Hoppa yfir valmynd
25. mars 2020 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 23/2020 Úrskurður 25. mars 2020

Mál nr. 23/2020                     Aðlögun kenninafns: Ásmundsdóttir

                                            

Hinn 25. mars 2020 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 23/2020.

Með bréfi Þjóðskrár Íslands, dags. 24. mars 2020, var óskað úrskurðar mannanafnanefndar um beiðni xxx og xxx um að dóttir þeirra skuli vera kennd til föður síns, Aasmunds, og nafnið jafnframt lagað að íslensku máli. Óska þau að kenninafn stúlkunnar verði skráð í þjóðskrá Ásmundsdóttir.

Ekkert er í lögum nr. 45/1996, um mannanöfn, sem stendur í vegi fyrir því að fallist sé á ofangreinda beiðni.

 

Úrskurðarorð:

Fallist er á föðurkenninguna Ásmundssdóttir.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum