Hoppa yfir valmynd
25. júlí 2011 Innviðaráðuneytið

Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga verður 12. október

Ákveðið hefur verið að ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga verði haldinn miðvikudaginn 12. október næstkomandi á Hilton Reykjavík Nordica milli klukkan 17 og 19.

Ársfundurinn verður með svipuðu sniði og áður. Boð á fundinn verða send út þegar nær dregur.

Vakin er athygli á því að fundurinn er að þessu sinni boðaður daginn fyrir fjármálaráðstefnu Sambands íslenskra sveitarfélaga en ekki við lok hennar eins og verið hefur.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum