Hoppa yfir valmynd
13. desember 2017 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Mál nr. 171/2017

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 171/2017

Miðvikudaginn 13. desember 2017

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Ásmundur Helgason lögfræðingur.

Með kæru, dags. 3. maí 2017, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 4. apríl 2017 sem lýtur að samþykki á umsókn barnsmóður hans um milligöngu um meðlagsgreiðslur frá 1. mars 2017.

I. Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, móttekinni af Tryggingastofnun ríkisins 28. mars 2017, sótti barnsmóðir kæranda um milligöngu um meðlagsgreiðslur með X börnum þeirra frá 1. maí 2015. Með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 4. apríl 2017, var kæranda tilkynnt að umsókn barnsmóður hans um milligöngu um meðlagsgreiðslur hafi verið samþykkt frá 1. mars 2017. Vegna þeirrar ákvörðunar sendi kærandi stofnuninni kvittanir fyrir millifærslum hans inn á reikning barnsmóður sinnar dagana 1. mars 2017 og 31. mars 2017. Fyrri millifærslan var að fjárhæð X kr. og seinni X kr. Með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 19. apríl 2017, var kærandi upplýstur um að stofnuninni bæri að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslurnar lögum samkvæmt og ekki væri heimilt að verða við beiðni hans um að taka til greina að hann hafi greitt barnsmóður sinni beint meðlag.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 3. maí 2017. Með bréfi, dags. 5. maí 2017, óskaði úrskurðarnefnd eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins ásamt gögnum málsins. Með bréfi, dags. 13. júní 2017, barst greinargerð stofnunarinnar og var hún send kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dagsettu sama dag. Athugasemdir bárust ekki.

II. Sjónarmið kæranda

Kærandi gerir ekki formlegar kröfur í málinu en ráða má af gögnum málsins að hann fari fram á að ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að samþykkja umsókn barnsmóður hans um milligöngu meðlagsgreiðslna frá 1. mars 2017 verði felld úr gildi og milliganga um meðlagsgreiðslur verði ákvörðuð frá 1. maí 2017.

Í kæru segir að kærandi hafi fengið senda tilkynningu frá Tryggingastofnun ríkisins í apríl 2017 um að hann ætti að borga Innheimtustofnun sveitarfélaga en hann hafi þegar verið búinn að greiða barnsmóður sinni meðlag fyrir mars 2017 og apríl 2017 inn á reikning hennar. Barnsmóðir kæranda hafi því fengið tvöfalt meðlag greitt fyrir þá mánuði, bæði frá kæranda og Tryggingastofnun ríkisins.

Nú skuldi kærandi X kr. sem sé ekki rétt þar sem hann hafi verið búinn að millifæra sjálfur á barnsmóður sína í gegnum heimabanka.

III. Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins

Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins segir að málavextir séu þeir að stofnunin hafi synjað kæranda með bréfi, dags. 19. apríl 2017, að taka til greina að hann hafi greitt barnsmóður sinni beint meðlag með X börnum þeirra fyrir mars og apríl 2017. Kærandi hafi lagt fram kvittanir, dags. 1. mars 2017 og 31. mars 2017, sem hafi sýnt að kærandi hafi lagt inn á barnsmóður sína annars vegar X kr. og hins vegar X kr. Á kvittunum hafi komið fram að um meðlag hafi verið að ræða.

Forsaga málsins sé sú að stofnunin hafi tilkynnt kæranda með bréfum, dags. 4. apríl 2017, að stofnunin hafi samþykkt að hafa milligöngu um greiðslu meðlags til barnsmóður hans frá 1. mars 2017 með X börnum þeirra. Stofnuninni hafði borist umsókn barnsmóður hans 28. mars 2017 og réttarsátt, dags. 28. september 2016, þar sem fram komi að kærandi skuli greiða meðlag með börnum sínum X frá árinu 2015.

Í 63. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar sé kveðið á um að hver sá sem fái úrskurð stjórnvalds um meðlag með barni sem hann hafi á framfæri sínu, eða um aðrar greiðslur samkvæmt IX. kafla barnalaga nr. 76/2003, geti snúið sér til Tryggingastofnunar ríkisins og fengið fyrirframgreiðslu meðlags eða annarra framfærsluframlaga samkvæmt úrskurðinum. Sama skuli gilda þegar lagt sé fram staðfest samkomulag um meðlagsgreiðslur og aðrar greiðslur samkvæmt IX. kafla barnalaga.

Í 4. mgr. 63. gr. laga um almannatryggingar komi fram að Tryggingastofnun sé heimilt að greiða meðlag aftur í tímann allt að tólf mánuði, talið frá byrjun þess mánaðar sem stjórnvaldsúrskurður, staðfestur samningur eða vottorð sýslumanns um að hann hafi veitt viðtöku ósk móður um öflun faðernisviðurkenningar berst stofnuninni, enda eigi þá 4. mgr. 20. gr. laganna ekki við.

Um heimildarákvæði sé að ræða í 4. mgr. 63. gr. laga um almannatryggingar og því sé ekki um að ræða rétt umsækjanda um meðlagsgreiðslur frá Tryggingastofnun aftur í tímann heldur heimild stofnunarinnar til að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur aftur í tímann, þó aldrei lengra en eitt ár.

Í 2. mgr. 7. gr. reglugerðar nr. 945/2009 segi að þegar meðlagsákvörðun sé eldri en tveggja mánaða skuli einungis greiða frá byrjun þess mánaðar sem umsókn og fylgigögn berist, nema sérstakar ástæður séu fyrir hendi sem geti réttlætt greiðslur aftur í tímann, allt að tólf mánuði. Þá segi að með sérstökum ástæðum sé meðal annars átt við ef meðlagsmóttakanda hefur af einhverjum ástæðum verið ómögulegt að setja fram kröfu um milligöngu meðlagsgreiðslna án tafar.

Samkvæmt 67. gr. barnalaga nr. 76/2003 sé Tryggingastofnun skylt að greiða rétthafa greiðslna samkvæmt IV. og IX. kafla, sem búsettur sé hér á landi, samkvæmt dómi, dómsátt, úrskurði sýslumanns eða samningi staðfestum af honum, þó innan þeirra marka sem lög um almannatryggingar setji.

Í úrskurði félags- og tryggingamálaráðuneytis, dags. 16. febrúar 2010, segi að hlutverk Tryggingastofnunar ríkisins sé eingöngu að hafa milligöngu um greiðslu meðlags þegar ákvörðun hafi verið tekin með lögmætum hætti. Leggi foreldri fram samkomulag um greiðslu meðlags, sem staðfest hafi verið af sýslumanni, beri stofnuninni að hafa milligöngu um greiðslu meðlags, sbr. 1. mgr. 63. gr. laga um almannatryggingar og 67. gr. barnalaga. Lögin veiti stofnuninni ekki heimild til að taka önnur gögn en talin séu upp í framangreindum ákvæðum til greina við milligöngu um greiðslu meðlags.

Þá segi í úrskurði úrskurðarnefndar almannatrygginga í máli nr. 466/2010 að þrátt fyrir að kærandi geti sýnt fram á að hann hafi lagt inn tiltekna fjárhæð á reikning barnsmóður sinnar breyti það engu um þá staðreynd að stofnuninni beri skyldu til að hafa milligöngu um meðlag samkvæmt lögformlegri meðlagsákvörðun sé þess farið á leit við stofnunina. Stofnunin hafi engar heimildir til að virða að vettugi lögbundna skyldu sína til að greiða meðlag samkvæmt hinni lögformlegu meðlagsákvörðun.

Í málinu liggi fyrir löggildar meðlagsákvarðanir, þ.e. dómur Héraðsdóms B, dags. X 2016, og réttarsátt, dags. X 2016, sem kveði á um meðlagsgreiðslur kæranda til barnsmóður hans. Þá liggi fyrir umsókn barnsmóður hans, dags. 28. mars 2017, um meðlag. Með hliðsjón af því sem rakið hafi verið, tilvitnuðum lagaákvæðum og fyrirliggjandi gögnum, hafi stofnuninni borið að hafa milligöngu um greiðslu meðlags til barnsmóður hans frá 1. mars 2017 og ekki verið heimilt að taka til greina að hann hafi greitt meðlag beint til barnsmóður sinnar fyrir mars og apríl 2017. Sambærileg niðurstaða hafi einnig verið í úrskurðum úrskurðarnefndar almannatrygginga í málum nr. 42/2012, 81/2013 og 334/2014 og í úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála nr. 190/2016.

IV. Niðurstaða

Mál þetta varðar ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur til barnsmóður kæranda frá 1. mars 2017.

Samkvæmt 1. mgr. 63. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar getur hver sá sem fær úrskurð um meðlag með barni, sem hann hefur á framfæri sínu, snúið sér til Tryggingastofnunar ríkisins og fengið fyrirframgreiðslu meðlags og annarra framfærsluframlaga samkvæmt úrskurðinum. Sama gildir þegar lagt er fram staðfest samkomulag um meðlagsgreiðslur og aðrar greiðslur samkvæmt IX. kafla barnalaga, nr. 76/2003. Samkvæmt 4. mgr. sömu greinar er stofnuninni heimilt að greiða meðlag aftur í tímann allt að tólf mánuði, talið frá byrjun þess mánaðar sem stjórnvaldsúrskurður, staðfestur samningur eða vottorð sýslumanns um að hann hafi veitt viðtöku ósk móður um öflun faðernisviðurkenningar berst stofnuninni, enda eigi þá 4. mgr. 20. gr. laganna ekki við. Samkvæmt 6. mgr. 63. gr. laga um almannatryggingar er heimilt að setja reglugerð um framkvæmd ákvæðisins. Reglugerð nr. 945/2009 um framkvæmd meðlagsgreiðslna og annarra framfærslulaga hefur verið sett með stoð í framangreindu lagaákvæði.

Samkvæmt 67. gr. barnalaga nr. 76/2003 er Tryggingastofnun ríkisins skylt að greiða rétthafa greiðslna samkvæmt IV. og IX. kafla, sem búsettur er hér á landi, samkvæmt dómi, dómsátt, úrskurði sýslumanns eða samningi staðfestum af honum, þó innan þeirra marka sem lög um almannatryggingar setja.

Um upphafstíma greiðslna er nánar fjallað í 6. og 7. gr. reglugerðar nr. 945/2009. Ákvæði 1. og 2. mgr. 6. gr. hljóðar svo:

„Upphaf greiðslna skal vera samkvæmt þeirri dagsetningu sem fram kemur í meðlagsákvörðun, sbr. þó 7. gr. um greiðslur aftur í tímann.

Meðlag skal greiða fyrirfram fyrsta dag hvers mánaðar. Greiðslur skulu að jafnaði hefjast fyrsta dag næsta mánaðar eftir að umsókn og nauðsynleg gögn hafa borist Trygginga­stofnun skv. 5. gr. þessarar reglugerðar.“

Þá segir í 1. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar að heimilt sé að greiða meðlag í allt að 12 mánuði aftur í tímann, talið frá byrjun þess mánaðar sem gögn samkvæmt 5. gr. berast Tryggingastofnun. Þegar meðlagsákvörðun er eldri en tveggja mánaða skal einungis greiða frá byrjun þess mánaðar sem umsókn og fylgigögn berast nema sérstakar ástæður séu fyrir hendi sem geti réttlætt greiðslur lengra aftur í tímann, allt að tólf mánuði, sbr. 1. málsl. 2. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar. Þá segir svo í 3. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar:

„Þegar sótt er um greiðslu aftur í tímann á grundvelli meðlagsákvörðunar sem er eldri en tveggja mánaða skal ennfremur gefa meðlagsskyldum aðila kost á að sýna fram á að meðlag hafi þegar verið greitt fyrir sama tímabil og sótt er um.“

Samkvæmt framangreindum lagaákvæðum ber stofnuninni að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur berist beiðni þar um frá meðlagsmóttakanda á grundvelli lögformlegrar meðlagsákvörðunar. Þann 28. mars 2017 sótti barnsmóðir kæranda um milligöngu um meðlagsgreiðslur með X börnum þeirra frá 1. maí 2015. Stofnunin samþykkti að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur vegna barnanna frá 1. mars 2017. Sú ákvörðun grundvallaðist á dómi Héraðsdóms Bfrá X 2016 sem kveður á um meðlagsskyldu kæranda vegna X barna þeirra frá 19. maí 2015 til 18 ára aldurs þeirra og réttarsátt, dags. X 2016, þar sem fram kemur að kærandi sé meðlagsskyldur vegna yngsta barns þeirra frá fæðingardegi þess í X 2015 til átján ára aldurs.

Hlutverk Tryggingastofnunar í tengslum við meðlagsgreiðslur markast af ákvæðum viðeigandi laga og reglugerða. Samkvæmt 1. mgr. 63. gr. laga um almannatryggingar ber stofnuninni lögbundin skylda til að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur sé þess farið á leit við stofnunina í þeim tilvikum þar sem lögformleg meðlagsákvörðun liggur fyrir.

Kærandi byggir á því að hann hafi þegar greitt meðlag til barnsmóður sinnar vegna barna þeirra fyrir tvo mánuði, þ.e. mars og apríl 2017. Þessu til stuðnings hefur hann lagt fram útprentanir úr heimabanka sem sýna millifærslur hans inn á reikning barnsmóður sinnar. Úrskurðarnefndin telur engu að síður að hvorki verði ráðið af lögum né lögskýringargögnum að stofnunin hafi heimild til annars en að fara að framangreindu lagaákvæði, sem gildir um milligöngu stofnunarinnar um greiðslu meðlags, liggi fyrir lögformleg meðlagsákvörðun þess efnis. Umsókn barnsmóður kæranda var samþykkt frá 1. mars 2017, þ.e. frá byrjun þess mánaðar sem umsókn og meðlagsákvarðanir bárust Tryggingastofnun, sbr. 1. málsl. 2. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar. Þar sem ekki er um að ræða meðlagsgreiðslu aftur í tímann kemur ákvæði 3. mgr. 7. gr. reglugerðar nr. 945/2009 ekki til skoðunar. Því hafa greiðslur kæranda inn á reikning barnsmóður hans ekki þýðingu fyrir niðurstöðu málsins.

Með hliðsjón af framangreindu verður að mati úrskurðarnefndar ekki annað ráðið en að ákvörðun Tryggingastofnunar um að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur til barnsmóður kæranda sé í samræmi við ákvæði 1. mgr. 63. gr. laga um almannatryggingar. Ákvörðun stofnunarinnar um milligöngu um meðlagsgreiðslur til barnsmóður kæranda frá 1. mars 2017 til 31. apríl 2017 er því staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur til barnsmóður A, frá 1. mars 2017 er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum