Hoppa yfir valmynd
29. desember 2023 Innviðaráðuneytið

400 milljóna króna viðbótarframlög vegna þjónustu við fatlað fólk árið 2023

Innviðaráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um úthlutun sérstaks viðbótarframlags á árinu 2023 vegna þjónustu við fatlað fólk. Nemur upphæð framlagsins 400 milljónum króna og grundvallast útreikningar framlagsins á rekstrartapi þjónustusvæða í málaflokknum árið 2022.

Á grundvelli 2. gr. reglugerðar nr. 192/2023 um framlög Jöfnunarsjóðs vegna þjónustu við fatlað fólk á árinu 2023 er heimilt að veita sérstök viðbótarframlög til þeirra þjónustusvæða þar sem kostnaður við reksturinn er verulega íþyngjandi. Í greiðslu- og rekstraráætlun sjóðsins 2023 er gert ráð fyrir að viðbótarframlög á árinu geti numið allt að 400 m.kr.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum