Hoppa yfir valmynd
24. febrúar 2017 Heilbrigðisráðuneytið

Skýrsla um endurskoðun laga nr. 25/1975

Sóley Bender, Óttarr Proppé og Þórunn Oddný Steinsdóttir - mynd

Sóley S. Bender, formaður nefndar sem á liðnu ári vann að heildarendurskoðun laga um ráðgjöf og fræðslu varðandi kynlíf, barneignir, fóstureyðingar og ófrjósemisaðgerðir, kynnti skýrslu nefndarinnar fyrir Óttari Proppé heilbrigðisráðherra á fundi í gær. Skýrslan með tillögum nefndarinnar er birt hér með.

Sóley gerði grein fyrir starfi nefndarinnar og helstu áherslum hennar. Hún segir einingu hafa verið um að hefja vinnuna með samráði og var það m.a. gert með því að auglýsa eftir umsögnum eða tillögum til breytinga á gildandi löggjöf. Alls bárust 27 umsagnir frá einstaklingum, félögum, stofnunum og fagaðilum og segir Sóley að þar hafi birst góður stuðningur við þau meginsjónarmið sem nefndarmenn lögðu til grundvallar starfi sínu. Eigi það ekki síst við um sjálfsákvörðunarrétt kvenna sem nefndin gerði að leiðarljósi sínu. Eins hafi nefndin lagt áherslu á að löggjöfin megi ekki fela í sér mismunun gagnvart borgurunum og er m.a. bent á breytingar hvað það varðar sem nauðsynlegt er að gera í tengslum við fullgildingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Einnig var frá upphafi nefndarstarfsins eining um að leggja til breytta hugtakanotkun þannig að hugtakið þungungarrof komi í stað orðsins fóstureyðing.

Í skýrslunni er að finna sögulegt yfirlit með upplýsingum um þróun umræðu og viðhorfa til þessara mála. Þar er einnig kynntur fræðilegur bakgrunnur með upplýsingum um lög á þessu sviði hérlendis og erlendis, fjallað er um kynheilbrigði, frjósemi í íslensku samfélagi og um óráðgerðar þunganir og ýmsar ástæður sem þar geta legið að baki.

Tillögur nefndarinnar eru teknar saman í heild í sjöunda kafla skýrslunnar. Tillögurnar snúa í fyrsta lagi að fræðslu og ráðgjöf um kynheilbrigði, í öðru lagi fjalla þær um þungunarrof og í þriðja lagi um ófrjósemisaðgerðir. Lagt er til að núverandi löggjöf verði skipt upp í þrjá sjálfstæða lagabálka, þ.e. lög um fræðslu og ráðgjöf varðandi kynheilbrigði, lög um þungunarrof og lög um ófrjósemisaðgerðir.

Óttarr Proppé segist þakklátur fyrir að fá í hendur skýrslu um þetta mikilvæga málefnasvið þar sem augljóslega hafi verið byggt á góðri yfirsýn og breiðri fagþekkingu. Hann segir það nokkuð augljóst að löggjöf um þau málefni sem um ræðir sem ekki hafi tekið neinum efnislegum breytingum frá upphafi, þ.e. í rúm fjörutíu ár, þarfnist endurskoðunar: „Samfélagið er gjörbreytt, viðhorfin önnur og forræðishyggja sem stendur sjálfsákvörðunarrétti kvenna fyrir þrifum ætti að heyra sögunni til“ segir Óttarr.

Ráðherra hvetur fólk til að kynna sér skýrslu nefndarinnar og tillögur hennar sem ætlunin er að leggja til grundvallar við gerð frumvarps að nýrri löggjöf um þessi mál. Vilji fólk koma á framfæri athugasemdum eða ábendingum varðandi efni skýrslunnar má koma þeim á framfæri með því að senda póst á netfang ráðuneytisins og skrá í efnislínu: „Varðar endurskoðun laga nr. 25/1975.“

Auk Sóleyjar Bender prófessors sátu í nefndinni Guðrún Ögmundsdóttir, félagsráðgjafi og Jens A. Guðmundsson, sérfræðingur í fæðingar- og kvensjúkdómalækningum. Starfsmaður nefndarinnar var Þórunn Oddný Steinsdóttir, lögfræðingur í velferðarráðuneytinu.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum