Hoppa yfir valmynd
11. maí 2020 Utanríkisráðuneytið

Tíu nýir fulltrúar verða valdir í ungmennaráð heimsmarkmiðanna

Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna - mynd

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í ungmennaráð heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna á vef heimsmarkmiðanna. Óskað er eftir umsóknum frá ungmennum á aldrinum 13 til 18 ára hvaðanæva af landinu. Tíu nýir fulltrúar verða valdir í ráðið auk tveggja fulltrúa sem halda sæti sínu frá fyrra starfsári. Nýskipað ungmennaráð kemur saman í september og starfar út næstkomandi skólaár. Umsóknarfrestur er til og með 24. maí næstkomandi.

Ungmennaráð heimsmarkmiðanna tók fyrst til starfa í apríl 2018. Hlutverk þess er að fræðast og fjalla um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna ásamt því að koma áherslumálum sínum á framfæri og miðla upplýsingum um markmiðin og sjálfbæra þróun. Ungmennaráðið veitir stjórnvöldum einnig ráðgjöf við innleiðingu markmiðanna ásamt því að eiga árlegan fund með ríkisstjórn.

Ein af megináherslum heimsmarkmiðanna er samvinna á milli ólíkra hagsmunaaðila um markmiðin, þar á meðal ungmenna. Ráðinu er þannig ætlað að vera lifandi vettvangur þar sem heimsmarkmiðin eru höfð að leiðarljósi og rædd með gagnrýnum og lausnamiðuðum hætti. Þá er starfsemi ungmennaráðsins í samræmi við sáttmála ríkisstjórnarinnar þar sem kveðið er á um að framfylgja skuli ákvæðum Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, meðal annars um aukin áhrif barna í samfélaginu.

Áformað er að skipuð verði valnefnd með ungmennafulltrúum til að yfirfara umsóknirnar og velja úr þeim fulltrúa í ráðið. Það er gert til að auka gagnsæi við úrvinnslu umsókna og styrkja umboð fulltrúa í ungmennaráðinu.

Umsóknarform fyrir ungmennaráð heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna

Nánari upplýsingar um heimsmarkmiðin má finna á heimsmarkmidin.is og á Facebook síðum heimsmarkmiðanna og ungmennaráðsins.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum