Hoppa yfir valmynd
19. janúar 2021 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 7/2021 Úrskurður 19. janúar 2021

Mál nr. 7/2021                       Eiginnafn:      Leah (kvk.)

                                                Millinafn:       Leah

 

 

Hinn 19. janúar 2021 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 7/2021 en erindið barst nefndinni 12. janúar.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  • Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  • Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  • Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  • Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

 

Ritháttur eiginnafnsins Leah er ekki í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls þar sem ekki er ritað h í lok orða í íslensku. Er því aðeins unnt að samþykkja ritháttinn Leah að hefð sé fyrir honum.

Við túlkun mannanafnanefndar á hugtakinu hefð í 5. og 6. gr. laga um mannanöfn er stuðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 19. janúar 2015 og eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum og eldri vinnulagsreglum:

1.   Ungt tökunafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:

 

  1. Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;
  2. Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;
  3. Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;
  4. Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1910 eða 1920;
  5. Það er ekki borið af neinum Íslendingi nú en kemur a.m.k. fyrir í tveimur manntölum frá 1703–1920.

 

2.  Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.

 

3.  Tökunafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.

Tekið skal fram að vinnulagsreglurnar eru mannafnanefnd til stuðnings við mat sitt, en ekki ráðandi um niðurstöðuna bendi önnur atriði engu að síður til þess að ritháttur nafns hafi hefðast.

Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands bera sex konur, sem uppfylla skilyrði vinnulagsreglnanna, eiginnafnið Leah í þjóðskrá. Sú elsta er fædd árið 1983. Nafnið kemur ekki fyrir í manntölum frá 1703–1920. Þess vegna telst rithátturinn ekki hafa unnið sér hefð í íslensku.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt millinafn þurfa öll skilyrði 6. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn, að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

 

  • Millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.
  • Nöfn, sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annaðhvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.
  • Millinafn skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  • Millinafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Auk þess má mafnið ekki vera ættarnafn í skilningi 7. gr. mannanafnalaga.

Eins og fyrr segir er nafnið Leah ekki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls. Þar að auki getur nafnið ekki talist dregið af íslenskum orðstofni. Millinafnið Leah uppfyllir þess vegna ekki ákvæði 6. gr. fyrrnefndra laga.

 

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Leah (kvk.) er hafnað.

Beiðni um millinafnið Leah er hafnað.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum