Hoppa yfir valmynd
24. febrúar 2017 Heilbrigðisráðuneytið

Skýrsla Ríkisendurskoðunar um lyfjakostnað

Lyf
Lyf

Heilbrigðisstofnanir hafa tækifæri til að draga úr lyfjakostnaði með fjölþjóðlegu samstarfi við lyfjaútboð og er velferðarráðuneytið hvatt til að beita sér fyrir þátttöku Landspítala í slíku samstarfi. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar.

Í skýrslunni er fylgt eftir ábendingum sem Ríkisendurskoðun gerði í skýrslu um þróun lyfjakostnaðar 2008 – 2010. Stofnunin telur ekki ástæðu til að ítreka fyrri ábendingar til ráðuneytisins um leiðir til að stemma stigu við hækkandi lyfjakostnaði á Íslandi en bendir þó á að lyfjakostnaður Sjúkratrygginga Íslands var 15,1 ma.kr. árið 2015. Stofnunin segir heilbrigðisstofnanir hafa ótvírætt tækifæri til að draga úr kostnaði með fjölþjóðlegu samstarfi við lyfjaútboð og er velferðarráðuneyti hvatt til að beita sér fyrir þátttöku Landspítala í slíku samstarfi.

Í fréttatilkynningu Ríkisendurskoðunar segir m.a.

"Í fyrri skýrslu Ríkisendurskoðunar var velferðarráðuneyti annars vegar hvatt til að leita frekari leiða til að fá aðgang að stærri lyfjamörkuðum með það að markmiði að draga úr lyfjakostnaði. Ráðuneytið bendir á með nýjum lögum nr. 120/2016 um opinber innkaup hafi dregið úr þeim hindrunum sem áður voru í vegi fjöl- eða alþjóðlegs samstarfs um útboð lyfjakaupa.

Hins vegar var ráðuneytinu bent á mikilvægi þess að skilgreina fyrirfram hvernig meta ætti árangur af viðamiklum breytingum á heilbrigðiskerfinu. Ríkisendurskoðun telur að þau markmið, tímasettar aðgerðir og árangursmælikvarðar sem fram koma í frumvarpi til fjárlaga 2017 og í lyfjastefnu ráðuneytisins sýni að ráðuneytið hafi komið til móts við þessa ábendingu."

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum