Hoppa yfir valmynd
20. desember 2018 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 553/2018 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 20. desember 2018 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 553/2018

í stjórnsýslumáli nr. KNU18100064

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 30. október 2018, kærði [...], fd. [...], ríkisborgari [...] (hér eftir nefnd kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 22. október 2018, um að synja henni um dvalarleyfi vegna skorts á starfsfólki, sbr. 62. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Af kæru kæranda má ráða að hún krefjist þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi.

Fyrrgreind ákvörðun var kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um dvalar- og atvinnuleyfi þann 23. júlí 2018. Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 22. október 2018, var kæranda synjað um dvalarleyfi. Umboðsmanni kæranda var tilkynnt um ákvörðunina þann 26. október sl. Tilkynning um kæru barst þann 30. október 2018 en kæru fylgdu athugasemdir.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar var vísað til þess að samkvæmt 2. mgr. 55. gr. laga um útlendinga skuli tilgangur umsækjanda með dvöl hér á landi að vera í samræmi við það dvalarleyfi sem sótt sé um. Í umsókn kæranda hafi komið fram að tilgangur dvalar sé að vinna. Hafi kærandi einnig lagt fram umsókn um tímabundið atvinnuleyfi vegna skorts á starfsfólki. Í ljósi þessa hafi umsókn hennar verið flokkuð á grundvelli 62. gr. laga um útlendinga.

Samkvæmt b-lið 1. mgr. 62. gr. laga um útlendinga sé það forsenda fyrir útgáfu dvalarleyfis vegna skorts á starfsfólki að áður hafi verið gefið út atvinnuleyfi samkvæmt lögum um atvinnuréttindi útlendinga nr. 97/2002. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 19. október 2018, hafi kæranda verið synjað um atvinnuleyfi. Væri stofnuninni því ekki heimilt að veita kæranda dvalarleyfi vegna skorts á starfsfólki og var umsókn hennar því synjað.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í athugasemdum kæranda kemur m.a. fram að [...] veitingastaður hér á landi sækist eftir starfskröftum hennar þar sem hún bæði þekki [...] matargerð og tali tungumálið. Sé því mikilvægt bæði fyrir hana og veitingastaðinn að henni verði veitt atvinnu- og dvalarleyfi hér á landi.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Í 62. gr. laga um útlendinga er fjallað um heimildir til útgáfu dvalarleyfis vegna skorts á starfsfólki. Skilyrði fyrir veitingu dvalarleyfis samkvæmt 1. mgr. 62. gr. laganna eru m.a. þau að útlendingur fullnægi grunnskilyrðum 1. og 2. mgr. 55. gr. laganna, sbr. a-lið 1. mgr. 62. gr., og að tímabundið atvinnuleyfi vegna skorts á starfsfólki hafi verið veitt á grundvelli laga nr. 97/2002 um atvinnuréttindi útlendinga, sbr. b-lið 1. mgr. 62. gr. laga um útlendinga.

Í ákvæði 1. mgr. 52. gr. laga um útlendinga er mælt svo fyrir um að Útlendingastofnun taki ákvörðun um veitingu dvalarleyfis en Vinnumálastofnun um veitingu atvinnuleyfis. Af ákvæðinu er ljóst að ákveðin verkaskipting er milli Útlendingastofnunar annars vegar og Vinnumálastofnunar hins vegar. Er hlutverk Útlendingastofnunar m.a. fólgið í að kanna hvort skilyrði fyrir útgáfu dvalarleyfis samkvæmt umsókn þar að lútandi séu fyrir hendi í samræmi við ákvæði laga um útlendinga á meðan Vinnumálastofnun annast m.a. framkvæmd laga atvinnuréttindi útlendinga nr. 97/2002, þ.m.t. hvort útlendingi skuli veitt atvinnuleyfi. Vegna athugasemda sem beint var til kærunefndar útlendingamála f.h. kæranda þann 30. október 2018 áréttar kærunefnd leiðbeiningar um að beina óskum um undanþágur frá lögum um atvinnuréttindi útlendinga til Vinnumálastofnunar eða velferðarráðuneytisins.

Samkvæmt gögnum málsins er ljóst að Vinnumálastofnun synjaði kæranda um atvinnuleyfi með ákvörðun, dags. 19. október 2018. Þá verður ekki séð af gögnum málsins að þeirri ákvörðun hafi verið hnekkt. Kærandi uppfyllir því ekki ófrávíkjanlegt skilyrði b-liðar. 1. mgr. 62. gr. laga um útlendinga fyrir veitingu dvalarleyfis vegna skorts á starfsfólki. Verður ákvörðun Útlendingastofnunar því staðfest.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Anna Tryggvadóttir

Gunnar Páll Baldvinsson                                                    Anna Valbjörg Ólafsdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum