tilskipunarinnar segi jafnframt að túlka skuli ákvæðið með það fyrir augum að auka vernd flóttafólks en ekki grafa undan henni. Fram hafi komið að kærandi óttist um líf sitt í [...] vegna hótana af hálfu glæpamanna. Kærandi hafi ekki leitað til lögreglu vegna fyrrgreindra hótana, sem hann taki þó mjög alvarlega. Ástæða þess sé sú að lögreglan sé óviljug að aðstoða fjölskyldu hans. Lögreglan sé spillt og blandi sér ekki í einkadeilur og kærandi treysti heldur ekki yfirvöldum. Af þeim sökum séu kærandi og fjölskylda hans ófær um að færa sér í nyt vernd heimalands síns og því sé gerð krafa um viðbótarvernd til handa kæranda, með vísan til 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga.

Þá veki kærandi einnig athygli á hinni svokölluðu non-refoulement reglu í 1. mgr. 45. útlendingalaga, um bann við því að senda útlending til svæðis þar sem hann hafi ástæðu til að óttast ofsóknir sem geti leitt til þess að hann skuli teljast flóttamaður eða ekki sé tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis. Myndi slík ákvörðun brjóta í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrárinnar, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, 6. og 7. gr. samnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi svo og 33. gr. flóttamannasamningsins. Að mati kæranda sé hins vegar ljóst að synjun Útlendingastofnunar á umsókn hans sé eingöngu byggð á því að [...] sé á lista stofnunarinnar yfir örugg ríki, þrátt fyrir sannfærandi og samkvæman framburð kæranda auk gagna er styðji frásögn hans.

Í greinargerð kæranda er enn fremur gerð varakrafa um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 12. gr. f útlendingalaga og er í því sambandi vísað til skýringa í athugasemdum greinargerðar með frumvarpi til laga nr. 115/2010, um breytingu á útlendingalögum. Með vísan til fyrrgreindra hótana sem kærandi hafi þurft að sæta í heimalandi sínu og þess að yfirvöld hafi hvorki vilja né getu til að veita honum nauðsynlega vernd telji kærandi skilyrði 12. gr. f uppfyllt og því beri að veita honum dvalarleyfi af mannúðarástæðum hér á landi.

Þá þurfi að fara fram einstaklingsbundið mat á persónulegum aðstæðum hvers og eins, svo og aðstæðum í landinu sem um ræðir, við mat á því hvort raunverulegri vernd sé til að dreifa í öðrum hluta upprunalands. [...] Með tilliti til þess og spillingar þeirrar sem ríki í landinu megi telja miklar líkur á því að ofsækjandi kæranda geti haft uppi á honum þó að hann færi sig um set.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagarammi

Í máli þessu gilda ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ákvæði laga nr. 96/2002 um útlendinga, reglugerð nr. 53/2003 um útlendinga með áorðnum breytingum, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að þegar kærandi sótti um hæli á Íslandi hafi hann framvísað [...] vegabréfi. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi sé [...] ríkisborgari.

Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð í [...] m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

[...]Samkvæmt ofangreindum gögnum er [...] lýðræðisríki með rúmlega [...]íbúa. [...]. Í ljósi alls framangreinds má ætla að grundvallarmannréttindi séu almennt talin virt af yfirvöldum í landinu.

Af fyrrgreindum gögnum má eigi að síður ráða að spilling sé mikið vandamál í [...], einkum í löggæslu- og réttarkerfinu. Á undanförnum árum hafa [...] yfirvöld þó tekið mikilvæg skref í þá átt að auka vernd borgara sinna og uppræta spillingu innan lögreglunnar og réttarkerfisins. Heimildir benda jafnframt til þess að ásakanir gegn lögreglu séu rannsakaðar.

Ákvæði 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga

Til að teljast flóttamaður hér á landi þarf kærandi að sýna fram á að aðstæður hans séu slíkar að þær falli undir 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga, sbr. flóttamannasamning Sameinuðu þjóðanna, eða 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Krafa kæranda byggir á því að hann geti ekki fengið fullnægjandi vernd gegn hótunum um ofbeldi af hendi leiðtoga glæpagengis í heimalandi sínu, [...].

Í 1. mgr. 44. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki, eða vill ekki, vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki, eða vill ekki, vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og viðauka við samninginn frá 31. janúar 1967. Um skilyrði þess að teljast flóttamaður er frekar mælt í 44. gr. a.

Almennt ber að telja ótta kæranda ástæðuríkan ef hann getur á nægilega skýran hátt sýnt fram á að áframhaldandi dvöl í heimalandi sé honum óbærileg af ástæðum sem tilgreindar eru í ákvæðinu, eða yrði óbærileg af sömu ástæðum ef hann sneri aftur. Þessi sjónarmið þurfa jafnframt ekki endilega að byggjast á persónulegri reynslu kæranda, heldur geta ofsóknir sem vinir hans eða ættingjar eða aðrir sem tilheyra sama þjóðfélagshópi hafa orðið fyrir, gefið til kynna að ótti hans við að verða fyrr eða síðar fórnarlamb ofsókna sé ástæðuríkur.

Í 44. gr. a útlendingalaga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir, á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggt og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Til þess að um sé að ræða ofsóknir skv. 1. mgr. 44. gr. verður að vera um að ræða athafnir sem í eðli sínu, eða vegna þess að þær eru endurteknar, fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samansafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 3. mgr. 44. gr. a eru taldir upp þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þar segir að:

Þeir sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eru:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess, og

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök skv. b-lið þessarar málsgreinar, þar með talið alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 44. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Þótt fallist sé á að einstaklingur í þessari aðstöðu skuli njóta vafans upp að ákveðnu marki, verður kærandi a.m.k. að sýna fram á að líkur séu á að hans bíði ofsóknir í heimalandi. Samkvæmt meginreglum um túlkun flóttamannahugtaksins sem fram koma í handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna, er m.a. miðað við það að viðkomandi þurfi almennt að sýna fram á að gildar ástæður liggi til grundvallar ótta við ofsóknir og að hugarástand flóttamannsins skipti ekki eitt máli heldur verði yfirlýsing hans einnig að fá stuðning í hlutlægum og staðreynanlegum aðstæðum (Handbók um réttarstöðu flóttamanna. Um málsmeðferð og skilyrði samkvæmt flóttamannasamningnum frá 1951 og bókun frá 1967 um réttarstöðu flóttamanna (Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, Reykjavík 2008)).

Sem fyrr segir er krafa kæranda byggð á því að honum stafi ógn af leiðtoga glæpagengis sem hóti honum og fjölskyldu hans ofbeldi. Telji kærandi jafnframt að yfirvöld í [...] vilji hvorki né geti veitt honum nauðsynlega vernd gegn fyrrgreindum hótunum.

Samkvæmt ofangreindu hefur kærandi ekki borið fyrir sig að hafa sætt ofsóknum eða að hann óttist ofsóknir af hálfu [...] yfirvalda. Kærandi kveðst ekki hafa leitað til lögreglu vegna framangreindra hótana og hefur ekki lagt fram nein gögn til stuðnings þeirri fullyrðingu sinni að honum sé yfir höfuð útilokað að leita aðstoðar [...] yfirvalda. Að mati kærunefndar hefur ekki verið sýnt fram á að [...] stjórnvöld skorti vilja eða getu til að veita kæranda viðeigandi vernd gegn þeim hótunum sem hann nefnir, m.a. með því að ákæra eða refsa fyrir þær athafnir. Það er því mat kærunefndar að kærandi hafi raunhæfan möguleika á að leita ásjár stjórnvalda í heimaríki sínu. Frásögn kæranda bendir til þess að umræddur ágreiningur sé að mestu staðbundinn og því telur kærunefnd að kærandi hafi tök á því að flytja sig til innanlands telji hann þess þörf, enda gildir almennt ferðafrelsi að [...] lögum og hafa stjórnvöld almennt virt þann rétt. Þá bendir ekkert til þess að hótanir þær sem kærandi sætir tengist á nokkurn hátt kynþætti hans, trúarbrögðum eða þjóðerni, aðild hans að tilteknum þjóðfélagshópi eða stjórnmálaskoðunum hans, sbr. 1. mgr. 44. gr. laga um útlendinga og 2. mgr. 44. gr. a s.l. Kærandi hefur lýst því fyrir Útlendingastofnun að hann sé [...] en ekkert bendir til þess að trúarbrögð hans hafi neikvæð áhrif á möguleika hans til að njóta viðeigandi verndar yfirvalda. Að öllu framangreindu virtu telur kærunefnd því ljóst að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga fyrir veitingu stöðu flóttamanns.

Ákvæði 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga

Í 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga er kveðið á um að flóttamaður samkvæmt útlendingalögum teljist einnig útlendingur sem telst ekki flóttamaður samkvæmt ákvæði A-liðar 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna ef raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu verði hann sendur aftur til heimalandsins.

Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga ber að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem fellur undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um bann við pyndingum og ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Samkvæmt dómstólnum getur 3. gr. sáttmálans átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki eru fulltrúar yfirvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og frásögn kæranda verður að fá stuðning í öðrum gögnum, sbr. t.d. úrlausn Mannréttindadómstóls Evrópu í máli N.M. og M.M. gegn Bretlandi (mál nr. 38851/09 og 39128/09) frá 25. janúar 2011.

Í þeim gögnum sem kærunefndin hefur yfirfarið kemur fram að stjórnvöld í [...] vinni að því að bæta réttarkerfi landsins og frelsi og öryggi almennings. Hefur eitthvað áunnist í þeirri vinnu sérstaklega hvað varðar baráttu gegn skipulagðri glæpastarfsemi í landinu. Í skýrslu stofnunar Sameinuðu þjóðanna um fíkniefni og glæpi [...] er fjallað um áhrif spillingar og skipulagðrar glæpastarfsemi á viðskiptalíf [...]. Þar kemur m.a. fram að eigendur fyrirtækja í landinu sem brotið er á leiti margir til lögreglu vegna þeirra brota og hafi verið nokkur sátt við vinnubrögð hennar. Líkt og fram hefur komið hafa kærandi og eiginkona hans ekki látið reyna á það hvort lögregluyfirvöld í [...] geti veitt þeim aðstoð gegn þeim hótunum sem þau kveðast hafa orðið fyrir. Er það mat kærunefndar að þótt kærandi eigi á hættu að sæta ofbeldi í heimalandi sínu hafi hann raunhæfan möguleika á að leita ásjár stjórnvalda. Heimildir styðja því ekki við þá staðhæfingu kæranda að [...] stjórnvöld skorti vilja eða getu til að veita kæranda viðeigandi vernd, óski hann eftir henni.

Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um [...] telur kærunefndin að aðstæður kæranda í heimalandi hans séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 44. gr. laganna. Þá telur kærunefndin ekkert fram komið sem bendir til þess að hætt sé við því að kærandi sæti ómannúðlegri og/eða vanvirðandi meðferð við heimkomuna, sbr. 2. mgr. 44. gr. og 1. mgr. 45 gr. útlendingalaga.

Ákvæði 12. gr. f útlendingalaga

Samkvæmt 12. gr. f er heimilt að veita útlendingi dvalarleyfi, þótt skilyrðum þess sé annars ekki fullnægt, ef rík mannúðarsjónarmið standa til þess eða vegna sérstakra tengsla útlendingsins við landið. Í 2. mgr. ákvæðisins kemur fram að veita má dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf á vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum, eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til eða vegna annarra atvika sem ekki má með réttu gera honum að bera ábyrgð á. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Kærunefnd telur með vísan til orðalags ákvæðisins um „rík mannúðarsjónarmið“ og „ríka þörf á vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 2. mgr. 12. gr. f útlendingalaga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Í skýringum með 2. gr. laga nr. 115/2010, sem breytti ákvæði 12. gr. f útlendingalaga, er fjallað um þörf útlendings á vernd vegna mjög íþyngjandi félagslegra aðstæðna í heimalandi. Í dæmaskyni eru nefndar aðstæður kvenna sem sætt hafa kynferðislegu ofbeldi eða sem aðhyllast ekki hefðbundin kynhlutverk í heimaríki þeirra og af þessum sökum eigi þær á hættu útskúfun eða ofbeldi við endurkomu. Kærandi hefur borið því við að hann sé í hættu og að lögreglan í [...] geti ekki aðstoðað hann. Þó svo að kærandi og fjölskylda hans verði fyrir áreiti og hótunum af hendi þriðja aðila þá styðja gögn sem kærunefnd hefur yfirfarið ekki við þá staðhæfingu kæranda að hann geti ekki leitað til lögreglu og fengið viðeigandi vernd. Kærunefnd telur því að aðstæður kæranda við endurkomu til heimalands séu ekki slíkar að 12. gr. f útlendingalaga eigi við.

Kærunefndin hefur þegar komist að þeirri niðurstöðu að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga og teljist því ekki flóttamaður. Þegar upplýsingar um heimaland kæranda og gögn málsins eru virt í heild er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi heldur ekki sýnt fram á ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 12. gr. f útlendingalaga. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kæranda í [...] séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 12. gr. f útlendingalaga.

Jafnframt telur kærunefndin kæranda ekki uppfylla skilyrði 12. gr. f útlendingalaga um sérstök tengsl við landið. Líkt og fram kemur í gögnum málsins hefur kærandi aðeins dvalið á Íslandi í tengslum við hælisumsókn sína og þá aðeins í skamman tíma.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 33. gr. útlendingalaga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá því að beiðni um það er synjað. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því ákvörðun var tekin.

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

Hjörtur Bragi Sverrisson, formaður

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum