Hoppa yfir valmynd
13. apríl 2023

Mál nr. 130/2023 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 130/2023

Fimmtudaginn 13. apríl 2023

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með kæru, móttekinni 3. mars 2023, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 17. janúar 2023, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 21. nóvember 2022. Með erindi, dags. 5. desember 2022, óskaði Vinnumálastofnun eftir að kærandi myndi skila inn staðfestingu á starfstímabili hjá fyrrum vinnuveitanda. Staðfesting á starfstímabili barst Vinnumálastofnun 9. desember 2022 og þar kom fram að kærandi hafi sjálfur sagt upp starfi sínu. Með erindi Vinnumálastofnunar, dags. 13. desember 2022, var kæranda boðið að veita skýringar á starfslokum sínum. Kærandi veitti skýringar á starfslokum sínum samdægurs á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar. Með erindi, dags. 23. desember 2022, óskaði Vinnumálastofnun eftir vottorði frá kæranda um skólavist. Engin gögn bárust frá kæranda. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 11. janúar 2023, var umsókn kæranda um greiðslur atvinnuleysisbóta synjað þar sem umbeðin gögn hefðu ekki borist stofnuninni. Kærandi skilaði inn frekari skýringum 12. janúar 2023. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 17. janúar 2023, var kæranda tilkynnt að umsókn hans um atvinnuleysisbætur hefði verið samþykkt en með vísan til starfsloka hans hjá fyrrum vinnuveitanda væri réttur til atvinnuleysisbóta hins vegar felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 54. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Frekari skýringar á starfslokum kæranda bárust Vinnumálastofnun 24. janúar 2023 og var mál hans því tekið fyrir að nýju. Með erindi Vinnumálastofnunar, dags. 26. janúar 2023, var kæranda tilkynnt að fyrri ákvörðun frá 17. janúar 2023 væri staðfest þar sem hún hefði að geyma efnislega rétta niðurstöðu, þrátt fyrir að ný gögn hefðu borist.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 3. mars 2023. Með bréfi, dags. 8. mars 2023, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 22. mars 2023 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 23. mars 2023. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hann hafi hætt störfum þann 27. nóvember 2022 vegna þess að hann hafi ætlað sér að fara í doktorsnám í lögfræði. Af einhverjum ástæðum hafi kærandi hætt við námið og sótt um greiðslur atvinnuleysisbóta. Vinnumálastofnun hafi samþykkt umsókn hans en réttur hans til greiðslna hafi verið felldur niður í tvo mánuði með vísan til 54. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Kærandi hafi gert athugasemdir vegna þeirrar ákvörðunar þar sem hann hafi hvorki gert mistök né brotið af sér. Stofnunin hafi hins vegar aftur komist að sömu niðurstöðu.

Kærandi vilji að ákvörðun Vinnumálastofnunar verði endurskoðuð að nýju þar sem ekki sé rétt að fella niður greiðslur atvinnuleysisbóta þegar aðili sem ákvörðunin beinist að hafi ekki gert mistök eða brotið gegn reglum. Kærandi sé með mastersgráðu í afbrotafræði og samkvæmt henni þurfi mistök eða brot að vera fyrir hendi til þess að hægt sé að beita viðurlögum. Starfslok séu ekki mistök eða glæpur. Í lögfræði, heimspeki laga, sögu laga eða rökfræði laga sé beiting viðurlaga möguleg ef mistök séu fyrir hendi. Beiting viðurlaga á Íslandi vegna starfsloka sé andstæð mannréttindum, stjórnarskrá Íslands og heimspeki.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga með umsókn, dags. 21. nóvember 2022. Áður hafi Vinnumálastofnun borist tölvupóstur frá kæranda þar sem hann hafi skýrt nánar frá aðstæðum sínum. Kærandi hafi greint frá því að hann hafi hætt störfum þann 25. nóvember 2022 því að hann hafi haft í huga að sækja um doktorsnám í lögfræði. Námið myndi hefjast í febrúar og hafi kærandi ætlað að sækja um lán hjá Menntasjóði námsmanna. Kærandi myndi þó þurfa að undirbúa sig fyrir námið og á þeim tíma þyrfti hann fjárhagslega aðstoð frá Vinnumálastofnun. Kærandi hafi óskað eftir greiðslu atvinnuleysisbóta frá Vinnumálastofnun á tímabilinu nóvember til júní 2023.

Með erindi, dags. 5. desember 2022, hafi Vinnumálastofnun óskað eftir því að kærandi myndi afhenda staðfestingu á starfstímabili hjá fyrrum vinnuveitanda hans, B. Staðfesting á starfstímabili hafi borist frá B þann 9. desember 2022. Þar komi fram að starfstímabil kæranda hafi verið frá 2. maí 2022 til 24. nóvember 2022. Jafnframt komi fram að kærandi hafi sjálfur sagt upp störfum.

Í kjölfar framangreindra upplýsinga hafi Vinnumálastofnun með erindi, dags. 13. desember 2022, óskað eftir því að kærandi veitti stofnuninni skýringar á ástæðum starfsloka hjá B Kærandi hafi mætt sama dag á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar og greint frá því að hann hafi hætt störfum hjá fyrrum vinnuveitanda sínum til þess að undirbúa nám sem hann hygðist hefja. Með erindi, dags. 23. desember 2022, hafi stofnunin óskað eftir skólavottorði frá kæranda þar sem fram kæmi hvort hann væri í námi eða hvort námi hafi verið hætt. Vinnumálastofnun hafi veitt kæranda sjö virkra daga frest til að skila stofnuninni umbeðnum gögnum. Kærandi hafi hvorki skilað til stofnunarinnar skólavottorði né frekari skýringum. Með erindi, dags. 11. janúar 2023, hafi stofnunin tilkynnt kæranda að umsókn hans um greiðslu atvinnuleysisbóta væri synjað þar sem umbeðin gögn hefðu ekki borist stofnuninni.

Þann 12. janúar 2023 hafi kærandi mætt á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar og skilað inn frekari skýringum á ástæðum starfsloka sinna. Þar hafi komið fram að kærandi hafi sagt upp til að fara í nám en hann væri nú hættur við að skrá sig í umrætt nám. Hann hafi því ákveðið að leita sér að vinnu að nýju. Í kjölfar framangreindra skýringa hafi Vinnumálastofnun tekið umsókn kæranda til skoðunar að nýju. Með erindi, dags. 17. janúar 2023, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans væri samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%. Með vísan til starfsloka hans hjá B væri réttur hans til atvinnuleysisbóta hins vegar felldur niður í tvo mánuði. Sú ákvörðunin hafi verið tekin á grundvelli 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Frekari skýringar frá kæranda hafi borist Vinnumálastofnun þann 24. janúar 2023. Kærandi hafi greint frá því að hann hafi sagt upp starfi sínu til að hefja nám. Síðar hafi þó komið í ljós að hann uppfyllti ekki skilyrði til náms við Háskóla Íslands. Skólagjöld í Háskólanum í Reykjavík hafi reynst kæranda of há. Hann hafi því ákveðið að hefja frekar störf að nýju. Kærandi hafi því talið að ákvæði 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar ætti ekki við í máli hans, enda hafi ástæða þess að hann hafi sagt upp starfi sínu verið gild.

Í kjölfar framangreindra skýringa kæranda hafi ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 17. janúar 2023, verið tekin til endurumfjöllunar. Með erindi, dags. 26. janúar 2023, hafi kæranda verið tilkynnt að mál hans hefði verið tekið fyrir að nýju með tilliti til nýrra gagna. Það væri hins vegar mat stofnunarinnar að staðfesta bæri fyrri ákvörðun í máli hans, dags. 17. janúar 2023, enda hefði sú ákvörðun að geyma efnislega rétta niðurstöðu, þrátt fyrir ný gögn hefðu borist í máli hans.

Lög nr. 54/2006 gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Tilgangur laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt tímabundna fjárhagsaðstoð í þrengingum sínum. Lögin veiti þeim fjárhagslegt úrræði og beri að gera ríkar kröfur til þeirra sem segi upp störfum sínum um að hafa til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi.

Í 54. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar segi orðrétt:

„Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum en hefur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur. Hið sama gildir um þann sem missir starf sitt af ástæðum sem hann sjálfur á sök á. Hinn tryggði skal uppfylla skilyrði laga þessara á biðtímanum skv. 1. mgr.“

Orðalagið „gildar ástæður“ hafi verið túlkað þröngt og fá tilvik hafi fallið þar undir. Í athugasemdum við 1. mgr. 54. gr. í greinargerð með frumvarpi því sem hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar komi fram að með ákvæðinu sé verið að undirstrika það markmið vinnumarkaðskerfisins að stuðla að virkri atvinnuþátttöku fólks. Í ljósi þess sé ekki gefinn kostur á að fólk segi upp starfi sínu til að fá greiddar atvinnuleysisbætur án þess að sérstakar ástæður liggi að baki uppsögninni í tilvikum þar sem annað starf sé ekki í boði. Þar sé jafnframt sérstaklega tekið fram að það sé erfiðleikum bundið að skilgreina nákvæmlega í lögum og reglugerðum hvaða ástæður sem liggi að baki uppsögn séu gildar þar sem þær ástæður geti verið af margvíslegum toga. Þó sé í athugasemdum sérstaklega fjallað um tvenns konar tilvik sem talin séu heyra til gildra ástæðna fyrir starfslokum. Annars vegar sé það þegar um sé að ræða þau tilvik þegar maki hins tryggða hafi hafið störf í öðrum landshluta og fjölskyldan hafi af þeim sökum þurft að flytja búferlum. Hins vegar séu það þau tilvik þegar uppsögn megi rekja til þess að atvinnuleitandi hafi sagt upp störfum af heilsufarsástæðum en sé að öðru leyti vinnufær. Í ljósi þess að um matskennda ákvörðun sé að ræða sé Vinnumálastofnun falið að meta hvernig atvik og aðstæður hvers máls falli að umræddri reglu. Vinnumálastofnun beri að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Ljóst sé að kærandi hafi sagt starfi sínu lausu hjá B. Ágreiningur snúi að því hvort ástæður kæranda fyrir uppsögn í starfi teljist gildar í skilningi framangreinds ákvæðis 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Úrskurðarnefnd velferðarmála hafi í fyrri úrskurðum sínum talið að almennt beri að gera nokkuð ríkar kröfur til atvinnuleitanda þegar metið sé hvort ástæður fyrir uppsögn séu gildar samkvæmt 1. mgr. 54. gr. laganna.

Þær skýringar sem kærandi hafi gefið sem ástæðu fyrir uppsögn sinni lúti að því að hann hafi ætlað að undirbúa sig undir nám sem hann hygðist síðar ætla að skrá sig í. Eftir að kærandi hafi sagt upp starfi sínu hafi hann hins vegar hætt við að skrá sig í umrætt nám. Samkvæmt kæranda hafi ástæða þess verið sú að hann uppfyllti ekki skilyrði náms við Háskóla Íslands og skólagjöld við Háskólann í Reykjavík hafi verið of há. Að mati Vinnumálastofnunar geti framangreindar skýringar kæranda ekki talist gildar í skilningi 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í því samhengi telji stofnunin að ekki skipti máli hvort kærandi hafi byrjað í námi eða ekki. Almennt verði sá sem hættir í starfi sínu til að stunda nám eða undirbúa sig undir nám ekki talinn hafa sagt starfi sínu lausu af gildum ástæðum í skilningi 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar ef hann sækir um atvinnuleysisbætur í kjölfar starfsloka. Slík niðurstaða leiði af markmiði laga um atvinnuleysistryggingar og því grundvallarsjónarmiði sem liggi að baki atvinnuleysistryggingakerfinu að stuðla að virkri atvinnuþátttöku fólks. Skýringar kæranda bendi til þess að hann hafi sagt upp starfi sínu án þess að hafa verið með fullráðin áform um skráningu í nám eða hafa tryggt sér annað starf. Vinnumálastofnun vísi í því samhengi til þess að það virðist ekki hafa verið fyrr en kærandi hafi sagt upp starfi sínu að hann hafi hafið að kanna möguleika sína á námi, sem síðar hafi leitt til þess að hann hafi fengið þær upplýsingar að hann uppfyllti ekki skilyrði skráningar í slíkt nám. Það sé afstaða Vinnumálastofnunar að skýringar á starfslokum kæranda geti ekki talist gildar í skilningi 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Það sé jafnframt mat stofnunarinnar að síðar tilkomin atvik, sem hafi leitt til þess að kærandi hafi ekki fengið inngöngu í nám eða að það hafi reynst of kostnaðarsamt fyrir hann, hafi ekki áhrif á framangreint mat stofnunarinnar.

Í ljósi alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta biðtíma á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar með vísan til starfsloka hans hjá B.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Ákvæði 1. mgr. 54. gr. laganna er svohljóðandi:

„Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum en hefur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir um þann sem missir starf af ástæðum sem hann á sjálfur sök á.“

Óumdeilt er að kærandi sagði upp starfi sínu B en ágreiningur málsins lýtur að því hvort ástæður hans fyrir uppsögninni hafi verið gildar í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006. Í athugasemdum við ákvæðið í frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar kemur fram að í ljósi 54. gr. laganna sé ekki gefinn kostur á að fólk segi upp starfi sínu til að fá greiddar atvinnuleysisbætur án þess að sérstakar ástæður liggi að baki uppsögninni í tilvikum þegar annað starf er ekki í boði. Einnig kemur fram að það sé erfiðleikum bundið að takmarka þau tilvik sem geti talist til gildra ástæðna í lögum og reglugerðum þar sem ástæður þess að fólk segi störfum sínum lausum eða missi þau geti verið af margvíslegum toga. Því sé lagt til að lagareglan verði áfram matskennd og Vinnumálastofnun falið að meta atvik og aðstæður hverju sinni. Stofnuninni beri að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Jafnframt er bent á að um íþyngjandi ákvörðun sé að ræða.

Fyrir liggur að kærandi sagði upp starfi sínu án þess að vera með annað starf í boði. Kærandi hefur gefið þær skýringar að hann hafi sagt upp starfi sínu þar sem hann hafi ætlað að undirbúa nám sem hann hygðist síðar skrá sig í. Síðar hafi komið í ljós að hann uppfyllti ekki skilyrði til náms við Háskóla Íslands og þá hafi hann ekki haft efni á að greiða skólagjöld við Háskólann í Reykjavík.

Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála getur áform um nám ekki talist gild ástæða fyrir uppsögn í skilningi 54. gr. laga nr. 54/2006. Að því virtu átti kærandi ekki rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en að tveimur mánuðum liðnum frá móttöku umsóknar hans um atvinnuleysisbætur, sbr. 1. mgr. ákvæðisins. Hin kærða ákvörðun er því staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 17. janúar 2023, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

_________________________________

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum