Hoppa yfir valmynd
2. júlí 2019 Utanríkisráðuneytið

Dvalarheimili á Indlandi fjármagnað með íslenskri erfðagjöf

Dvalarheimilið á Indlandi. Ljósmynd: SOS - mynd

Byggingu dvalarheimilis fyrir SOS mæður á eftirlaunum í Hojai á Indlandi er nú lokið. Framkvæmdirnar voru að stórum hluta fjármagnaðar með erfðagjöf frá íslenskri konu, Önnu Kristínu Ragnarsdóttur. Húsið var formlega afhent SOS Barnaþorpunum og opnað síðastliðinn sunnudag. 

Anna Kristín lést árið 2010 en hafði 17 árum áður gert erfðaskrá sem kvað á um að eigur hennar skyldu renna til SOS Barnaþorpanna. Erfðagjöfinni, 15 milljónum króna, hefur nú allri verið ráðstafað samkvæmt óskum Önnu í þremur úthlutunum.

Framlag SOS á Íslandi, í nafni Önnur Kristínar til byggingar dvalarheimilisins, nam 10 milljónum króna en heildarkostnaður framkvæmdanna nam 27 milljónum króna.

Tíu fyrrverandi SOS mæður fá heimili

Með framlaginu vill SOS á Íslandi stuðla að velferð þeirra fyrrverandi SOS mæðra sem fá þar heimili á efri árum sínum. Jafnframt vilja samtökin sýna mæðrum sem starfa við uppeldi barna í barnaþorpinu að þær þurfi ekki að hafa áhyggjur af húsnæðismálum eftir að þær hætta að vinna.

Á þessu nýja heimili fá tíu konur herbergi ásamt sameiginlegu eldhúsi og setustofu. Hvert herbergi er 30 fermetrar og sameinleg aðstaða 90 fermetrar.

Flestir Íslendingar styrkja á Indlandi

Á Indlandi eru 32 SOS barnaþorp og þar búa 4.500 munaðarlaus og yfirgefin börn. Fjölmargir Íslendingar styrkja börn í þessum þorpum en Indland er það land sem langflestir Íslendingar styrkja í gegnum SOS Barnaþorpin.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum