Hoppa yfir valmynd
10. desember 2020 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 417/2020 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 10. desember 2020 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 417/2020

í stjórnsýslumáli nr. KNU20110029

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 10. nóvember 2020 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...], og vera ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 21. október 2020, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.

Kærandi gerir kröfu um að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsókn hans til efnismeðferðar hér á landi. Kærandi byggir kröfu sína í fyrsta lagi á 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, í öðru lagi á 3. mgr. 36. gr., sbr. 42. gr. laga um útlendinga og í þriðja lagi vísar kærandi til 11. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, 65. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fyrst fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 20. maí 2016. Málsmeðferð hans lauk með úrskurði kærunefndar útlendingamála þann 18. október 2016 og var kæranda fylgt til Ítalíu þann 14. nóvember 2016. Kærandi lagði öðru sinni fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 23. febrúar 2017. Við meðferð málsins lagði kærandi fram skilríki útgefin af ítölskum yfirvöldum til handa handhöfum alþjóðlegrar verndar, annars vegar dvalarleyfi (í. permesso di soggiorno) með gildistíma til 30. ágúst 2022 og hins vegar ferðaskilríki (í. documento di viaggio) með gildistíma til 16. október 2022. Málsmeðferð kæranda lauk með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 11. júní 2017. Kærandi kærði ekki ákvörðunina til kærunefndar útlendingamála og var fylgt til Ítalíu þann 16. júní 2018.

Kærandi lagði í þriðja sinn fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi þann 23. júní 2020 og kemur fram í hælisbeiðni hans, þann sama dag, að hann hafi týnt þeim skilríkjum sem hann hafi framvísað við komu sína til landsins deginum áður. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun, m.a. þann 26. ágúst 2020, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað þann 21. október 2020 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 27. október 2020 og kærði kærandi ákvörðunina þann 10. nóvember 2020 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd þann 19. nóvember 2020 ásamt fylgigögnum.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kom fram að kæranda hefði verið veitt alþjóðleg vernd á Ítalíu. Umsókn hans um alþjóðlega vernd yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Ítalíu ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Ítalíu.

Var kæranda veittur 30 daga frestur til að yfirgefa landið og athygli hans vakin á því að yfirgæfi hann ekki landið innan frests væri heimilt að brottvísa honum. Í brottvísun fælist bann við komu til landsins síðar og endurkomubann skyldi að jafnaði ekki gilda skemur en tvö ár.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda er um málavexti vísað til greinargerðar hans til Útlendingastofnunar. Þar hafi m.a. komið fram að kærandi hafi í viðtali hjá Útlendingastofnun greint frá andlegum erfiðleikum og sjálfsvígshugsunum. Um aðstæður sínar á Ítalíu greindi kærandi frá því að í kjölfar þess að honum hafi verið veitt alþjóðlega vernd þar í landi hafi hann litla aðstoð fengið. Kærandi hafi þó um þriggja mánaða skeið fengið aðstoð hjá hjálparsamtökum en eftir það hafi hann fengið mat í kirkju og sofið á lestarstöðvum. Þegar Covid-19 faraldurinn hafi riðið yfir hafi kirkjunni verið lokað en kærandi fengið mat og húsaskjól í heimkynnum starfsfólks kirkjunnar. Þá hafi verið erfiðleikum bundið fyrir kæranda að sækja sér heilbrigðisþjónustu eftir að hann hafi fengið vernd. Kærandi hafi leitað til félagsþjónustunnar en komið þar að lokuðum dyrum. Þá hafi kærandi greint frá því að hann hafi sótt um fjölda starfa þar í landi og mætt neikvæðu viðmóti atvinnurekenda. Þá teldi kærandi sig ekki hafa tök á fjölskyldusameiningu við eiginkonu sína og þrjú börn þar í landi þrátt fyrir að hafa fengið þar alþjóðlega vernd.

Í greinargerð kæranda er vísað til almennrar umfjöllunar Rauða krossins á Íslandi, en samtökin sjá um hagsmunagæslu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd hér á landi, frá því í október sl. um aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttafólks á Ítalíu. Þar kemur m.a. fram að ítalska hæliskerfið hafi verið undir álagi síðustu ár og að umtalsvert fleiri hafi sótt þar um vernd árið 2019 heldur en árið á undan og að því sé ljóst að ekki hafi dregið úr álagi á kerfið. Þá kemur þar m.a. fram að erfitt sé fyrir einstaklinga sem hlotið hafa alþjóðlega vernd þar í landi að fá húsnæði til lengri tíma en til hálfs árs og að húsnæðisúrræðum hafi verið fækkað og vísað til heimildar um að aðgangur að heilbrigðisþjónustu á Ítalíu sé takmarkaður.

Kærandi gerir athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar. Kærandi gerir í fyrsta lagi athugasemd við þá niðurstöðu að hann sé talinn hafa aðgang að þjónustu á Ítalíu. Þá gerir kærandi í öðru lagi athugasemd við mat Útlendingastofnunar á áhrifum heimsfaraldursins og þá niðurstöðu stofnunarinnar að faraldurinn hafi ekki haft þau áhrif á Ítalíu sem óttast hafi verið á vormánuðum. Með vísan til fréttar, dags. 13. nóvember 2020, þar sem fram hafi komið að þann daginn hafi verið tilkynnt um fleiri en 40.000 smit á Ítalíu, sem ekki hafi verið fleiri á einum degi frá því að faraldurinn hófst, telji kærandi að hvorki séu forsendur né lagaskilyrði til að víkja frá fordæmi kærunefndar útlendingamála í máli nr. KNU20050009, dags. 20. maí 2020. Kærandi hafi jafnframt glímt við [...]. Þá hafi hann glímt við sjálfskaðandi hugsanir og það liggi þungt á honum að eiginkona hans og börn séu enn í heimaríki. Kærandi telji sig vera einstakling í sérstaklega viðkvæmri stöðu og gerir athugasemd við að Útlendingastofnun hafi ekki metið hann sem slíkan í skilningi 3. tölul. 6. gr. laga um útlendinga.

Kærandi byggir kröfu sína um að umsókn hans verði tekin til efnislegrar meðferðar hér á landi í fyrsta lagi á því að til þess séu sérstakar ástæður, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi telji að íslenskum stjórnvöldum beri að leggja heildstætt mat á einstaklingsbundnar aðstæður hans og þær afleiðingar sem endursending geti haft í för með sér fyrir hann. Kærandi vísi til þess að með reglugerð nr. 276/2018 hafi verið gerð breyting á reglugerð um útlendinga nr. 540/2070 er varði framkvæmd 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þar sé að finna skilyrði sem kærandi telji ganga lengra en ákvæði laga um útlendinga og gangi í raun gegn vilja löggjafans. Kærandi telji að fullvíst sé að hann verði fyrir alvarlegri mismunun á Ítalíu verði honum gert að snúa þangað aftur og vísar því til stuðnings til áðurnefnds úrskurðar kærunefndar, frásagnar sinnar og heimilda sem vísað hafi verið til í áðurnefndri umfjöllun Rauða krossins. Þá telji kærandi víst að staða hans verði verulega síðri en staða almennings á Ítalíu í ljósi kynþáttar hans og stöðu sem flóttamanns. Kærandi telji aðgang umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttafólks að heilbrigðiskerfinu á Ítalíu erfiðleikum bundinn og að líkur séu á að hann fái ekki nauðsynlega aðstoð vegna líkamlegra og andlegra kvilla sinna. Þá veki kærandi athygli á orðalagi 32. gr. a umræddrar reglugerðar en þar komi fram að þau viðmið sem sett séu í greininni séu sett fram í dæmaskyni og því ekki tæmandi talning á þeim þáttum sem taka beri tillit til við mat á því hvort sérstakar ástæður eigi við. Þá er í greinargerð kæranda vísað til áhrifa Covid-19 faraldursins og farið fram á að kærunefnd kanni aðstæður á Ítalíu með tilliti til stöðu faraldursins þar í landi og leggi mat á það hvort taka skuli umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnislegrar meðferðar hér á landi á grundvelli sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Í öðru lagi byggir kærandi kröfu sína á því að ekki sé unnt að beita heimild a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga vegna ákvæða 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. einnig 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Grundvallarregla þjóðaréttar um non-refoulement sé hornsteinn flóttamannaréttar og feli í sér bann við brottvísun eða endursendingu einstaklinga til ríkja þar sem líf þeirra eða frelsi kunni að vera í hættu. Kærandi telji að aðstæður flóttamanna á Ítalíu séu svo slæmar að þær jafnist á við ómannúðlega og vanvirðandi meðferð í skilningi 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga og að með endursendingu kæranda til Ítalíu væri brotið gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, grundvallarreglu þjóðaréttar um non-refoulement, 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, 7. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins er kærandi handhafi alþjóðlegar verndar á Ítalíu og hefur gilt dvalarleyfi þar í landi til 30. ágúst 2022. Að mati kærunefndar felur sú vernd sem kærandi nýtur á Ítalíu í sér virka alþjóðlega vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður á Ítalíu

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður á Ítalíu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • Amnesty International Report 2017/2018 – Italy (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
  • Annual Report on the Situation of Asylum in the European Union 2020 (European Asylum Support Office, 25. júní 2020);
  • Asylum Information Database. Country Report – Italy (European Council on Refugees and Exiles, 27. maí 2020);
  • Asylum Information Database. Housing out of reach. The reception of refugees and asylum seekers in Europe (European Council on Refugees and Exiles, 27. maí 2019);
  • Concluding observations of the Committee on the Elimination of Racial Discrimination (UN Committee on the Elimination of Racial Discrimination, 17. febrúar 2017);
  • ECRI Report on Italy (European Commission against Racism and Intolerence, 7. júní 2016);
  • Freedom in the World 2020 – Italy (Freedom House, 4. mars 2020);
  • Italy 2019 Human Rights Report (United States Department of State, 11. mars 2020);
  • Reception conditions in Italy. Updated report on the situation of asylum seekers and beneficiaries of protection, in particular Dublin returnees, in Italy (Swiss Refugee Council, 21. janúar 2020);
  • Report of mission to Italy on racial discrimination, with a focus on incitement to racial hatred and discimination (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights, 2019);
  • Submission by the United Nations High Commissioner for Refugees. For the Office of the High Commissioner for Human Rights‘ Compilation Report – Universal Periodic Review: Italy (UNHCR, desember 2019);
  • UNHCR Recommendations on Important Aspects of Refugee Protection in Italy (UNHCR, júlí 2013);
  • Upplýsingar af vefsíðu Amnesty International (www.amnesty.org);
  • Upplýsingar af vefsíðu ítalska flóttamannaráðsins (í. Consiglio Italiano per I Rifugiati – (http:www.cir-onlus.org/eng/);
  • Upplýsingar af vefsíðu OSCE Office for Democratic Institutions and Human Rights (www.hatecrime.osce.org/italy);
  • Upplýsingasíða Johns Hopkins háskólans (https://coronavirus.jhu.edu/map.html, sótt 10. desember 2020) og
  • World Report 2020 – European Union (Human Rights Watch, 14. janúar 2020).

Samkvæmt ofangreindum gögnum eru dvalarleyfi einstaklinga með réttarstöðu flóttamanns og einstaklinga með viðbótarvernd gefin út til fimm ára en að þeim tíma liðnum geta handhafar sótt um ótímabundið dvalarleyfi á Ítalíu. Einstaklingar með réttarstöðu flóttamanns geta öðlast ríkisborgararétt að fimm árum liðnum en einstaklingar með viðbótarvernd að tíu árum liðnum. Einstaklingar með réttarstöðu flóttamanns fá flóttamannavegabréf (í. documenti di viaggio) með fimm ára gildistíma en handhafar viðbótarverndar geta fengið svonefnt ferðaleyfi (í. titolo di viaggio). Af framangreindum gögnum verður þó ekki séð að á Ítalíu sé munur á réttindum einstaklinga með réttarstöðu flóttamanns og handhafa viðbótarverndar hvað snertir aðgang að húsnæði, heilbrigðisþjónustu og atvinnuleyfi.

Af framangreindum gögnum má sjá að ítölsk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Í framangreindri skýrslu European Council on Refugees and Exiles (ECRE) kemur m.a. fram að húsnæðisaðstoð við einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar sé af skornum skammti. Ítölsk yfirvöld reka þó búsetuúrræðin SIPROIMI (e. System for the Protection of Beneficiaries of International Protection and Unaccompanied Foreign Minors) sem eru eingöngu ætluð handhöfum alþjóðlegrar verndar, fylgdarlausum börnum og þeim sem hafa dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Þegar einstaklingar hafa fengið inngöngu í SIPROIMI úrræði mega þeir dvelja þar í sex mánuði. Aftur á móti eru ekki nógu mörg SIPROIMI úrræði til að mæta þeim fjölda sem hefur fengið alþjóðlega vernd. Þá kemur þar jafnframt fram að sambærileg félagsleg húsnæðisúrræði á vegum sveitarfélaga séu aðgengileg einstaklingum sem njóta alþjóðlegrar verndar og ítölskum ríkisborgurum þó einhver dæmi séu um að sveitarfélög geri kröfu um búsetu á Ítalíu í tiltekinn tíma til að öðlast rétt til aðgangs að slíkum úrræðum.

Í framangreindri skýrslu ECRE kemur m.a. fram að einstaklingar sem njóta alþjóðlegrar verndar og hafa dvalarleyfi á Ítalíu hafa sama rétt til atvinnuþátttöku og ítalskir ríkisborgarar. Hins vegar sé atvinnuleysi mikið og eiga einstaklingar með alþjóðlega vernd oft í erfiðleikum með að finna atvinnu við hæfi en hafa, líkt og ítalskir ríkisborgarar, rétt á aðstoð þeirri sem vinnumiðlanir veita. Þá hafa einstaklingar sem njóta alþjóðlegrar verndar á Ítalíu almennt sama rétt og ítalskir ríkisborgarar til velferðarþjónustu. Aftur á móti er í einhverjum tilvikum gerð krafa um búsetu á Ítalíu í ákveðinn tíma, t.a.m. er tiltekin aðstoð við framfærslu eingöngu veitt einstaklingum sem hafa búið í tíu ár á Ítalíu.

Í framangreindri skýrslu ECRE kemur m.a. fram að einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd eiga sama rétt og ítalskir ríkisborgarar til lögboðinnar heilbrigðisþjónustu að því gefnu að þeir hafi skráð sig inn í heilbrigðiskerfið. Slík skráning er háð því að umsækjandi hafi skráð lögheimili sem eðli máls samkvæmt getur verið hindrun fyrir einstaklinga sem eru án fastrar búsetu. Skráning í heilbrigðiskerfið fellur ekki sjálfkrafa úr gildi meðan á málsmeðferð endurnýjunar dvalarleyfisins stendur en í framkvæmd geta einstaklingar með útrunnin dvalarleyfi átt í erfiðleikum með að nálgast heilbrigðisþjónustu. Sjúklingar þurfa almennt að greiða hluta þess kostnaðar sem fellur til vegna heilbrigðisþjónustu sem þeir nýta sér en frá því eru þó undantekningar, t.d. í þeim tilvikum þegar sjúklingar eru utan vinnumarkaðar og án annarrar framfærslu. Mismunandi túlkun á reglum um greiðsluþátttöku sjúklinga hefur þó leitt til þess að í sumum sveitarfélögum hefur verið gerð krafa um að einstaklingar sem njóta alþjóðlegrar verndar en eru utan vinnumarkaðar greiði kostnað við heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt framangreindum heimildum eru því ýmsar aðgangshindranir þegar kemur að heilbrigðiskerfinu á Ítalíu, m.a. vegna tungumálaörðugleika.

Af framangreindum skýrslum verður jafnframt ráðið að fordómar í garð fólks af erlendum uppruna séu vandamál á Ítalíu en ítölsk stjórnvöld hafi gripið til aðgerða til að sporna við kynþáttafordómum og mismunun á grundvelli kynþáttar, m.a. með lagasetningu. Í kjölfar athugasemda alþjóðlegra eftirlitsnefnda, stofnana og frjálsra félagasamtaka hafa ítölsk yfirvöld tekið mikilvæg skref í þá átt að vinna gegn kynþáttafordómum, mismunun á grundvelli kynþáttar og hatursglæpum, þ. á m. með gerð aðgerðaráætlunar gegn kynþáttahyggju (e. National Action Plan against Racism, Xenophobia and Intolerance) sem var í gildi á árunum 2014-2016. Þá fjölgaði rannsóknum og ákærum í málum er varða mismunun, hatursorðræðu og hatursglæpi á grundvelli kynþáttar og þjóðernis á árunum 2016 til 2018 en ítölsk stjórnvöld hafa ekki nema að takmörkuðu leyti birt tölfræði fyrir árið 2019. Á Ítalíu er starfrækt stofnun (í. Ufficio Nazionale Antidiscriminazioni Razziali) sem hefur það hlutverk að berjast gegn hvers kyns mismunun. Einstaklingar sem telja sig hafa orðið fyrir mismunun þ. á m. vegna kynþáttar eða kynhneigðar og þurfa á aðstoð eða ráðgjöf að halda geta leitað til stofnunarinnar. Framangreindar skýrslur bera enn fremur með sér að almenningur á Ítalíu geti leitað sér aðstoðar ítalskra löggæsluyfirvalda vegna ofbeldisbrota og hótana.

Í fyrrnefndri skýrslu ECRE kemur m.a. fram að einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd á Ítalíu geta sótt um fjölskyldusameiningu. Þá kemur þar fram að þegar rafrænt dvalarleyfi hefur verið gefið út er unnt að sækja um fjölskyldusameiningu, en útgáfa þess geti á sumum landsvæðum tekið einhverja mánuði, en hins vegar er ekki hámarks tímafrestur fyrir því að sækja um fjölskyldusameiningu. Þá sé samkvæmt ítölskum lögum m.a. hægt að æskja fjölskyldusameiningar við maka sinn og ólögráða börn sín.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi karlmaður á [...] sem hefur sótt um vernd hér á landi tvisvar sinnum áður. Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindi kærandi m.a. frá því að hann væri giftur og ætti þrjú börn í heimaríki. Þá greindi kærandi m.a. frá því að vegna aðstæðna sinna, sem umsækjandi um alþjóðlega vernd í Evrópu undanfarin fimm ár sem saknaði barna sinna og fjölskyldu, fyndi hann fyrir kvíða og hefði af þeim áhyggjur. Kærandi greindi þá frá því að eiga í erfiðleikum með svefn og að hann hugsaði stundum um að taka eigið líf. Þá greindi kærandi frá því að hann hefði ekki náð fullum bata eftir að hafa [...], svonefnt [...]. Kærandi hafi fengið lyf af þeim sökum á Ítalíu en ekki þá sjúkraþjálfun sem hann hefði þó þurft á að halda. Í samskiptaseðli frá göngudeild sóttvarna, dags. 15. mars 2018, kemur fram að kærandi hafi sagt að [...]. Samkvæmt samskiptaseðlinum fælust þau einkenni sem væru enn til staðar í takmörkuðum áhrifum á auga og að kinn og vör hreyfðust aðeins minna á vinstri hlið andlits hans en á þeirri hægri þegar hann brosi og blási frá sér.

Á meðal gagna málsins eru gögn um heilsufar kæranda sem hann hefur lagt fram vegna fyrri umsókna sinna, t.a.m. frá Ítalíu. Í gögnum um heilsufar kæranda, sem hann hefur lagt fram við meðferð þessa máls, t.a.m. frá heilsugæslunni í Keflavík, dags. 14. júlí 2020, kemur m.a. fram að kærandi hafi leitað sér aðstoðar vegna brjóstverkja og að heyrst hafi diastoliskt murmur við hjartahlustun. Kæranda var vísað til hjartaómunar og í sérfræðingsnótu frá Læknasetrinu, dags. 12. ágúst 2020, kemur fram að hjartaómskoðun kæranda hafi verið eðlileg og ekki hafi fundist skýring á systolisku eða diastolisku óhljóði.

Kærunefnd tekur fram að kæranda var leiðbeint í viðtali hjá Útlendingastofnun, þann 26. ágúst 2020, um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem kærandi telji hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls hans hjá Útlendingastofnun. Þá var kæranda leiðbeint með tölvupósti kærunefndar, dags. 26. nóvember 2020, um framlagningu frekari gagna, t.a.m. heilsufarsgagna, væru þau til staðar. Með vísan til fyrrgreindrar málsmeðferðar og þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu telur kærunefnd að mál kæranda sé nægjanlega upplýst hvað varðar heilsufar kæranda og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður hans. Þá er ekkert sem bendir til þess að frekari gögn um heilsufar hans geti haft áhrif á niðurstöðu málsins.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda hefur þegar verið lýst en meðal annars liggur fyrir að kærandi hafi glímt við andlega vanlíðan og [...] í andliti, sem hafi ekki gengið fyllilega til baka. Kærunefnd telur þó að aðstæður hans séu ekki þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Í því sambandi hefur nefndin m.a. litið til þess að heilsufar kæranda sé ekki með þeim hætti að hann teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, eins og segir í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Þá telur nefndin að heilbrigðisaðstæður kæranda geti ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar. Í ljósi framangreindra upplýsinga um aðstæður á Ítalíu áréttar kærunefnd að ekki séu forsendur til annars en að leggja til grundvallar að kærandi geti leitað sér fullnægjandi og aðgengilegrar þjónustu þar í landi í samræmi við þarfir sínar, en eins og áður hefur verið rakið eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd á Ítalíu að lögum sambærilegan rétt á heilbrigðisþjónustu og ríkisborgarar Ítalíu þó að þeir þurfi í einhverjum tilvikum að yfirstíga ákveðnar hindranir til að nýta rétt sinn. Í þessu sambandi áréttar kærunefnd að í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga er sérstaklega tekið fram að meðferð við veikindum teljist, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana. Að mati kærunefndar er heilsufar kæranda ekki þess eðlis að ástæða sé til að víkja frá þessari meginreglu. Það er mat kærunefndar að aðstæður kæranda er varðar heilsufar hans séu ekki slíkar að hann muni ekki geta sótt sér þá heilbrigðisþjónustu á Ítalíu sem hann hefur þörf fyrir.

Þá telur kærunefnd að gögn málsins beri ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, s.s. ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða að hann vænst þess að staða hans, í ljósi sömu ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. áðurnefnd viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Kærandi hefur m.a. borið fyrir sig að sérstakar ástæður séu fyrir hendi í máli hans þar sem hann hafi ekki átt fastan dvalarstað eða fengið þar atvinnu. Í framangreindum skýrslum og gögnum um aðstæður á Ítalíu kemur fram að einstaklingar með alþjóðlega vernd þar í landi hafi heimild til að stunda atvinnu. Þótt skýrslur um aðstæður á Ítalíu bendi til þess að aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar þar í landi séu að einhverju leyti lakari en aðstæður þeirra hér á landi, m.a. m.t.t. félagslegrar aðstoðar og aðgangs að félagslegum húsnæðisúrræðum, er það mat nefndarinnar að almennar aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar á Ítalíu séu ekki þess eðlis að þær, einar og sér, teljist til sérstakra ástæðna. Í því sambandi hefur nefndin jafnframt litið til þess sem fram kemur í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga að efnahagslegar ástæður geti ekki talist til sérstakra ástæðna. Þá er það mat kærunefndar að aðstæður kæranda séu ekki slíkar að hann geti ekki borið sig eftir þeirri þjónustu sem hann á að lögum rétt á og þarf á að halda. Þá verður ráðið af framangreindum gögnum að kærandi getur leitað til lögregluyfirvalda eða annarra þar til bærra yfirvalda óttist hann um öryggi sitt þar í landi. Kærandi hefur ekki sýnt fram á að aðrar aðstæður hans í viðtökuríki séu slíkar að viðmið tengd alvarlegri mismunun, sambærileg þeim sem 32. gr. a reglugerðarinnar lýsir, leiði til þess að taka beri umsókn hans til efnismeðferðar hér á landi.

Kærandi hefur greint frá því að hann telji sig ekki eiga kost á því að sameinast fjölskyldu sinni í viðtökuríki. Samkvæmt gögnum málsins eiga einstaklingar með réttarstöðu flóttamanns á Ítalíu möguleika á fjölskyldusameiningu þar í landi að uppfylltum tilteknum skilyrðum. Kærunefnd telur að ekkert bendi til þess að skilyrðin fyrir fjölskyldusameiningu á Ítalíu séu í ósamræmi við regluverk Evrópusambandsins, sbr. tilskipun nr. 2003/86/EC frá 22. september 2003 um fjölskyldusameiningu. Af framangreindum gögnum verður ráðið að kærandi geti sótt um fjölskyldusameiningu á grundvelli alþjóðlegrar verndar sinnar á Ítalíu. Að mati kærunefndar er ekki unnt að líta svo á að reglur um fjölskyldusameiningu á Ítalíu eða framkvæmd þeirra séu þess eðlis að litið verði svo á að kærandi eigi erfitt uppdráttar af þeim sökum.

Við mat á því hvort sérstakar ástæður mæli með því að umsókn kæranda hljóti efnismeðferð hér á landi hefur kærunefnd litið til þeirra aðstæðna sem nú eru uppi vegna Covid-19 faraldursins. Fjölmörg ríki hafa gripið til umfangsmikilla aðgerða til þess að sporna við útbreiðslu veirunnar. Hafa aðgerðirnar m.a. falist í ferðatakmörkunum og ferðabönnum. Í því sambandi hafa mörg ríki sett á ferðatakmarkanir og mörg hver á einhverjum tímapunkti lokað fyrir endursendingar, bæði einstaklinga með alþjóðlega vernd og á grundvelli Dyflinnarsamstarfsins. Var það m.a. gert hér á landi yfir ákveðið tímabil en óvissa ríkir um það hvenær framkvæmd endursendinga verði komin í sama horf og áður en Covid-19 faraldurinn skall á. Yfirvöld á Ítalíu hafa gripið til umfangsmikilla aðgerða til þess að sporna við útbreiðslu veirunnar, m.a. með takmörkunum á ferðum til landsins, útgöngubanni og takmörkunum á samkomum. Þá hefur verið lýst yfir neyðarástandi í landinu sem sé í gildi til 31. janúar 2021. Smitum fjölgaði á nýjan leik á Ítalíu í haust en nýgengi smita hefur farið stöðugt niður síðan um miðjan nóvember sl. Kærunefnd ekki forsendur til annars en að líta svo á að þær takmarkanir sem við líði eru vegna Covid-19 faraldursins séu tímabundnar. Í því sambandi lítur kærunefnd einnig til þess að allar líkur eru á því að Lyfjastofnun Evrópu samþykki á næstu vikum notkun á nokkrum tegundum bóluefna gegn veirunni sem veldur Covid-19 og að bólusetning hefjist í janúar í flestum aðildarríkjum Evrópusambandsins.

Ítölsk stjórnvöld notast við litakóða til þess að afmarka hvers konar takmarkanir gilda í ólíkum landshlutum, fara takmarkanir því eftir aðstæðum í hverju sveitarfélagi og geta verið ólíkar þeirra á milli. Af upplýsingasíðu Johns Hopkins háskólans í Bandaríkjunum og vefsíðu Sóttvarnarstofnunar Evrópu má ráða að viðtökuríkið hafi náð nokkrum árangri við að ná niðurlögum Covid-19 faraldursins. Að mati kærunefndar bendir ekkert til þess að það ástand sem nú ríki, sem kærunefnd hefur ekki forsendur til að telja annað en tímabundið, komi til með að hafa teljandi áhrif á stöðu kæranda þar í landi þegar takmörkunum verður aflétt.

Þá lítur kærunefnd einnig til þess að skv. 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga er Útlendingastofnun heimilt að fresta flutningi á umsækjanda ef það telst nauðsynlegt vegna sérstakra aðstæðna hans eða ómögulegt er að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.

Er það mat kærunefndar að tímabundnar takmarkanir á endursendingum til Ítalíu geti ekki, eins og hér stendur á, leitt til þess að sérstakar ástæður mæli með því að umsókn kæranda verði tekin til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Það er jafnframt mat kærunefndar að málsástæður kæranda að öðru leyti verði ekki taldar til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Vegna tilvísunar í greinargerð kæranda til úrskurðar kærunefndar í máli nr. KNU20050009 frá 20. maí sl., tekur kærunefnd fram að þrátt fyrir að um sama viðtökuríki sé að ræða sé ekki unnt að jafna aðstæðum kæranda í þessu máli við stöðu kæranda í framangreindu máli. Ólíkt því sem á við um mál kæranda hafði kærandi í því máli ekki hlotið alþjóðlega vernd á Ítalíu. Þá kemur m.a. fram í niðurstöðu úrskurðar kærunefndar í framangreindum úrskurði að nefndin telji að neikvæðar afleiðingar Covid-19 faraldursins geti leitt til aðgangshindrana að þjónustu fyrir flóttamenn og umsækjendur um alþjóðlega vernd á Ítalíu. Var umsókn kæranda m.a. af þeirri ástæðu tekin til efnismeðferðar hér á landi. Á þeim tímapunkti sem framangreindur úrskurður var kveðinn upp ríkti mikil óvissa í heiminum um hver áhrif Covid-19 faraldursins yrðu á innviði ríkja og réttindi og aðstæður flóttafólks og umsækjenda um alþjóðlega vernd. Jafnframt bárust fréttir af erfiðleikum ítalskra stjórnvalda við að ná tökum á aðstæðum. Sú óvissa var grundvallarforsenda þeirrar niðurstöðu kærunefndar að leggja fyrir Útlendingastofnun að taka mál hans til efnismeðferðar. Þá leit kærunefnd einnig til þeirrar framkvæmdar stofnunarinnar að taka sambærileg mál til efnismeðferðar á þessum tíma af þessum sömu ástæðum.

Kærunefnd telur að verulega hafi dregið úr þeirri óvissu sem var til staðar í maí sl., m.a. um áhrif faraldursins á innviði viðtökuríkisins, og hefur kærunefnd hér að framan lagt einstaklingsbundið mat á væntanlegar aðstæður kæranda á Ítalíu í samræmi við stöðu mála þar í landi eins og þær horfa við honum nú um stundir. Þó að faraldurinn hafi verið í uppsveiflu á Ítalíu fyrr í haust, eins og í flestum öðrum Evrópuríkjum, þá benda gögn ekki til þess að faraldurinn hafi haft þau áhrif þar í landi sem áður var talin hætta á. Kærunefnd telur með vísan til þeirra skýrslna og gagna sem nefndin hefur kynnt sér að ekkert bendi til þess að þjónusta til handhafa alþjóðlegrar verndar á Ítalíu hafi skerst á síðustu mánuðum vegna Covid-19 faraldursins þannig að það geti leitt til þess að taka eigi mál kæranda til efnismeðferðar hér á landi. Þá lítur kærunefnd jafnframt til þess að með tilkomu bóluefnis sjái nú fyrir endann á þeim aðstæðum sem ríkt hafa undanfarna mánuði vegna Covid-19 faraldursins, hér á landi sem og annars staðar, þ. á m. á Ítalíu. Það er því mat kærunefndar að sú óvissa sem ríkti í vor og leiddi til þess að umsóknir einstaklinga með alþjóðlega vernd í Ítalíu voru teknar til efnismeðferðar sé ekki lengur til staðar og því sé ekki um sérstakar ástæður að ræða í málinu í skilningi. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda og á grundvelli heildarmats á áhrifum Covid-19 faraldursins á aðstæður hans er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 26. ágúst 2020 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland en eigi hér vini. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 23. júní 2020.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið byggt á því að sú meðferð sem einstaklingur á von á verði ákvörðun um að hann verði sendur til annars ríkis framfylgt þurfi að ná mjög háu alvarleikastigi til að ákvörðunin verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars. Við mat á umræddu alvarleikastigi hefur dómstóllinn jafnframt litið til annarra þátta, t.d. hvort einstaklingurinn sé frelsissviptur, sbr. t.d. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Khlaifia o.fl. gegn Ítalíu (nr. 16483/12) frá 15. desember 2016.

Í ákvörðun Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013 kemur m.a. fram að það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni við brottvísun eða frávísun frá aðildarríki nái ekki því alvarleikastigi að teljast brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þá verði greinin ekki túlkuð þannig að í henni felist skylda aðildarríkja til að sjá einstaklingum sem njóti alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum. Dómstóllinn áréttaði jafnframt að einstaklingur sem standi til að vísa brott geti ekki gert kröfu um áframhaldandi dvöl í ríki í því skyni að njóta þar heilbrigðis- eða félagsþjónustu. Veruleg skerðing lífsgæða sé ekki nægjanleg til að valda broti á 3. gr. mannréttindasáttmálans nema sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæltu gegn endursendingu. Málið varðaði flutning einstæðrar móður með tvö ung börn sem voru með viðbótarvernd til Ítalíu og komst dómstóllinn einróma að þeirri niðurstöðu að málsástæður hennar um að flutningur til Ítalíu væri brot á 3., 8. og 13. gr. mannréttindasáttmálans væri bersýnilega tilhæfulaus.

Með vísan til framangreinds tekur kærunefnd ekki undir þá málsástæðu kæranda að aðstæður flóttafólks á Ítalíu séu svo slæmar að þær jafnist á við ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð. Með vísan til umfjöllunar um aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar á Ítalíu er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þar sem kærandi nýtur alþjóðlegrar verndar á Ítalíu telur kærunefnd að tryggt sé að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Athugasemdir kæranda við hina kærðu ákvörðun

Líkt og fram hefur komið gerir kærandi athugasemdir við hina kærðu ákvörðun, m.a. við beitingu reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með áorðnum breytingum.

Kærandi gerir athugasemd við mat á sérstaklega viðkvæmri stöðu hans, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Af þessu tilefni vill kærunefnd árétta að ákvörðun um hvort umsækjandi sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga snýst um það hvort þörf sé á sérstökum stuðningi við umsækjanda í gegnum umsóknarferlið og á meðan á dvöl hans stendur hér á landi. Í 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur m.a. fram að við meðferð umsóknar um alþjóðlega vernd skuli Útlendingastofnun tryggja, eins fljótt og kostur er, að fram fari, með aðstoð viðeigandi sérfræðinga, einstaklingsbundin greining á því hvort umsækjandi teljist vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Sé hann í slíkri stöðu skal stofnunin meta hvort hann hafi einhverjar sérþarfir, t.d. þörf á tiltekinni heilbrigðisþjónustu. Þá er tekið fram í 2. mgr. sama ákvæðis að ákvæði IV., V. og VII. kafla stjórnsýslulaga um andmælarétt, um birtingu ákvörðunar, rökstuðning o.fl. og um stjórnsýslukæru og viðeigandi ákvæði I. og IX. kafla laga um útlendinga gilda ekki um ákvörðun um sérstaklega viðkvæma stöðu skv. 1. mgr. Skilgreining á stöðu skv. 1. mgr. hafi ekki önnur réttaráhrif en þau sem sérstaklega er getið í lögum eða reglugerð. Kærunefnd telur því ljóst að mat skv. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga fari fram hjá Útlendingastofnun, sé ekki kæranlegt til kærunefndar og hafi ekki önnur réttaráhrif en sérstaklega er getið um í lögum eða reglugerð. Jafnframt er ljóst að fyrir utan tilvísun til sérstaklegrar viðkvæmrar stöðu fylgdarlausra barna í 6. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga er hvergi vikið að réttaráhrifum þess að einstaklingur teljist vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu á grundvelli 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Kærunefnd leggur þannig áherslu á að ákvörðun um hvort umsækjandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu er annað en mat á einstaklingsbundnum aðstæðum umsækjanda þó svo að þessi hugtök skarist nokkuð. Að því er varðar mat Útlendingastofnunar á einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda í þessu máli tekur kærunefnd fram að kæranda var leiðbeint um framlagningu heilsufarsgagna við málsmeðferð hjá Útlendingastofnun, en í viðtali hans var honum leiðbeint um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem hann teldi hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls hans hjá Útlendingastofnun. Við meðferð málsins hjá kærunefnd hefur kæranda auk þess verið leiðbeint um framlagningu frekari heilsufarsgagna í málinu og er það mat kærunefndar að mál kæranda hafi verið nægjanlega upplýst er varðar heilsufar kæranda og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður hans. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að gera athugasemdir við mat Útlendingastofnunar á þeim einstaklingsbundnu aðstæðum kæranda sem áhrif gætu haft á mat á því hvort rétt sé að taka umsókn kæranda til efnismeðferðar hér á landi.

Eins og að framan greinir hefur kærunefnd lagt einstaklingsbundið mat á umsókn kæranda og komist að niðurstöðu um að taka umsókn hans ekki til efnismeðferðar með vísan til ákvæða laga um útlendinga eins og þau hafa verið útfærð í reglugerð um útlendinga. Er niðurstaða í málinu byggð á túlkun kærunefndar á framangreindum ákvæðum og sjónarmiðum sem nefndin telur málefnaleg en áður hefur komið fram í úrskurðum kærunefndar að reglugerðina skorti ekki lagastoð.

Vegna athugasemdar kæranda í greinargerð um beitingu ákvæða 32. gr. a reglugerðar um útlendinga tekur kærunefnd sérstaklega fram að hún telji ljóst að það leiði bæði af orðalaginu „viðmið“ og tilvísun í reglugerðinni um að þau séu í „dæmaskyni“ að ekki sé um að ræða tæmandi upptalningu á þeim sjónarmiðum sem komið geta til greina við mat á því hvort sérstakar ástæður eru fyrir hendi í máli. Af því leiðir að aðrar aðstæður, sambærilegar í eðli sínu og af svipuðu eða hærra alvarleikastigi, geta haft vægi við ákvörðun um hvort sérstakar ástæður séu til að taka mál umsækjanda til efnismeðferðar hér á landi, svo framarlega sem slíkar aðstæður eru ekki sérstaklega undanskildar, sbr. 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Kærunefnd áréttar í þessu samhengi að við meðferð mála hjá kærunefnd er ávallt horft til einstaklingsbundinna aðstæðna einstaklingsins við mat á því hvort sérstakar ástæður mæli með því að mál verði tekið til efnismeðferðar, í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, þ.m.t. heilsufars hans og annarra þátta sem benda til viðkvæmrar stöðu einstaklingsins. Kærunefnd leggur því áherslu á að heildarmat sé lagt á atvik í hverju máli fyrir sig á grundvelli einstaklingsbundinna aðstæðna einstaklingsins og aðstæðna í viðtökuríki.

Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun að öðru leyti og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við hana. Hefur kærunefnd skoðað alla þætti málsins og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun.

Frávísun

Samkvæmt gögnum málsins kom kærandi hingað til lands þann 22. júní 2020. Hann sótti um alþjóðlega vernd þann 23. júní 2020. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Að mati kærunefndar og með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 30 dagar hæfilegur frestur til að yfirgefa landið í þessu máli.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd á grundvelli lokamálsliðar 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin, m.a. ef afleiðingar Covid-19 faraldursins muni vara lengur og vera alvarlegri en gera má ráð fyrir nú.

Athygli kæranda er einnig vakin á því að Útlendingastofnun getur frestað framkvæmd ákvörðunar með vísan til 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga vegna sérstakra aðstæðna útlendings eða vegna þess að ómögulegt sé að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Lagt er fyrir kæranda að hverfa af landi brott. Kæranda er veittur 30 daga frestur til að yfirgefa landið sjálfviljugur.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. The appellant is requested to leave the country. The appellant has 30 days to leave the country voluntarily.

 

Hjörtur Bragi Sverrisson

Þorbjörg Inga Jónsdóttir                                  Sandra Hlíf Ocares

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum