Hoppa yfir valmynd
31. maí 2023 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 322/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 31. maí 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 322/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU23050098

 

Beiðni um frestun réttaráhrifa í máli […]

 

 

Málsatvik

Hinn 4. maí 2023 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 27. febrúar 2023, um að umsókn […], […], ríkisborgari Jórdaníu, um alþjóðlega vernd hér á landi, yrði ekki tekin til efnismeðferðar og að hann yrði endursendur til Hollands. Úrskurður kærunefndar var birtur fyrir aðila 8. maí 2023 og 14. maí 2023 barst kærunefnd beiðni aðila um frestun réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar. Hinn 22. maí 2023 barst kærunefnd greinargerð aðila.

Aðili krefst þess að réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar útlendingamála verði frestað á meðan hann fer með mál sitt fyrir dómstóla, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Málsástæður aðila

Aðili byggir beiðni sína um frestun réttaráhrifa á því að hann glími við heilsubrest sem varði geðheilsu hans og hann hafi leitað sér aðstoðar. Aðili sé í samtalsmeðferð hjá sálfræðingi sem hafi vísað honum til heimilislæknis þar sem hann hafi fengið ávísað lyfi til að aðstoða hann við svefn. Aðili hafi fengið martraðir og eigi erfitt með svefn eftir kynferðisbrot sem hann hafi mátt þola í heimaríki ásamt því áfalli sem hann hafi orðið fyrir þegar hann þurfti að yfirgefa heimaríki sitt vegna ofsókna, ofbeldis, smánunar og hótanna um líflát. Þessi lífsreynsla hafi reynst aðila erfið en hann hafi fengið aðstoð hér á landi. Aðili óttist að það verði auðveldara fyrir ofbeldismenn hans að ná til hans í Hollandi og valda honum dauða. Aðili vísar til þess að gefin hafi verið út yfirlýsing í heimaríki hans, sem sé á meðal gagna málsins, um að hann sé réttdræpur. Verði aðili sendur til Hollands í því ástandi sem hann sé í og fái hann ekki þá meðferð sem hann fái hér á landi eigi það eftir að valda aðila óafturkræfum skaða.

Aðili byggir á því að hann viti ekki hvert hann eigi að snúa sér og hann þekki engan í Hollandi. Aðili þurfi að byrja upp á nýtt að leita sér aðstoðar vegna þeirra áfalla sem hann hafi mátt þola. Rof yrði á meðferð aðila og ekki sé ljóst hvort hann geti hafið meðferð á nýjan leik í Hollandi eða hvaða áhrif rof á meðferð hans myndi hafa. Með tilliti til veikinda aðila, þess að hann hafi hafið samtalsmeðferð og sé kominn á lyf hér á landi óski aðili eftir því að brottvísun hans verði frestað svo hann fái aðstoð hér á landi og geti nýtt sér þá meðferð sem honum hafi verið úthlutað.

Aðili byggir jafnframt á því að það sé mikilvægt fyrir hann að eiga í samskiptum við talsmann sinn í sambandi við fyrirhugað dómsmál hans þar sem ekki sé vitað hver andleg staða hans verði og hvort hann muni hafa burði til að fylgja máli sínu eftir frá Hollandi, líkt og nauðsynlegt sé fyrir rekstur málsins. Aðili fer fram á að kærunefnd leggi heildstætt mat á umsókn hans og meti sem svo að fresta beri réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar. Þá vísar aðili til þess að hann eigi von á sálfræði/læknisvottorði sem hann muni skila inn til kærunefndar um leið og það berist. Nauðsynlegt sé fyrir aðila að fá tíma til að leggja það fram þar sem það geti myndast grundvöllur fyrir aðila til að sækja um endurupptöku vegna breyttra aðstæðna.

Hagsmunir aðila af frestun réttaráhrifa séu miklir, bæði fyrir mál hans og andlega heilsu. Með vísan til aðstæðna aðila, þess að hann sé í virkri samtalsmeðferð hjá sálfræðingi og undir læknishöndum vegna lyfjameðferðar við sálrænu áfalli, sé lögð fram beiðni um frestun réttaráhrifa á úrskurði kærunefndar með vísan til 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.

Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Í íslenskum rétti gildir sú meginregla að málskot til dómstóla frestar ekki réttaráhrifum endanlegra ákvarðana stjórnvalda, sjá til hliðsjónar 2. málsl. 60. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944. Reglan er áréttuð í 1. málsl. 6. mgr. 104. laga um útlendinga nr. 80/2016 en þar segir að málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun á stjórnsýslustigi um að útlendingur skuli yfirgefa landið fresti ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess, sbr. 2. málsl. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga. Frestun á réttaráhrifum skal bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að málið hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Niðurstaða um hvort ástæða sé til að fresta réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar ræðst af heildstæðu mati á hagsmunum aðila af því að réttaráhrifum úrskurðarins verði frestað og sjónarmiðum sem mæla gegn slíkri frestun. Meðal þeirra sjónarmiða sem líta ber til við þetta mat er hvort framkvæmd úrskurðarins valdi aðila óafturkræfum skaða, hvort framkvæmdin feli í sér verulegar hindranir á aðgengi aðila að dómstólum, hvort aðstæður sem þýðingu geta haft fyrir málið hafi breyst verulega eða hvort þörf sé á sérstakri varúð, m.a. með tilliti til hagsmuna barna. Þá lítur kærunefnd til þess hlutverks stjórnvalda að tryggja skilvirka framkvæmd laga um útlendinga. Kærunefnd hefur jafnframt litið til þess að heimild til frestunar réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar er undantekning frá meginreglu sem aðeins sé ætlað að ná til tilvika þar sem ástæða er til þess að fresta framkvæmd. Réttaráhrifum úrskurðar verði því ekki frestað af þeirri ástæðu einni að úrskurðurinn verði borinn undir dómstóla heldur þurfi að liggja fyrir tilteknar ástæður í fyrirliggjandi máli svo kærunefnd fallist á slíka beiðni.

Af beiðni aðila um frestun réttaráhrifa má ráða þá afstöðu hans að framkvæmd úrskurðar kærunefndar útlendingamála um að hann skuli yfirgefa landið takmarki möguleika hans til að fá endurskoðun úrskurðarins hjá dómstólum og njóta þar réttlátrar málsmeðferðar, sbr. 1. mgr. 70. gr. stjórnarskrárinnar. Ljóst er að vera aðila á landinu er ekki forsenda fyrir því að mál sem hann höfðar til ógildingar á úrskurði kærunefndar sé tækt til meðferðar hjá dómstólum. Þá hefur aðili möguleika á að gefa skýrslu fyrir dómi þótt hann sé ekki hér á landi, sbr. 2. mgr. 49. gr. og 3. og 4. mgr. 51. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91/1991. Í því ljósi og með vísan til aðstæðna aðila að öðru leyti er það niðurstaða kærunefndar að ekki sé ástæða til að fresta réttaráhrifum úrskurðar í máli aðila á þeim grundvelli að framkvæmd úrskurðarins valdi tjóni á málatilbúnaði hans fyrir dómstólum eða skerði réttindi sem honum eru tryggð samkvæmt 70. gr. stjórnarskrárinnar, sbr. einnig dóma Héraðsdóms Reykjavíkur í málum nr. E-2434/2017 og E-6830/2020.

Þá byggir aðili beiðni sína um frestun réttaráhrifa á því að hann glími við heilsubrest sem varði geðheilsu hans og hann hafi fengið aðstoð hér á landi. Verði aðli endursendur til Hollands yrði rof á meðferð hans og ekki sé ljóst hvort hann geti hafið meðferð á nýjan leik í Hollandi eða hvaða áhrif rof á meðferð hans myndi hafa. Máli sínu til stuðnings lagði aðili fram samskiptaseðil frá Göngudeild sóttvarna, dags. 12. apríl 2023, þar sem fram kemur að aðili hafi hafið samtalsmeðferð hjá sálfræðing sem hafi ráðlagt honum að fá tíma hjá lækni til þess að fá lyf til að aðstoða hann við svefn. Aðili sofi illa og fái martraðir. Í samskiptaseðli frá sálfræðingi hjá Göngudeild sóttvarna, dags. 11. maí 2023, kemur fram að aðila líði illa og hann hafi greint frá því að sálfræðingurinn sé hans síðasta von. Ef hann geti ekki aðstoðað hann við að vera á Íslandi muni hann deyja. Þá lagði aðili fram læknisvottorð um að honum hafi verið ávísað geðdeyfilyfi og gögn með upplýsingum um bókaða læknatíma. Kærunefnd telur að framangreind gögn og málsástæða aðila feli ekki í sér verulega breyttar aðstæður frá því endanleg ákvörðun var tekinn sem leiði til þess að fresta beri réttaráhrifum samkvæmt 2. málsl. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga. Kærunefnd vísar til þess að við meðferð máls kæranda hjá kærunefnd útlendingamála hafi legið fyrir upplýsingar um að aðili glími við andlega vanlíðan vegna þeirra áfalla sem hann hafi mátt þola í heimaríki. Það var mat kærunefndar í úrskurði í máli aðila nr. 241/2023 frá 4. maí 2023 að honum standi til boða fullnægjandi heilbrigðisþjónusta í Hollandi. Heimildir bendi jafnframt til þess, líkt og kom fram í úrskurði í máli aðila, að löggæslan í Hollandi sé virk og telji aðili sér mismunað eða óttist hann um öryggi sitt geti hann leitað aðstoðar hjá þar til bærum stjórnvöldum. Þá vísar kærunefnd til þess að samkvæmt 31. og 32. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar skuli miðla upplýsingum um heilsufar umsækjenda um alþjóðlega vernd til yfirvalda í viðtökuríki, að uppfylltum skilyrðum ákvæðanna, þannig að flutningur viðkomandi fari fram með þeim hætti að heilsufari þeirra verði ekki stefnt í hættu.

Með úrskurði kærunefndar útlendingamála hefur verið tekin afstaða til málsástæðna aðila varðandi umsókn hans um alþjóðlega vernd hér á landi og komist að niðurstöðu um að synja umsókn hans um efnismeðferð. Fyrir liggur að stjórnvöld í viðtökuríkinu hafa viðurkennt skyldu sína til þess að taka við aðila og umsókn hans um alþjóðlega vernd á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Kærunefnd ítrekar það sem kemur fram í úrskurði í máli aðila að athugun nefndarinnar hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að ætla að aðstæður í viðtökuríki séu þess eðlis að endursending aðila þangað sé í andstöðu við 1. og 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga eða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu eða að honum sé ekki tryggð raunhæf leið til að ná fram rétti sínum þar í landi, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar bera stjórnvöld viðtökuríkis ábyrgð á umsókn aðila um alþjóðlega vernd og er skylt að tryggja að hann verði ekki endursendur í slíkar aðstæður annars staðar. Í samræmi við framangreint er það mat kærunefndar að aðili eigi ekki á hættu að verða fyrir óafturkræfum skaða snúi hann aftur til viðtökuríkis.

Tiltölulega skammur tími er liðinn síðan nefndin úrskurðaði í máli aðila. Ekkert í gögnum málsins bendir til þess að aðstæður aðila eða aðstæður í ríkinu, sem vísa á aðila til, hafi breyst verulega síðan nefndin úrskurðaði í málinu á þann hátt að nefndin telji að það gæti haft áhrif á efnislega niðurstöðu málsins. Eftir skoðun á beiðni aðila um frestun réttaráhrifa telur kærunefnd að athugasemdir sem þar koma fram séu ekki þess eðlis að ástæða sé til að ætla að niðurstaða kærunefndar í málinu sé haldin annmörkum sem leitt gæti til ógildingar úrskurðarins.

Samkvæmt framansögðu er það mat kærunefndar að ekki sé ástæða til að fallast á beiðni aðila um frestun réttaráhrifa úrskurðar kærunefndar í máli hans.

Athygli aðila er einnig vakin á því að Útlendingastofnun getur frestað framkvæmd ákvörðunar með vísan til 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga vegna sérstakra ástæðna útlendings eða vegna þess að ómögulegt sé að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.

 

ÚRSKURÐARORÐ

 

Kröfu aðila er hafnað.

The appellant’s request is denied.

 

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

 

 

Þorsteinn Gunnarsson, formaður

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum