Hoppa yfir valmynd
6. janúar 2014 Heilbrigðisráðuneytið

Greiðsludreifing lyfjakostnaðar hefur gefist vel

Lyf
Lyf

Rúmlega 600 einstaklingar hafa fengið samning um dreifingu lyfjakostnaðar hjá Sjúkratryggingum Íslands frá því að nýtt lyfjagreiðslukerfi tók gildi 4. maí sl. Greiðsludreifing er ætluð einstaklingum sem eiga í erfiðleikum með að greiða lyf vegna lágra tekna eða óvænts lyfjakostnaðar og bera þeir engan kostnað vegna hennar. Í kjölfar endurskoðunar rammasamnings Sjúkratrygginga Íslands um greiðslujöfnun um áramót hefur verið ákveðið að framlengja hann án breytinga.

Heildarfjárhæð að baki þeim rúmlega 600 samningum sem gerðir voru árið 2013 nemur um 8,5 milljónum króna. Til samanburðar má geta þess að frá 4. maí 2013 til áramóta nam almennur lyfjakostnaður 4.579 milljónum króna. Umfang greiðsludreifingar á sama tíma er því um 0,19% af lyfjakostnaði.

Þorri umsókna um greiðsludreifingu barst í júní og júlí, umsóknum snarfækkaði í ágúst, hélt áfram að fækka til ársloka og í desember bárust samtals 14 umsóknir.

Nýja greiðsluþátttökukerfið byggist á þrepaskiptri greiðsluþátttöku þar sem hver einstaklingur greiðir hlutfallslega minna eftir því sem lyfjakostnaður hans eykst innan tólf mánaða tímabils. Í fyrsta þrepi greiðir einstaklingurinn lyf að fullu, í öðru þrepi greiðir hann 15% af verði lyfja og í þriðja þrepi greiðir hann 7,5%. Þegar lyfjakostnaður hefur náð ákveðnu hámarki fær hann lyf að fullu greidd af sjúkratryggingum það sem eftir er af tímabilinu.

Í ljósi þess að kostnaður einstaklinga er mestur í upphafi hvers 12 mánaða tímabils, þótti ástæða til að gera fólki kleift að dreifa upphafskostnaðinum ef nauðsyn krefði.  Sjúkratryggingar buðu því lyfsölum að gerast aðilar að rammasamningi sem kveður á um greiðsludreifingu og fyrirkomulag hennar. Lyfsali gerir samning við viðkomandi einstakling fyrir hönd Sjúkratryggingum Íslands en sækir áður um heimild til greiðsludreifingar hjá stofnuninni.                                                                                                                 

Samkvæmt rammasamningnum er unnt að dreifa lyfjakostnaði á tvær til þrjár greiðslur í upphafi hvers 12 mánaða greiðslutímabils. Kostnaði einstaklings umfram 8.000 kr. er hægt að skipta á tvær greiðslur og kostnaði umfram 15.000 kr. í þrjár greiðslur. Ef fyrirsjáanlegt er að einstaklingur muni ná hámarksþaki greiðsluþátttöku á 12 mánaða tímabili og öðlast rétt til fullrar greiðsluþátttöku sjúkratrygginga (hámarkið er 46.277 kr. fyrir börn og lífeyrisþega en 69.415 fyrir aðra) er mögulegt að dreifa kostnaði á allt að 10 greiðslur.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum