Hoppa yfir valmynd
2. febrúar 2007 Forsætisráðuneytið

Dómsmálaráðuneytið býður styrki til verkefna á sviði mannréttinda

Dómsmálaráðuneytið hefur samkvæmt fjárlögum 8 milljónir króna til ráðstöfunar til verkefna á sviði mannréttindamála. Ráðuneytið hefur ákveðið að úthluta þessu fé á grundvelli umsókna.

Dómsmálaráðuneytið hefur samkvæmt fjárlögum 8 milljónir króna til ráðstöfunar til verkefna á sviði mannréttindamála. Ráðuneytið hefur ákveðið að úthluta þessu fé á grundvelli umsókna. Fyrir því gefst nú félagasamtökum og stofnunum, sem hyggjast sinna verkefnum á þessu sviði, kostur á að sækja um styrk til ráðuneytisins og skal umsókn hafa borist fyrir 15. febrúar næstkomandi.

Styrkveitingar síðasta árs má finna á vef dómsmálaráðuneytisins.

Reykjavík 2. febrúar 2007



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum