Hoppa yfir valmynd
11. nóvember 2020 Menningar- og viðskiptaráðuneytið, Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Styrkveitingar haustið 2020

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna og viðburða á málefnasviðum ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. 

Úthlutunarreglur fyrir hvorn ráðherra fyrir sig:

Ekki eru veittir styrkir til einstaklinga, rekstrarstyrkir, ferðastyrkir, styrkir til nefndarsetu eða styrkir til BA/BS, eða meistaraprófa. Þá eru ekki veittir styrkir til bæjarhátíða.

 

Skv. úthlutunarreglum munu starfshópar skipaðir af ráðherrum meta umsóknir en horft verður til ýmissa þátta við úthlutunina, m.a. hvort verkefnin þyki hafa gildi fyrir starfsemi viðkomandi málaflokks, hvort verkefnið búi yfir sérstöðu eða nýnæmi og hvort markmið og mælikvarðar séu skýrir. Frekari upplýsingar um styrkhæfi, mat á umsóknum og viðmið við úthlutum má finna í úthlutunarreglum.

Hver einstaki styrkur getur numið allt að 10% heildarupphæð úthlutana. Haustið 2020 eru heildarupphæðir sem ráðherrar hafa til ráðstöfunar sem hér segir: 

  • Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra: 10.000.000
  • Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra: 7.900.000

Umsóknum skal skila rafrænt á eyðublaðavef Stjórnarráðsins, www.minarsidur.stjr.is, í síðasta lagi 30. nóvember 2020 

Ráðuneytið mun ekki taka til umfjöllunar umsóknir sem berast utan auglýsts tímafrest eða sem berast eftir öðrum leiðum en í gegnum eyðublaðavef Stjórnarráðsins.

Eftirtalin gögn skulu fylgja með umsóknum:

  • Upplýsingar um umsækjanda eða umsækjendur.
  • Upplýsingar um aðra þátttakendur og samstarfsaðila, ef einhverjir eru.
  • Nafn þess sem annast samskipti við ráðuneytið.
  • Nákvæm lýsing á verkefni, markmiðum þess og þýðingu fyrir umsækjanda og aðra.
  • Lýsing á því hvernig árangur verkefnisins verði metinn.
  • Tíma- og verkáætlun.
  • Fjárhagsáætlun, þar sem koma m.a. fram upplýsingar um áætlaðan kostnað, tekjur, hlutdeild annarra í kostnaði við verkefnið og styrkfé sem verkefnið hefur hlotið eða hefur sótt um.
  • Staðfest gögn frá samstarfsaðilum sem og önnur gögn til stuðnings umsókn. 

Fyrirspurnir vegna styrkjanna sendast á netfangið [email protected]

 

 

 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin
9. Nýsköpun og uppbygging
14. Líf í vatni
15. Líf á landi
7. Sjálfbær orka
8. Góð atvinna og hagvöxtur
11. Sjálfbærar borgir og samfélög

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum