Hoppa yfir valmynd
17. október 2009 Innviðaráðuneytið

Aukaframlag Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 2009

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur gefið út reglur um úthlutun aukaframlags Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til sveitarfélaga á árinu 2009.

Aukaframlaginu er ætlað að bæta rekstrarstöðu sveitarfélaga en við ákvörðun um úthlutun framlagsins var m.a. horft til ársreikninga sveitarfélaganna árið 2008. Forsendur úthlutunar voru kynntar fyrir sveitarstjórnarmönnum á ársfundi Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 2. október.

Sérstakt aukaframlag Jöfnunarsjóðs hefur verið veitt síðan 1999 að undanskildum árunum 2002 og 2005 (sjá mynd). Síðustu tvö árin hefur árlegt framlag numið 1,4 milljarði króna, sbr. tillögu tekjustofnanefndar frá 17. mars 2005 og viljayfirlýsingu ríkis og sveitarfélaga frá 22. mars 2007. Í lok síðasta árs náðist samkomulag um áframhaldandi greiðslur aukaframlagsins.

Aukaframlag ársins er einn milljarður króna og er framlaginu ætlað að bæta rekstrarstöðu sveitarfélaga á yfirstandandi ári. Með hliðsjón af ýmsum breytingum sem orðið hafa í rekstrarumhverfi sveitarfélaga frá síðasta ári, svo sem auknu atvinnuleysi og hærri fjármagnskostnaði, hefur reglum um úthlutun framlagsins í ár verið breytt. Helstu breytingar eru eftirfarandi:

  • Reglur um útreikning á framlagi til sveitarfélaga þar sem íbúafjöldi vex minna en í Reykjavíkurborg eru einfaldaðar. Þá er tekið mið af þróun heildartekna en ekki eingöngu útsvarstekna eins og áður. Þrátt fyrir breyttar reglur er meginráðstöfun aukaframlagsins eins og áður til sveitarfélaga þar sem íbúafjöldi hefur vaxið minna en í Reykjavíkurborg.
  • Bætt er við nýjum flokki sem ætlað er að létta undir með svokölluðum vaxtarsveitarfélögum, þ.e. sveitarfélögum þar sem íbúafjöldi hefur vaxið hraðar en í Reykjavíkurborg. Forsendur fyrir úthlutun framlags eru að meðaltekjur á íbúa séu lægri en meðaltekjur í vaxtarsveitarfélögum árið 2009.
  • Framlag vegna sameininga sveitarfélaga er breytt. Áfram verður veitt framlag til fjölkjarna sveitarfélaga en almennt framlag vegna sameininga er fellt niður. Framlagið er veitt á grundvelli gildandi reglna Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga þar að lútandi, sbr. 13. gr. reglugerðar nr. 113/2003.
  • Tekið er mið af jákvæðri peningalegri stöðu sveitarsjóðanna samkvæmt ársreikningum 2008. Með peningalegri stöðu er á átt við veltufjármuni og langtímakröfur að frádregnum skammtíma- og langtímaskuldum.

Sveitarfélög sem ekki nýta hámarksútsvar á yfirstandandi ári fá ekki aukaframlag.

Forsendur framlagsins

Aukaframlag 2009 er reiknað út með hliðsjón af þremur viðmiðunum.

Í fyrsta lagi renna 700 m.kr. til sveitarfélaga vegna þróunar íbúafjölda og heildartekna.

Annars vegar renna 450 m.kr. til sveitarfélaga þar sem vöxtur íbúafjölda hefur verið minni en í Reykjavík árin 2004 – 2008. Fundið er út fyrir hvert sveitarfélag hver fjölgun íbúa hefði þurft að vera á umræddu tímabili til að sama hlutfallslega vexti og í Reykjavíkurborg væri náð og er það grundvöllur úthlutunar.

Hins vegar renna 250 m.kr. til viðkomandi sveitarfélaga þar sem þróun heildartekna á íbúa sveitarfélaga er lægri en þróun heildartekna á landsvísu. Fundinn er út fyrir hvert sveitarfélag mismunur á hlutfallslegri hækkun heildartekna sveitarfélaga á landsvísu og hlutfallslegri hækkun heildartekna hvers sveitarfélags. Sá mismunur er margfaldaður með íbúafjölda viðkomandi sveitarfélags 1. desember 2008 og er það grundvöllur úthlutunar.

Í öðru lagi renna 210 m.kr. til sveitarfélaga þar sem íbúaþróun hefur verið meiri en hjá Reykjavíkurborg árin 2004-2008. Framlag er eingöngu veitt til þeirra sveitarfélaga sem hafa lægri meðaltekjur á íbúa árið 2009 en reiknaðar meðaltekjur viðkomandi sveitarfélaga. Fundið er út fyrir sveitarfélag hversu háa fjárhæð vanti til að ná meðaltekjum á íbúa og er það grundvöllur úthlutunar.

Í þriðja lagi er 90 m.kr. varið til sveitarfélaga, annarra en Reykjavíkurborgar, þar sem tekið er tillit til sérstakrar útgjaldaþarfar sveitarfélaga sem halda þurfa úti þjónustu á fleiri en einum þéttbýlisstað innan sveitarfélagsins. Við úthlutun framlagsins er byggt á reglum um slík framlög sem er að finna í 2. mgr. og c-lið 13. gr. reglugerðar um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, nr. 113/2003

Skerðing vegna jákvæðrar peningalegrar stöðu, heildartekjur og greiðsla framlags

Framlög vegna íbúaþróunar, þróunar heildartekna og lágra meðaltekna eru skert með hliðsjón af peningalegri stöðu. Með peningalegri stöðu er átt við veltufjármuni og langtímakröfur sveitarfélags í efnahagsreikningi 2008 að frádregnum skammtíma- og langtímaskuldum þess. Ef útkoman er jákvæð koma 5% til skerðingar á útreiknuðu framlagi.

Heildartekjur eru hámarks útsvarstekjur og fasteignaskattstekjur miðað við álagningu 2009 auk eftirtalinna framlaga Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga á yfirstandandi ári: Framlag til jöfnunar á tekjutapi vegna fasteignaskatts, tekjujöfnunarframlag, útgjaldajöfnunarframlag og almennt jöfnunarframlag til reksturs grunnskóla.

75% af framlaginu koma til greiðslu nú þegar. Eftirstöðvar framlagsins verða greiddar í desember þegar upplýsingar um tekjuforsendur ársins 2009 liggja fyrir og endurskoðun framlagsins hefur farið fram.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum