Hoppa yfir valmynd
23. desember 2020 Innviðaráðuneytið

Framlög Jöfnunarsjóðs vegna NPA-þjónustu nema 555 milljónir kr. árið 2020

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um úthlutun framlaga vegna notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar (NPA) á árinu 2020, sbr. 5. gr. reglugerðar nr. 616/2020.

Alls voru gerðir 83 NPA samningar á árinu 2020 og nemur heildarfjárhæð þeirra 2.147 m.kr. Jöfnunarsjóður greiðir 25% af þeim kostnaði og því nema framlög sjóðsins vegna NPA samtals 554,5 m.kr. á árinu 2020. Framlögin koma til greiðslu á næstu dögum.

Ráðherra hefur einnig samþykkt tillögu ráðgjafarnefndarinnar um úthlutun framlaga vegna lengdrar viðveru fatlaðra grunn- og framhaldsskólanemenda á árinu 2020. Framlögin falla undir heildarfjárhagsramma vegna yfirfærslu á málefnum fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga.

Fjármagn til ráðstöfunar nemur samtals 186 milljónir kr. á árinu 2020 og er gert ráð fyrir að 146 milljónir kr. komi til úthlutunar vegna lengdrar viðveru fatlaðra grunnskólanemenda og 40 milljónir kr. vegna lengdrar viðveru fatlaðra framhaldsskólanemenda. Allir útreikningar byggja á umsóknum þjónustusvæða. Framlögin koma til útgreiðslu á næstu dögum.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum