Hoppa yfir valmynd
15. október 2010 Innviðaráðuneytið

Íbúðalánasjóði verði heimilað að leigja íbúðir með ákvæði um kauprétt

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi í dag að leggja fyrir Alþingi frumvarp Guðbjarts Hannessonar, félags- og tryggingamálaráðherra, til laga um breytingar á lögum um húsnæðismál, nr. 44/1998.

Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar sem heimila Íbúðalánasjóði að bjóða til leigu íbúðir sem sjóðurinn hefur keypt á uppboði þannig að tilteknir húsaleigusamningar verði með kauprétti. Miðað er við að umsamin húsaleiga taki ávallt mið af markaðsleigu á viðkomandi stað. Ekki er gert ráð fyrir því að leigjanda sé skylt að nýta sér kauprétt heldur verði honum það í sjálfsvald sett. Nánari ákvæði um fyrirkomulag kaupleigu verður sett í reglugerð. 

Guðbjartur Hannesson félags- og tryggingamálaráðherra„Ég bind vonir við að þetta ákvæði muni auka verulega húsnæðisöryggi þeirra sem eru illa staddir fjárhagslega og að með þessu opnist fólki sem misst hefur húsnæði á uppboði möguleiki á því að eignast húsnæði á nýjan leik“ segir Guðbjartur Hannesson, félags- og tryggingamálaráðherra.

Auk þessa er lagt til að Íbúðalánasjóði verði heimilt að gefa út óverðtryggða skuldabréfaflokka og eins er lagt til að heimildir sjóðsins til að veita lán til endurbóta á fjöleignarhúsum og til að bæta aðgengi að húsnæði fyrirtækja og stofnana verði víkkaðar. Gert er ráð fyrir að þessar breytingar hleypi auknu lífi í byggingaframkvæmdir og fjölgi störfum.

Með víðtækari heimildum Íbúðalánasjóðs til að fjármagna stórfelldar breytingar á fjölbýlishúsum, sem geta til dæmis falist í hönnun og uppsetningu á lyftum, er þess vænst að búsetufrelsi fólks aukist til muna. Búseta í heimahúsi geti þannig orðið raunverulegur valkostur við stofnanaþjónustu fyrir aldraða og fólk með hreyfihömlun.

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum