Hoppa yfir valmynd
10. ágúst 2020 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Tilnefningar til Hvatningarverðlauna Vísinda- og tækniráðs

Nú er leitað eftir tilnefningum til Hvatningarverðlauna Vísinda- og tækniráðs en  markmið þeirra er að hvetja vísindamenn til dáða og vekja athygli almennings á gildi rannsókna og starfi vísindamanna. Frestur til að skila inn tilnefningum, rökstuðningi og öðrum gögnum til Rannís er til og með 23. ágúst nk.

Við mat á tilnefningum er tekið tillit til námsferils viðkomandi vísindamanns, sjálfstæðis, frumleika og árangurs í vísindastörfum að loknu námi; ritsmíða, einkaleyfa og alþjóðasamstarfs, svo og annarra vísbendinga um líklegan árangur af störfum viðkomandi. Sérstaklega er litið til brautryðjendastarfs í vísindum. Þá er litið til faglegs framlags á vinnustað og miðlun þekkingar til íslensks samfélags. Fimm handhafar verðlaunanna skipa dómnefnd verðlaunanna.

Tilnefningar geta komið frá öllum sviðum vísinda, tækni og fræða. Tilnefna má vísindafólk sem starfar á Íslandi við háskóla, rannsóknastofnanir, fyrirtæki eða er sjálfstætt starfandi. Öllum, sem eru í aðstöðu til að meta störf einstakra vísindamanna, er heimilt að senda tilnefningar. Ferilskrá vísindamannsins skal fylgja tilnefningu ásamt rökstuðningi þess sem tilnefnir. Almennt er miðað við að þeir sem koma til álita séu ekki eldri en 40 ára en þó er tekið fullt tillit til tafa sem kunna að verða á ferli vísindamannsins vegna umönnunar barna. Hvatningarverðlaunin verða afhent á Rannsóknaþingi Rannís í haust.

Nánari upplýsingar um Hvatningarverðlaunin Vísinda- og tækniráðs er að finna á vef Rannís.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

9. Nýsköpun og uppbygging
4. Menntun fyrir öll

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum