Hoppa yfir valmynd
24. nóvember 2017 Innviðaráðuneytið

Almenn framlög vegna þjónustu við fatlað fólk 2018

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga frá 17. nóvember síðastliðnum um áætlaða úthlutun almennra framlaga vegna þjónustu við fatlað fólk á árinu 2018.

Við útreikning framlaganna skiptast 88% hlutfallslega miðað við jöfnun á grunni stuðningsþarfar, 10,75% hlutfallslega miðað við jöfnun á grunni eigin útsvars og 1,25% hlutfallslega miðað við fjarlægð innan þjónustusvæða og fjölda sveitarfélaga á þjónustusvæðum.

Áætluð útgjaldaþörf þjónustusvæða nemur samtals 18.568 m.kr. á árinu 2018. Þar af nemur áætlun útsvarstekna vegna 0,25% hlutdeildar þjónustusvæða í útsvarsstofni vegna þjónustu við fatlað fólk á árinu 2018 alls 3.668 m.kr. Mismunur áætlaðrar útgjaldaþarfar og áætlaðra útsvarstekna þjónustusvæða eru áætluð almenn framlög vegna þjónustu við fatlað fólk á árinu 2018. 

Jafnframt fer fram leiðrétting á framlögum ársins 2016 á grundvelli endanlegs álagningarstofns útsvars vegna ársins 2016 og kemur leiðréttingin til viðbótar eða frádráttar áætluðum almennum framlögum ársins 2018. Leiðréttingin nemur 70 m.kr. og nema áætluð framlög næsta árs því 14.970 m.kr.

Framlögin koma til greiðslu mánaðarlega og taka mið af innkomnum tekjum sjóðsins af 0,99% hlutdeild hans í staðgreiðsluskilum viðkomandi mánaðar og tekna sjóðsins af 0,235% af innheimtum skatttekjum ríkisins.

Við útreikning framlaganna á árinu 2018 verður gerð sú breyting að í stað þess að miða reiknaða útgjaldaþörf  við 4. flokk SIS matsins, eins og gert hefur verið frá yfirfærslu árið 2011, verður nú miðað við 5. flokk SIS matsins við útreikning á útgjaldaþörf  til þjónustusvæða.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum